Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 6
6 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
til 11. m
a
í e
ð
a
á
m
e
ð
a
n
b
irg
ð
ir e
n
d
a
st, a
u
g
lýst ve
rð
e
r tilb
o
ð
sve
rð
.
Góður Kostur
á grillið
NÝR OPNUNARTÍMI OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10-20
Þurrkryddaðar
lærissneiðar
Kjöthornið
1.699 kr/kg
verð áður 2.128 kr/kg
Bökunarkartöflur
1 kg
99 kr/kg
Pepsi og Pepsi
Max 2 L
179 kr
verð áður 225 kr
Grísalærisvöðvi
Goði
1.518 kr/kg
verð áður 1.898 kr/kg
Hvítlauks- og
piparkryddaðar
lærissneiðar
Kjöthornið
1.699 kr/kg
verð áður 2.128 kr/kg
Hvítlauks- og
Piparsósur
KEA
225 kr
Var rétt að handtaka Hreiðar
Má Sigurðsson, fyrrverandi
bankastjóra Kaupþings?
JÁ 96,1%
NEI 3,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að taka þátt í átakinu
Hjólað í vinnuna?
Segðu skoðun þína á visir.is
ELDGOS Vík í Mýrdal var eins og
draugabær yfir að líta í gær vegna
mikils öskufalls frá sprengigosinu
í Eyjafjallajökli. Svifryksmæling-
ar í Vík og nágrenni fóru langt yfir
heilsuverndarmörk og Rauði kross-
inn opnaði fjöldahjálparstöðvar í
Vík og á Kirkjubæjarklaustri síð-
degis vegna þessa.
Lýsingar heimafólks eru til
vitnis um það að öskufallið hafi
verið „óþolandi klukkustundum
saman“ og um sjötíu manns leit-
uðu athvarfs í fjöldahjálparstöð-
inni í Vík. Margir þeirra létu
vita að þeir ætluðu ekki að vera á
heimilum sínum yfir nóttina, segir
Víðir Reynisson, hjá Almanna-
vörnum. „Þetta eru rétt viðbrögð
og mjög skiljanlegt að fólk, sér-
staklega barnafólk og eldra fólk,
fari meðan á þessu stendur. Fyrir
marga er ekki um neitt annað að
ræða en að fara.“
Víðir segir að öskufallið hafi náð
frá Þorvaldseyri í vestri allt aust-
ur á Mýrdalssand, um sextíu kíló-
metra frá gosstöðvunum. Erfitt sé
þó að átta sig á hvað er öskufall og
svo aska að fjúka.
Elísabet Ólafsdóttir, sem býr við
Hátún í Vík, segir ástandið óþol-
andi og að hún hafi ekkert farið út
fyrir hússins dyr. „Þetta er ógeðs-
legt. Það er öskulag hér yfir öllu
og maður er að verða hálfvitlaus á
því að hafa ekki ferskt loft,“ segir
Elísabet, sem er áttræð.
Berglind Guðmundsdóttir, íbúi
við Bakkabraut, ákvað í gær að
fara frá Vík og vera hjá vinafólki
í Reykjavík. Litli sonur hennar,
Guðmundur Atlas, verður hjá afa
sínum og ömmu á Laugarvatni.
„Hann tekur þessu vel og finnst
það hálfgert sport að vera með
grímuna sína.“ Berglind hefur ekki
ákveðið hvenær hún fer heim; um
það hafi Eyjafjallajökull mest að
segja. Margt af hennar fólki var
farið frá Vík seinni partinn í gær.
Björn Oddsson jarðeðlisfræð-
ingur segir að gosmökkurinn
hafi risið hæst um sjö kílómetra
og stefndi þá í suðaustur. Ekki sé
aukinn styrkur í gosinu þótt það sé
kannski tilfinning þeirra sem búa
á öskufallssvæðinu. Reyndar hafi
sprengivirkni líklegast minnkað
frá því deginum áður. Gígur hleðst
áfram upp í kringum gosopið í
ískatlinum og hraunstraumurinn
til norðurs er á svipuðum slóðum
og undanfarna daga.
svavar@frettabladid.is
Vík í Mýrdal eins og
draugabær í gærdag
Tugir manna flúðu heimili sín í Vík í Mýrdal í gær vegna mikils öskufalls.
Öskufjúk eykur á vandann. Fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar í Vík og á
Kirkjubæjarklaustri. Almannavarnir ráðleggja þeim sem geta að fara.
ASKA Í SÓLHEIMAHJÁLEIGU Þau Margrét Þrastardóttir og Jóhann Bragi Magnússon
létu ekki öskumökkinn stoppa sig í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TYRKLAND, AP Tyrkneska þingið samþykkti í
gær stjórnarskrárbreytingar sem gagnrýn-
endur segja til þess ætlaðar að styrkja völd
ríkisstjórnarinnar á kostnað dómsvaldsins.
