Fréttablaðið - 06.05.2010, Side 64

Fréttablaðið - 06.05.2010, Side 64
52 6. maí 2010 FIMMTUDAGUR HM 2010 HEFST 11. JÚNÍ NBA BARÁTTAN ÚRSLITAKEPPNIN Í HÁMARKI FORMÚLA 1 PGA MÓTARÖÐIN THE PLAYERS CHAMPIONSHIP 7.-9. MAÍ ÚRSLITIN RÁÐAST Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI ÚRSLITALEIKURINN Í ENSKA BIKARNUM 15. MAÍ Chelsea – Portsmouth PEPSÍDEILDIN HEFST 10. MAÍ Pepsímörkin með Magnúsi Gylfa og Tómasi Inga! INTER MILAN BAYERN MÜNCHEN ÚRSLITALEIKUR MEISTARADEILDARINNAR 2010 22. MAÍ barcelona 9. maí mónakó 16. maí istanbúl 30. maí á mánuði í þrjá mánuði ef greitt er með greiðslukorti frá VISA sjáðu úrslitin í enska boltanum og alla leikina á hm 2010 á sport 2 á aðeins 5.210 kr. á mánuði í þrjá mánu ði ef greitt er með greiðslukorti frá VIS A stöð 2 sport á aðeins 5.310 kr. FÓTBOLTI Peter Crouch tryggði Tottenham sæti í Meistara- deildinni í gærkvöldi með því að skora sigurmark liðsins á móti Manchester City í óopinberum úrslitaleik liðanna um fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham náði þar með fjögurra stiga forskoti á City þegar aðeins ein umferð er eftir af mótinu. „Þetta er frábært og þetta er búið að vera stórkostlegt tímabil hjá okkur. Við erum búnir að spila flottan fótbolta á leiðinni að þess- um árangri og við eigum þetta skilið,“ sagði Harry Redknapp, stjóri Tottenham eftir leikinn en hann tók við liðinu í fyrra þegar það var í tómu tjóni og í fallbar- áttu. Sigurinn í gær var því ekki síst sigur fyrir hann. „Þetta var gott kvöld, við spil- uðum vel og ég vissi alltaf að markið var á leiðinni. Crouchy átti frábæran leik og fór fyrir liðinu. Þetta var góð frammi- staða hjá okkur,“ sagði Harry Redknapp. Peter Crouch skoraði eina mark leiksins með skalla af stuttu færi þegar aðeins átta mínútur voru eftir af leiknum. Varnarmönnum og markmanni City tókst ekki að koma fyrirgjöf Younes Kaboul frá og enski landsliðsmiðherjinn var á réttum stað. „Við misstum af bikarúrslita- leiknum en þetta kvöld bætir svo sannarlega fyrir það,“ sagði Michael Dawson, varnarmaður Tottenham, eftir leikinn. Totten- ham er nú aðeins tveimur stigum á eftir nágrönnum sínum í Ars- enal og gæti því krækt í þriðja sætið í lokaumferðinni. - óój Eiður Smári og félagar tryggðu sér fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni í gær: Tottenham í Meistaradeildina MAÐUR KVÖLDSINS Peter Crouch fagnar hér sigrinum í gærkvöldi sem kom Totten- ham inn í Meistaradeildina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HANDBOLTI Björgvin Páll Gúst- avsson og félagar í Kadetten urðu í gærkvöld svissneskir meistar- ar í handbolta aðeins nokkrum dögum eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik EHF-bikarsins með því að slá út þýska stórliðið Flensburg. „Tilfinningarnar voru ekk- ert brjálæðislegar eftir leik því menn eru enn þá að ná sér eftir Flensburgleikinn og það er mikil dagskrá fram undan. Við höldum dampi þrátt fyrir að hafa spilað í Evrópukeppninni fyrir nokkrum dögum. Það er mjög skemmtilegt að geta mætt á svona sterkan úti- völl og klárað þetta,“ sagði Björg- vin eftir sigurleikinn í gær. „Þetta er búinn að vera langur vetur og þetta er stór titill fyrir félagið. Það átti enginn von á því að við myndum klára þetta svona snemma,“ sagði Björgvin og það kemur sér vel að vera orðn- ir meistarar þótt að það séu enn þá fjórir leikir eftir. „Það hjálp- ar okkur að geta dreift álaginu á leikmenn og náð öllum leikmönn- um heilum inn fyrir úrslitaleik- inn á móti Lemgo. Við ætlum nefnilega að taka þýska þrennu á þetta,“ sagði Björgvin en Kadet- ten hefur þegar slegið út þýsku liðin Göppingen og Flensburg á leið sinni í úrslitaleikinn. - óój Björgvin Páll Gústavsson: Svissneskur meistari í gær BJÖRGVIN PÁLL Hefur farið mikinn í marki Kadetten í vetur. MYND/DIENER Enska úrvalsdeildin Manchester City-Tottenham 0-1 0-1 Peter Crouch (82.) Fulham-Stoke 0-1 0-1 Matthew Etherington (83.) STAÐA EFSTU LIÐANNA: Chelsea 37 26 5 6 95-32 83 Man. United 37 26 4 7 82-28 82 Arsenal 37 22 6 9 79-41 72 Tottenham 37 21 7 9 65-37 70 Man. City 37 18 12 7 72-44 66 Aston Villa 37 17 13 7 52-38 64 Liverpool 37 18 8 11 61-35 62 Spænski fótboltinn Mallorca-Real Madrid 1-4 1-0 Aritz Aduriz (16.), 1-1 Cristiano Ronaldo (26.), 1-2 Ronaldo (57.), 1-3 Ronaldo (72.), 1-4 Gonzalo Higuaín (82.). Þýski handboltinn Kiel-Düsseldorf 42-30 Aron Pálmarsson skoraði 7 mörk fyrir Kiel en Sturla Ásgeirsson var með 3 mörk. Gummersbach-Hannover-Burgdorf 28-27 Róbert Gunnarsson skoraði 1 mark fyrir Gum mersbach en Hannes Jón Jónsson var með 3. Danski handboltinn FCK-Viborg 37-21 Arnór Atlason skoraði 6 mörk fyrir FCK sem mætir AaB í úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu. ÚRSLITIN Í GÆR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.