Fréttablaðið - 06.05.2010, Side 59
FIMMTUDAGUR 6. maí 2010 47
Förðunarmeistarinn Heba Þóris-
dóttir hefur verið ráðin til að sjá
um förðun áströlsku leikkonunn-
ar Cate Blanchett í nýjustu mynd
Óskarsverðlaunahafans, Hannah.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
þær tvær vinna saman því Hera
sá einnig um förðun Blanchett í
kvikmyndinni The Good German.
Kvikmyndin fjallar um unga
stúlku sem alin er upp af föður
sínum til að verða hin fullkomni
leigumorðingi. Með
önnur hlutverk í
myndinni fara þau
Eric Bana, Nicol-
ette Sheridan og
Saoirse Ronan
sem fór á kostum
í kvikmynd Peters
Jackson, The Lovely
Bones.
Heba hefur náð
ótrúlegum árangri
í Hollywood því
hún sá einnig um
förðun í Taran-
tino-myndinni
The Inglouri-
ous Basterds og vann einnig með
Blanchett við gerð kvikmyndarinn-
ar The Curious Case of Benjamin
Button sem Brad Pitt lék í. Heba
hefur að undanförnu verið spjall-
þáttastjórnandanum Söruh Silver-
man innan handar. Cate og Heba
ættu að geta rætt um heima-
slóðir förðunarmeistar-
ans því leikkonan heim-
sótti landið í ágúst fyrir
fjórum árum. Þá gisti
hún á Hótel Búðum,
keypti íslenska hönn-
un og lét fara vel um
sig á veitingastaðnum
Við Tjörnina.
- fgg
Heba farðar Blanchett
SAMAN Á NÝ
Heba Þóris-
dóttir og Cate
Blanchett vinna
saman á ný í
kvikmyndinni
Hannah sem nú
er í tökum.
Sigurvegari í hljómsveitakeppninni
Þorskastríðið 2010 er brimbretta-
sveitin Bárujárn. Hún hlýtur í verð-
laun hljóðverstíma til að fullvinna
þrjú lög, ársbirgðir af lýsi og einn-
ig verður henni flogið til Færeyja
þar sem hún spilar á G-festival 15.-
17. júlí.
„Við erum ekki vön að fá eitt-
hvað upp í hendurnar. Við höfum
yfirleitt þurft að gera þetta sjálf,“
segir trymbillinn Leifur Ýmir Eyj-
ólfsson. „Þetta er svolítið óvænt
en það er alltaf gaman að vinna.“
Alls 92 flytjendur sendu inn lög í
Þorskastríðið í ár. Skilyrðið var að
sungið yrði á íslensku.
Bárujárn var stofnuð haustið
2008 í Reykjavík. Auk Leifs Ýmis
eru í hljómsveitinni Oddur S. Báru-
son bassaleikari, Hekla Magnús-
dóttir, sem leikur á þeramín, og
Sindri Freyr Steinsson sem syng-
ur og spilar á gítar. Hljómsveitin
spilar hressilegt brimbrettarokk
með drungalegum undirtón. „Við
leggjum upp með „sörf“ en reynum
að toga það í hinar og þessar áttir.
Til að byrja með var þetta mikið
þyngra en við höfum verið að slípa
þetta til,“ segir Leifur. Hann vonast
til að fyrsta plata sveitarinnar líti
dagsins ljós á þessu ári og koma þá
hljóðverstímarnir frá Cod Music,
sem stendur á bak við Þorskastríðið
ásamt Rás 2, að góðum notum. - fb
Bárujárn vann
Þorskastríðið
BÁRUJÁRN Hljómsveitin Bárujárn er sigurvegari hljómsveitakeppninnar Þorskastríðið.
Það er
GROUP
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…