Fréttablaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 60
48 6. maí 2010 FIMMTUDAGUR
SÍMI 564 0000
L
12
12
12
L
10
10
SÍMI 462 3500
12
16
L
16
16
SHE´S OUT OF MY LEAGUE kl. 6 - 8
THE CRAZIES kl. 8
THE SPY NEXT DOOR kl. 6
LEGION kl. 10
DAYBRAKERS kl. 10
SÍMI 530 1919
14
12
12
16
12
10
10
L
12
12
18
L
UNTIL THE LIGHT TAKES US kl. 10 íslenskur texti
IMAGINARIUM OF DR. P... kl. 8 íslenskur texti
ONDINE kl. 10.15 íslenskur texti
UN PROPHÉTE kl. 10.15 enskur texti
RUDY Y CURSI kl. 6 íslenskur texti
MOON kl. 8 íslenskur texti
NOWHERE BOY kl. 6 íslenskur texti
THE LAST STATION kl. 5.45 enskt tal
VIDEOCRACY kl. 8 íslenskur texti
THE MESSENGER kl. 8 íslenskur texti
TRASH HUMPERS kl. 10 íslenskur texti
FANTASTIC MR. FOX kl. 6 íslenskur texti
SÍMI 551 9000
L
L
14
14
THE BACKUP PLAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
IRON MAN 2 kl. 5.20 - 8 - 10.40
IRON MAN 2 LÚXUS kl. 5.20 - 8 - 10.40
SHE´S OUT OF MY LEAGUE kl. 8 - 10.20
THE SPY NEXT DOOR kl. 3.40 - 5.50
DATE NIGHT kl. 4 - 6 - 8 - 10
NANNY MCPHEE kl.3.40
NÝTT Í BÍÓ!
CRAZY HEART kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE BACKUP PLAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
I LOVE YOU PHILLIP MORRIS kl. 5.40 - 8 - 10.20
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
CRAZY HEART ER Á BÍÓDÖGUM GRÆNA LJÓSSINS
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Fullt af stórleikurum í fyrstu
STÓRMYND SUMARSINS!
Síðasti sýningardagur
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
12 12
12
12
12
12
12
12
14
14
14
14
L
L
L
L
10
EMPIRE - Chris Hewitt
IRON MAN 2 kl. 5:20D - 8D - 10:40D
IRON MAN 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 5:50
KICK ASS kl. 5:40 - 8 - 10:30
CLASH OF THE TITANS kl. 8 - 10:40
AÐ TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali kl. 5:50
HOT TUB TIME MACHINE kl. 8 - 10:30
THE BLIND SIDE kl. 8
MEN WHO STARE AT GOATS kl. 10:40
ALICE IN WONDERLAND kl. 5:50
IRON MAN 2 kl. 8 - 10:30
KICK ASS kl. 8 - 10:30
IRON MAN 2 kl. 8 - 10:30
KICK ASS kl. 8 - 10
FYRRI MYNDIN GERÐI ALLT VITLAUST OG ÞESSI ER ENN BETRI
Robert Downey Jr., Samuel L. Jackson, Gwyneth Paltrow, Scarlett Johansson,
Don Cheadle og Mickey Rourke eru mætt í fyrstu STÓRMYND SUMARSINS
IRON MAN 2 kl. 5:40D - 8:10D - 10:45D
KICK ASS kl. 5:50 - 8:10 - 10:40
TITANS Sýnd á morgun kl. 8:10(3D) - 10:30(3D)
AÐ TEMJA DREKANN ísl. Tali Sýnd á morgun kl. 6(3D)
- bara lúxus
Sími: 553 2075
IRON MAN 2 5, 7.30, 10(POWER) 12
THE BACK-UP PLAN 8 og 10.10 L
SHE´S OUT OF MY LEAGUE 8 og 10.10 12
AÐ TEMJA DREKANN SINN 6 - 3D L
NANNY MCPHEE & BIG BANG 5.40 L
POWERSÝNING
KL. 10
Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystri fer
fram í sjötta skipti helgina 23.-25. júlí og hefst miða-
sala í dag. „Þetta verður stórkostlegt,“ segir skipu-
leggjandinn, Magni Ásgeirsson,
um hátíðina. „Við höfum aldrei
verið jafnduglegir við að skipu-
leggja. Það eina sem á eftir að
gera er að smíða sviðið,“ segir
hann. „Ég vil hvetja fólk til að
ná sér í miða. Þetta er ekki eins
og á þjóðhátíð því þarna er ekki
hægt að troða endalaust inn.“
Bræðslan hefur fest sig í sessi
sem ein af áhugaverðari stoppi-
stöðvum Íslands yfir sumar-
mánuðina. Í gegnum tíðina hafa
komið þar fram Emilíana Torrini, Damien Rice,
Belle & Sebastian, Magni, Lay Low, Þursaflokkur-
inn og Megas og Senuþjófarnir. Í ár mæta til leiks
Dikta, Fanfarlo, KK & Ellen, 200.000 Naglbítar og
sigurvegarar Músíktilrauna, Of Monsters and Men.
Fanfarlo er sænsk/bresk hljómsveit sem hefur vakið
mikla athygli upp á síðkastið. „Hún minnir mig á
Belle & Sebastian og Talking Heads. Mér finnst
þetta æðisleg hljómsveit,“ segir Magni. Hún hefur
verið á tónleikaferð um Bandaríkin og kom á dögun-
um fram í spjallþætti Davids Letterman.
