Fréttablaðið - 06.05.2010, Side 33
FIMMTUDAGUR 6. maí 2010 3
Síðustu árin er eins og vel heppnaðar nýjungar í tísku endurtaki sig ár eftir ár. Þannig er haldið í það sem líklegt er til vinsælda án þess að leita að þeirri sköpun sem ætti að taka við. Hvort það er vegna kreppunnar skal ósagt látið en þannig er í hverri
tískulínu heilmikið um endurtekið efni. Dæmin eru mörg í sumar og
mætti nefna stuttbuxurnar sem eru styttri en nokkru sinni, blóma-
mynstur Liberty sem nú nær alla leið inn í herratískuna, bermúda-
buxur hjá herrum og fleira mætti telja. Í skótísku eru sumrin orðin
mörg í röð þar sem við sjáum dömuskó með fylltum hæl og brandar-
inn um hversu vel þessir skór eiga við í blautu grasi heima á Fróni er
orðinn þreyttur. Kannski er hægt að breyta til og tala um sentimetra
af gosösku í staðinn þó líklega fari askan ekki vel með skótau. Lit-
rík gúmmístígvél eru líklega betri í leiðangur nálægt Eyjafjallajökli
en slíkan fótabúnað hafa flest fínustu tískuhúsin selt undanfarið. Ef
Þórdís Arnljótsdóttir fréttamaður hefði vitað að hún ætti eftir að
fara í kringum jörðina í fréttatímum sjónvarpsstöðvanna við að þyrla
upp gosösku er líklegt að hún hefði smeygt sér í slík stígvél.
Helst er nýtt í þykku hælunum þetta sumarið að hællinn er þynnri
en áður og ekki alltaf með þykkum botni að framan eins og áður. Því
eru þeir ekki eins þægilegir en síðan hvenær hefur tískan átt að vera
þægileg? Svo eru þeir stundum opnir að framan sem ekki hefur sést.
Helsta nýjung sumarsins er tréklossarnir og þá er ég ekki að tala
um sænska tréklossa eins og allir áttu fyrir einum þrjátíu árum á eft-
irhippaárunum þó þá megi einnig sjá. Nú eru tréklossarnir með háum
hælum og geta verið með opinni tá þó hinir klassísku, lokuðu, sjá-
ist þó meira. Tréklossarnir eru skreyttir með litlum bólum úr málmi
og smellpassa við skósíðu hippakjólana sem enn eru í sumartískunni
fyrir komandi sumar og kjólar almennt alls ekki á útleið.
Slönguskinn hefur verið tengt fínustu tískuhúsum en í sumar má
finna fylgihluti með ódýrari merkjum, töskur, belti og skó úr þessu
forláta skinni. Ýmsir litir eru í boði og ekki verra að þeir séu sterkir og
verðið frekar viðráðanlegt. Þetta er ólíkt fylgihlutum Stellu McCartn-
ey sem er á móti dýraskinni og notar einungis gervileður og -loðfeldi.
Fyrir þá sem eyða fríinu í sól og sumaryl á sólarströnd eru
þveng skór fyrirsætunnar Gisele Bündchen ómissandi. Skórnir heita
Ipanema og hluti af ágóðanum rennur til samtaka í Brasilíu sem vinna
að verndun hafskjaldbakna sem eru í útrýmingarhættu. bergb75@free.fr
Slönguskinn og fylltir hælar
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Nýjustu búningar Peking-óperunnar voru afhjúpaðir í vikunni.
Mikið var um dýrðir í Peking í Kína á mánu-
dag, þegar nýjustu búningar Peking-óperu-
hússins voru sýndir á sérstakri tískusýn-
ingu.
Söngur, samtöl og látbragðsleikur vega
þungt í Peking-óperunni sem nýtur mik-
illa vinsælda í Kína, en þar á hún sér
200 ára sögu. Eftir að kommúnistar
komust til valda í Kína og reyndu
að afmá ýmislegt í menning-
arlegum arfi þjóðarinnar var
óperan bönnuð um tíma. Hún
náði aftur vinsældum á áttunda
áratugnum í kjölfar dauða Maós
Zedong, formanns Kommúnista-
flokksins, og er enn vinsæl.
Stríðsmálning og
skrautlegir búningar
Grímur og skrautlegir búningar eru mikið notaðir í óperunni.
Fatahönnuðurinn Alex Perry
var með arabískt prinsessu-
þema á áströlsku tískuvik-
unni.
Ástralski fatahönnuðurinn
sýndi geggjaða kjóla fyrir
nokkrum dögum á einum
stærsta tískuviðburði sem
haldinn hefur verið í Ástral-
íu, tískuvikunni í Sydney.
Perry er þekktur fyrir
að tefla fram glysi og ofur-
kvenlegum sniðum og
honum brást ekki boga-
listin að þessu sinni þegar
fyrirsæturnar komu fram
í kjólum sem voru eins og
korselett að ofan og með
misefnismiklum tjullpilsum
að neðan. Þemað var arab-
ískar prinsessur og gull-
kjólum inn á milli. - jma
Svartur og seiðandi
kjóll úr smiðju Alex
Perry. Perry er vinsæll
brúðarkjólahönnuður og
kjólarnir í þeim dúr.
Dýrðlegir tjullkjólar á tískuviku
ÚTSALA Í 3 DAGA
Útsala fi mmtudag, föstudag og laugardag
Mikið úrval af fallegum fatnaði
á ótrúlega góðu verði.
Komið og gerið frábær kaup.
Ath! vörur úr vor og sumarlista 2010
eru ekki á útsölunni
Opið: Fimmtudaga og föstudag frá kl. 11.00 -18.00
Laugardag frá kl. 11.00 -16.00
Bæjarlind 6 - Eddufelli 2
Sími 554-7030 Sími 557-1730
www.rita.is
Sumar
Flottar frá
Str. 36 - 56
Kíkið á heimasíðuna okkar
www.rita.is
F Á K A F E N I 9 - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
www.gabor.is
Sérverslun með
Skór & töskur í miklu úrvali
Laugaveg 54,
sími: 552 5201
BRJÁLUÐ HELGARTILBOÐ Í FLASH
Gallajakkar
áður 9.990
Nú 7.990
st. s-xxl
Gallaskokkar
áður 11.990
Nú 9.990
st. s-xxl
Skokkar
áður 16.990
Nú 11.990
st. 38-52
20%
afsláttur af
öðrum vörum
Mikið af vörum á
2000 kr, 3000 kr
og 5000 kr t.d.
sumarjakkar,
skokkar og kjólar
LaugardagaJóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447