Fréttablaðið - 08.05.2010, Side 2
2 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
Vilmundur, er þetta allt sama
tóbakið?
„Já, þegar öllu er á botninn hvolft er
þetta allt sama tóbakið.“
Tóbaksplöntufræ eru til sölu í Garðheim-
um. Vilmundur Hansen er garðyrkjufræð-
ingur í Garðheimum.
BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti
sagði í gær að fjármálaeftirlit landsins reyni nú að
komast til botns í því hvað olli skyndilegu verðfalli
á verðbréfamörkuðum á fimmtudaginn.
Dow Jones-vísitalan hrapaði um nærri þúsund
punkta, og hefur fallið aldrei fyrr verið jafn mikið
á einum degi. Markaðurinn náði þó að endurheimta
tvo þriðju verðfallsins aftur áður en dagurinn var
á enda.
Í fyrstu héldu menn að ástæðan væri almenn
spenna á fjármálamörkuðum sem stafar ekki síst
af áhyggjum af stöðu evrunnar og áhrifum skulda-
vanda Grikkja á hana.
Síðan kom upp sú saga að verðbréfamiðlari hefði
óvart gert sölutilboð upp á 16 milljarða dali, en í
raun hafi hann einungis ætlað að gera sölutilboð
upp á 16 milljónir.
Ekki er vitað hvað hæft er í þessu, en þetta ætlar
fjármálaeftirlit Bandaríkjanna sem sagt að kanna.
Mikill órói var áfram á mörkuðum vestra í gær,
þrátt fyrir góð tíðindi af atvinnumálum í Bandaríkj-
unum sem undir venjulegum kringumstæðum hefðu
átt að stappa í menn stálinu.
Dow Jones-vísitalan hrapaði um heil 280 stig
snemma dags en hafði að mestu náð sér aftur síð-
degis. Svipaða sögu er að segja af öðrum vísitölum,
þótt umrótið á þeim hafi ekki verið jafn mikið. - gb
Mikill órói á verðbréfamörkuðum eftir óvænt og óútskýrt verðhrap á fimmtudag:
Skyndilegt verðfall verður kannað
SPENNTIR Í KAUPHÖLLINNI Eftir verðfallið á fimmtudag ríkti
veruleg spenna í kauphöllinni í New York í gær. NORDICPHOTOS/AFP
ELDGOS Loftrými umhverfis Kefla-
víkurflugvöll fyrir blindflugsum-
ferð lokast eftir hádegi í dag. Spár
gera ráð fyrir að öskuský vegna
eldgossins í Eyjafjallajökli verði
komið að vesturströnd landsins um
hádegisbil. Iceland Express ákvað
því að flýta flugi sem átti að fara
síðdegis á morgun til Alicante. Í
gær aflýsti Icelandair tveimur
flugferðum sem fara átti í dag.
„Flugvélar komast inn og út í
fyrramálið en eftir það er miðað
við að Akureyrarflugvöllur verði
notaður,” segir Hjördís Guðmunds-
dóttir upplýsingafulltrúi Flug-
stoða.
Ekki liggur fyrir hvort hægt
verði að fljúga til og frá Keflavík-
urflugvelli á sunnudaginn. - shá
Ferðum aflýst í dag:
Enn truflar
gosið ferðafólk
EFNAHAGSMÁL Halldór Ásgríms-
son, fyrrverandi forsætisráðherra
og formaður Framsóknarflokks-
ins, telur sig
ekki þurfa að
biðjast afsök-
unar á sínum
störfum sem
ráðherra á árun-
um fyrir banka-
hrun. Alltaf
séu gerð mistök
en hann segist
hafa starfað á
grundvelli sam-
visku sinnar. Rætt var við Halldór
í Kastljósi í gærkvöldi.
Halldór sagðist ekki kannast
við að einkavæðingu bankanna
hefði verið handstýrt. Teknar
hefðu verið ákvarðanir á þeim
forsendum sem lágu fyrir á sínum
tíma.
Halldór telur að grípa hefði átt
til aðgerða fyrri hluta árs 2006
þegar hættumerki sáust vegna
stærðar bankanna.