Stjórnin fékk þó ekki nægilega mikið
fylgi við breytingarnar til þess að þær taki
gildi fyrr en þær hafa verið bornar undir
þjóðina. Líklega mun því forseti landsins
efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja
fyrirkomulagið í sumar.
Dómsvaldið hefur frá stofnun tyrkneska
lýðveldisins árið 1923 látið veraldleg sjónar-
mið vera ráðandi, en núverandi stjórn, sem
komst til valda árið 2003, er hins vegar byggð
á íslömskum grunni. Stjórnin segir hins vegar
breytingunum ætlað að styrkja lýðræðið í
landinu, efla rétt kvenna og barna og tryggja
persónuvernd. Stjórnin hefur áður takmarkað
völd hersins, sem styður ákaft hina verald-
legu undirstöðu ríkivaldsins og hefur fjórum
sinnum bylt ríkisstjórnum síðan 1960.
Breytingarnar fela meðal annars í sér að
hægt sé að draga herforingja fyrir borgara-
lega dómstóla frekar en herdómstóla. Lík-
legt þykir að stjórnarskrárbreytingarnar
verði samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu,
því Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra
nýtur mikils fylgis meðal landsmanna. - gb
Umdeild stjórnarskrárbreyting í Tyrklandi sögð styrkja stjórn Erdogans:
Tyrkneska þingið dregur úr völdum dómara
ATKVÆÐI GREIDD Á ÞINGI Recep Tayyip Erdogan
forsætis ráðherra og félagar hans á þingi greiða atkvæði
um stjórnarskrárbreytinguna. NORDICPHOTOS/AFP
■ Ráðlegt er að þeir sem eiga þess kost dvelji ekki á svæði þar sem öskufall
er vel sýnilegt en þeir sem þurfa að dvelja á öskufallssvæðum haldi sig
sem mest innanhúss.
■ Dragið úr öskumagni innanhúss með því að þétta glugga með límbandi.
Ösku sem fellur innanhúss er mikilvægt að hreinsa upp jafnóðum.
■ Gæta skal þess að þyrla upp eins litlu af gosösku og mögulegt er þar sem
hún hefur fallið.
■ Úti við er mikilvægt að nota grímur og augnhlífar. Eiga þarf birgðir af
grímum og skipta reglulega. Hægt er að nálgast grímur á heilsugæslu-
stöðvum á öskufallssvæðum, fjöldahjálparstöðvum og í þjónustumiðstöð-
inni í Heimalandi.
■ Akstur þyrlar upp ösku og því er mikilvægt að aka ekki nema nauðsyn
krefji og gæta þess að halda ökuhraða í lágmarki.
Tilmæli Almannavarna vegna öskufalls
TÆKNI Ísland er öruggt land. Við
höfum staðreyndir til að sanna það
en verðum að sýna umheiminum
fram á það, að sögn Þorvaldar E.
Sigurðssonar, ráðgjafa og fyrrum
framkvæmdastjóra Verne Holding,
sem vinnur að byggingu gagnavers
að Ásbrú á Reykjanesi.
Þorvaldur flutti erindi á afmælis-
ráðstefnu Opinna kerfa þar sem
hann fór yfir ástæður og kosti þess
að reisa hér gagnaver.
Ísland hefur ýmsa kosti umfram
önnur lönd þar sem gagnaver hafi
verið reist, að mati Þorvaldar.
Öðru fremur skipti máli að hér
geti fyrirtæki tryggt örugga, stöð-
uga og endurnýjanlega raforku á
samkeppnishæfu verði til langs
tíma. Hann nefndi að raforkuverð
geti sveiflast mikið í Bandaríkjun-
um auk þess að á sumum stöðum
þar í landi verði fólk að haga lífi
sínu í takt við raforkuframleiðsl-
una. Það þurfi ekki að gera hér.
Þorvaldur gagnrýndi frétta-
flutning af gosinu á Eyjafjallajökli
og sagði útlendinga halda að hér
sé allt í kalda koli. Þótt gosið hafi
vissulega valdið mikilli röskun á
millilandaflugi sé það tímabundið
ástand. Miklu máli skiptir að hefja
starfsemi í gagnaveri Verne Hold-
ing að Ásbrú. Aðeins þannig verði
útlendingum sýnt fram á öryggið
hér, að sögn Þorvaldar. - jab
ÞORVALDUR Mikilvægt er að koma
gagnaveri Verne Holding á Reykjanesi
í gagnið, að sögn fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hagkvæmt og öruggt að reisa hér gagnaver, segir Þorvaldur E. Sigurðsson:
Bestu samningarnir fást hér
KJÖRKASSINN