Fréttablaðið - 06.05.2010, Side 72
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Spámaður í föðurlandi
Sigurður Bogi Sævarsson, blaða-
maður, ljósmyndari og sagnaritari
samtímans (eins og hann lýsir sér
sjálfur), verður í Sunnlenska bóka-
kaffinu hans Bjarna Harðarsonar
við Austurveg á Selfossi í kvöld,
fimmtudagskvöld, og kynnir nýja
bók sína, Fólk og fréttir. Sigurður
Bogi er þarna á heimavelli í fleiri
en einum skilningi. Hann er jú Sel-
fyssingur að upplagi, en við
bætist að inn af Bókakaff-
inu eru skrifstofur Sunn-
lenska fréttablaðsins.
Á blaðinu má segja
að Sigurður hafi
slitið barnsskón-
um í blaða-
mennsku fyrir
nær tveimur
áratugum.
Missamstíga í sókninni?
Athygli vakti grein 82
presta og guðfræðinga
í Fréttablaðinu í gær
þar sem þeir kváðust
styðja ein hjúskaparlög
og þar með rétt
samkynhneigðra
til að fá blessun
kirkjunnar á
hjónaband
sitt. Mátti
þar meðal
annarra
sjá úr sömu
sókn Örn Bárð
Jónsson og Sigurð Árna Þórðarson í
Nesprestakalli. Um leið bar svo við
að Óskar Hafsteinn Óskarsson er
einn úr Selfosssókn á listanum, án
sóknarprestsins séra
Kristins Ágústs
Friðfinnssonar.
Ekki liggur fyrir
hvort prestarnir
eru ósammála um
efnið eða hvort
Kristinn er fjarri af
öðrum sökum.
- óká
1 Facebook-nauðgarinn
dæmdur í fimm ára fangelsi
2 Rændu dóttur sinni frá
kærastanum
3 Bótasvikarar gripnir í bólinu á
Facebook
4 Kjaramálin brenna á
slökkviliðsmönnum
5 Fólk brennt til bana í grískum
óeirðum