Halldór Ásgrímsson:
Þarf ekki að
biðjast forláts
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
SPURNING DAGSINS
Fáðu faglega ráðgjöf
um val á hlaupaskóm
og kynntu þér NIKE+
MEÐ ÖLLUM NIKE HLAUPASKÓM
KÍKTU Í
Í DAGLINDUM
KAUPAUKI
INTERSPORT
FÓLK Lokakeppni alþjóðlegu fyr-
irsætukeppninnar Elite Model
Look World 2010 verður haldin
hér á landi í nóvember gangi allar
áætlanir eftir. „Ég get staðfest að
við viljum skipuleggja lokakeppni
Elite Model Look World á Íslandi,“
skrifar Bernard Hennet, forstjóri
Elite, í bréfi til Jóns Ólafssonar
vatnsútflytjanda, sem löngum
er kenndur við
Skífuna. Hen-
net segir Ísland
verða ti lval-
inn stað fyrir
keppnina.
Það var Jón
sem bar hug-
myndina upp
v ið Hen net
þegar hann var
fastur í Frakklandi um miðjan
síðasta mánuð vegna röskunar á
flugi af völdum gossins í Eyja-
fjallajökli. „Ég var öskutepptur í
París og heimurinn stopp. Ég varð
að gera eitthvað úr tíma mínum
og velti fyrir mér hvað ég gæti
gert til að koma ferðamennsku í
gang aftur,“ segir Jón í samtali
við Fréttablaðið. Hann komst í
samband við Hennet í gegnum
sameiginlegan vin þeirra beggja
og bar hugmyndina upp við hann.
„Þetta yrði svakalegt dæmi,“
segir Jón.
Umboðsskrifstofa Elite er ein sú
stærsta í heimi og hafa margar af
þekktustu fyrirsætum heims tekið
þátt í keppninni. Þar á meðal eru
Linda Evangelista, Cindy Craw-
ford og Gisele Bündchen. Sýnt er
frá keppninni á sextíu sjónvarps-
stöðvum og reiknað með að um
fjögur hundruð manns geti fylgst
með henni. Fyrirsætukeppnin er
heilmikið fyrirtæki en gert er ráð
fyrir áttatíu keppendum, svipuð-
um fjölda blaða- og fréttamanna
auk rúmlega fimm til sjö hundruð
gesta. Í gegnum tíðina hafa heims-
þekktir hönnuðir og listafólk verið
viðstatt keppnina. Þar má meðal
annars nefna John Galliano, David
Bowie og Richard Gere.
„Mér líst mjög vel á þetta, tel
það jákvætt,“ segir Birkir Hólm,
forstjóri Icelandair. Hann hafði
ekki séð bréf og gögn frá Elite í
gær. Hann segir þetta verða mikla
landkynningu og spennandi kost
ef að því komi margir aðilar.
Reiknað er með að kostnaður við
að halda keppnina hér nemi 280
milljónum króna. Rekstraráætlun
gerir ráð fyrir 175 milljóna króna
framlagi frá ríki og borg til stuðn-
ings verkefninu. Afgangurinn
kemur frá öðrum, svo sem að utan
og vegna sýningarréttar.
jonab@frettabladid.is
Elite vill halda loka-
keppni hér í haust
Tæplega þúsund erlendir ferðamenn gætu komið hingað haldi umboðsskrifstof-
an Elite fyrirsætukeppni hér í nóvember. Þar á meðal eru heimsfrægar stjörnur.
Jón Ólafsson, kenndur við Skífuna, bar hugmyndina upp við forstjóra Elite.
FYRIRSÆTUR Í KEPPNINNI Fyrirsætukeppni Elite hefur verið haldin árlega frá 1983
í nokkrum af helstu stórborgum heims. Síðustu tvö ár hefur hún verið haldin í kín-
versku borginni Sanya. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
JÓN ÓLAFSSON
DÓMSMÁL Ragna Árnadóttir
dómsmálaráðherra skipaði í gær
í sex stöður héraðsdómara, auk
þess sem hún skipaði einn dóm-
ara til viðbótar í embætti tíma-
bundið í afleysingum. Dómurum
var við þetta fjölgað um fimm.
Þau Áslaug Björgvinsdóttir,
Ásmundur Helgason og Ragn-
heiður Harðardóttir voru skipuð
dómarar við Héraðsdóm Reykja-
víkur, og Ingiríður Lúðvíksdótt-
ir skipuð dómari tímabundið við
sama dómstól.