Forsala á Bræðsluna hefst í dag kl. 10 á Midi.is
og afgreiðslustöðum Midi.is. Verð aðgöngumiða í
forsölu er 5.500 krónur og eru 800 aðgöngumiðar í
boði. Verð aðgöngumiða við inngang verður 6.500.
krónur. - fb
Lofar stórkostlegri Bræðslu
Tónlistarhátíðin Nokia on Ice verð-
ur haldin í þriðja sinn um helgina
á Sódóma Reykjavík. Frítt verður
inn á föstudeginum þar sem þeir
Mike Sheridan og DJ Mar geir
sjá um tónlistina. Á laugardegin-
um er miðaverð 1.000 krónur. Þá
koma fram DJ Mike Sheridan,
Samúel J. Samúelsson Big Band,
Snorri Helga ásamt hljómsveit,
Who Knew, Cliff Clavin, Miri, Of
Monsters and Men, Biggabix og
Hoffman.
„Þetta hefur gengið bara mjög
vel,“ segir skipuleggjandinn, Valli
Sport, um hátíðina. „Það hafa alltaf
verið svolítið stór nöfn þarna. Flest
hafa þau orðið mun stærri eftir að
þau hafa verið þarna. Við höfum
yfirleitt verið með góðan púls á
þeim sem hafa verið að „meika“
það. Hjaltalín „meikaði“ það stuttu
eftir að þau voru á Nokia on Ice og
Dikta og Bloodgroup spiluðu þar
þegar þær voru við það að springa
út,“ segir Valli. „Við höfum líka
passað upp á að það sé góð kynn-
ing í kringum þessa hátíð og að
aðstaða og „sánd“ sé flott. Við
höfum líka verið með góða náunga
sem velja þá sem komast inn.“ - fb
Nokia on Ice í þriðja sinn
CLIFF CLAVIN Rokkararnir í Cliff Clavin spila á Nokia on Ice á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MÆTIR AUSTUR Í SUMAR Hljómsveitin Fanfarlo spilar á Bræðsl-
unni í sumar. Þetta verður í sjötta sinn sem hátíðin er haldin.
Rokksveitin Endless Dark
er nýkomin heim eftir
frækilega för til London þar
sem hún lenti í öðru sæti
í alþjóðlegu hljómsveita-
keppninni Global Battle Of
The Bands. Eftir keppnina
tók sveitin upp sitt fyrsta
myndband í bænum Bolton
við lagið Cold, Hard Dec-
ember.
„Það var „kúl“ að gera það í Eng-
landi,“ segir Atli Sigursveinsson,
gítarleikari Endless Dark, um
fyrsta myndband sveitarinnar sem
tekið var upp í Englandi eftir að
sveitin hafnaði í öðru sæti í Global
Battle of the Bands. Myndbands-
gerðin gekk þó ekki áfallalaust
fyrir sig: „Við áttum að lifa okkur
svo inn í þetta og vera svo brjál-
aðir í myndbandinu að hinn gítar-
leikarinn skallaði gítarinn og fékk
skurð í andlitið,“ segir Atli.
Útgáfufélag sem er að íhuga að
semja við Endless Dark um útgáfu
smáskífu eða EP-plötu stóð á bak
við gerð myndbandsins. Leikstjórn
var í höndum aðila sem kalla sig Sit-
com Soldiers og hafa verið dugleg-
ir við að taka upp myndbönd fyrir
breskar rokksveitir. Einnig tóku
þeir upp myndband íslensku sveit-
arinnar Ourlives við lagið Sandra.
Fyrrverandi gítarleikari Ourlives,
Egill Kári Helgason, er einmitt
umboðsmaður Endless Dark.
Atli er að vonum ánægður með
annað sætið í hljómsveitakeppn-
inni og segir að þessi góði árangur
hafi ekki komið sér mjög á óvart.
„Mér fannst ekkert rosalega góð
bönd þarna en maður er samt allt-
af jafnspenntur og óviss. Þetta var
drullugaman en það er skrítið að
spila þegar það eru yfir tuttugu
bönd á sama kvöldi. Það var mjög
gaman að kynnast þessu liði.“
Vel var tekið á móti þeim í tón-
leikasalnum, eins og reyndar
öllum sveitunum. „Það var klappað
vel fyrir öllum böndum en manni
heyrðist að fólk væri að fíla okkur.
Helmingurinn af salnum var
reyndar frá Nepal. Þegar Nepal
kom á sviðið varð allt brjálað,“
segir Atli. Það var engu að síður
kínversk sveit sem bar sigur úr
býtum, eins og áður hefur komið
fram í Fréttablaðinu.
Endless Dark spilar svokallað
post-harðkjarnarokk, eða screamo.
Sveitin er skipuð sex strákum á
aldrinum 18 til 22 ára frá Ólafs-
vík og Grundarfirði og verður
forvitnilegt að fylgjast með fram-
göngu þeirra á næstu árum. Atli er
alla vega sannfærður um að fram-
tíðin sé björt, þó svo að enn ríki
óvissa um samningamálin. „Við
vitum ekkert enn en það eru góðir
hlutir að fara að gerast.“
freyr@frettabladid.is
Brjálaðir í nýju myndbandi
ENDLESS DARK Rokkararnir í Endless Dark tóku upp nýtt myndband í Bolton við lagið Cold, Hard December.
MAGNI ÁSGEIRSSON