Jón Höskuldsson var skipaður
dómari við Héraðsdóm Reykja-
ness. Þá voru þau Ragnheiður
Thorlacius og Sigurður Gísli
Gíslason skipuð dómarar við
Héraðsdóm Suðurlands. - bj
Ráðherra skipar dómara:
Fjölgar dómur-
um um fimm
Stór landkynning
„Þetta verður
mjög stórt
landkynn-
ingardæmi
fyrir okkur ef
af verður,“
segir Ólöf
Ýrr Atladóttir
ferðamálastjóri.
Hún áréttar þó
að Ferðamála-
ráð eigi eftir
að kynna sér málið betur og því
sé lítið hægt að segja um það á
þessari stundu.
ÓLÖF ÝRR
ATLADÓTTIR
ORKUMÁL Alvarleg rafmagnsbilun
varð í byggðarlínu við Brenni-
mel í Hvalfirði í gærkvöldi sem
olli rafmagnsleysi víða um land.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsneti voru truflanir vestur
og norður fyrir land og að Höfn í
Hornafirði. Á Suður- og Suðvest-
urlandi fór hins vegar rafmagn
ekki af.
Rafmagnið fór af Akureyri
um klukkan níu og var enn raf-
magnslaust þegar Fréttablaðið
fór í prentun á ellefta tímanum.
- shá
Alvarleg bilun í gærkvöldi:
Rafmagnslaust
víða um land
NEYTENDUR Samkeppniseftirlitið
framkvæmdi húsleit í gær hjá
starfsstöð Hátækni og tók afrit
af rafrænum gögnum þar um
olíufélagið Olís. Hátækni er dótt-
urfélag Olís.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að
rannsókn á gögnum sem hald var
lagt á í húsleit hjá Skiptum og
dótturfélögum þess, Símanum og
Tæknivörum, seint í síðasta mánuði
hafi leitt eftirlitið að Hátækni.
Grunur leikur á að um hugs-
anlegt samráð á farsímamarkaði
hafi verið að ræða á milli fyrir-
tækjanna, að sögn Páls Gunnars
en Tæknivörur eru umboðsaðili
fyrir farsíma frá Sony Ericsson,
Motorola og Samsung. Samkvæmt
úrskurði miðaði húsleit Samkeppn-
iseftirlitsins hjá Símanum, Skipt-
um og Tæknivörum að almennri
rannsókn á mögulegri misnotkun
á markaðsráðandi stöðu á farsíma-
markaði. Þá hafði farsímafyrirtæk-
ið Nova beint kvörtun til eftirlitsins
vegna markaðssetningar Ring, sem
er á vegum Símans. Í kjölfar hús-
leitarinnar í síðasta mánuði kærði
Síminn Samkeppniseftirlitið fyrir
að notast við þjónustu samkeppn-
isaðila Símans í húsleitinni. Ekki
er ljóst hvenær niðurstaða liggur
fyrir í rannsókn málsins, að sögn
Páls Gunnars. - jab
Samkeppniseftirlitið rannsakar hugsanlegt samráð á farsímamarkaði:
Tóku gögn hjá Hátækni
PÁLL GUNNAR Húsleit hjá Skiptum
og dótturfélögum vegna gruns um
markaðsmisnotkun leiddi eftirlitið að
Hátækni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fríða Á. Sigurð-
ardóttir látin
Fríða Áslaug
Sigurðardóttir
rithöfundur
lést í Reykja-
vík í gær. Fríða
fæddist á Hest-
eyri í Sléttu-
hreppi á Horn-
ströndum 11. desember 1940.
Fyrsta bók Fríðu var smá-
sagnasafnið Þetta er ekkert
alvarlegt sem kom út árið
1980. Síðan sendi hún frá sér
skáldsögur og fjölda smásagna
auk þess sem hún þýddi verk
erlendra höfunda. Bók hennar,
Meðan nóttin líður, sem út
kom árið 1990, hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin 1991 og
Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs 1992.
Síðasta verk verk Fríðu var
skáldsagan Í húsi Júlíu sem
kom út árið 2006. Fríða var
heiðursfélagi í Rithöfunda-
sambandi Íslands.
Fríða lætur eftir sig eigin-
mann, tvo uppkomna syni og
sex barnabörn.