Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 8. maí 2010 11
VIÐSKIPTI Lífeyrissjóður starfs-
manna sveitarfélaga eignaðist
Svarfhólsvöll við Ölfusá á upp-
boði hjá sýslumanninum á Sel-
fossi á miðvikudag.
Greint er frá þessu í Sunn-
lenska fréttablaðinu. Þar segir að
auk þess eignaðist sjóðurinn um
200 hektara lands í landi Laugar-
dæla í Flóa og skika úr landi Upp-
sala. Eignin var slegin á 290 milj-
ónir króna, en áhvílandi skuldir
námu um 1,5 milljörðum króna.
Um er að ræða svæði í útjaðri
Selfoss sem VBS fjárfestinga-
banki og Ferjuholt ehf., bygging-
araðilar tengdir bankanum, hugð-
ust skipuleggja byggð á fyrir um
sex til sjö þúsund íbúa.
Starfsmenn sveitarfélaga:
Lífeyrissjóður
eignast golfvöll
FERÐAMÁL „Það stefnir allt í
enn frekari fjölgun á komum
skemmtiferðaskipa til Reykjavík-
ur í sumar. Við erum með bók-
aðar um 120 viðkomur skemmti-
ferðaskipa til landsins, þar af um
40 til Reykjavíkur,“ er haft eftir
Birni Einarssyni, framkvæmda-
stjóra TVG-Zimsen, í tilkynningu
fyrirtækisins.
TVG-Zimsen sér nú í fyrsta
skipti um að þjónusta skemmti-
ferðaskip á Íslandi undir nafni
TVG Zimsen - Eimskip Cruise
Agency. „Tæplega 72 þúsund
farþegar heimsóttu Ísland með
skemmtiferðaskipum á síðasta
ári sem var 16 prósenta aukning
frá árinu 2008. Nú í ár má því
búast við enn fleiri ferðamönnum
sem koma sjóleiðina til landsins,“
segir í tilkynningunni. - óká
Ný þjónusta TVG-Zimsen:
Skemmtiferða-
skipum fjölgar
Í REYKJAVÍKURHÖFN Von er á fleiri
skemmtiferðaskipum hingað til lands en
í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
INNBROT Brotist var inn í apótek
við Suðurgötu í Keflavík í gær-
morgun. Ekki liggur fyrir hvort
einhverju var stolið.
Þjófurinn var á bak og burt
þegar lögregla kom á vettvang.
Hann fannst hins vegar skömmu
síðar, drukkinn og dópaður, á
bekk í skrúðgarðinum og naut
þar morgunblíðunnar. Engin lyf
fundust á honum og ekki er ljóst
hvort hann hefur stolið einhverju
og falið það, áður en lögregla
skarst í leikinn. Maðurinn verður
yfirheyrður í dag.
Innbrot í apótek í Keflavík:
Þjófurinn fannst
í skrúðgarðinum
MANNRÉTTINDI Mannréttinda-
samtökin Amnesty International
krefjast þess að rétturinn til fund-
ar- og tjáningarfrelsis sé virtur
í Litháen. Samkynhneigðir mæta
miklu andstreymi í aðdraganda
Gleðigöngu, sem fyrirhugað er að
halda í Vilníus í dag.
„Amnesty International krefst
þess að þátttakendur í Gleðigöng-
unni njóti fyllsta öryggis og að
rétturinn til tjáningar- og fundar-
frelsis sé virtur að fullu,“ segir í
tilkynningu frá samtökunum.
Mótmæli í Eystrasaltslöndum:
Gleðiganga fái
að fara fram
STJÓRNMÁL Erfið staða í fjármálum sveitar-
félaga gæti valdið sitjandi meirihlutum vand-
ræðum í komandi sveitarstjórnarkosningum,
og valdið þeim fylgistapi, segir Grétar Þór
Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við
Háskólann á Akureyri.
Grétar hélt erindi um sveitarstjórnarkosn-
ingarnar, sem fram fara 29. maí næstkom-
andi, á fundi Félags stjórnmálafræðinga við
Háskóla Íslands í gær.
Grétar sagði þar stefna í fremur slaka
kosningaþátttöku, sérstaklega í þeim sveitar-
félögum þar sem einungis Framsóknarflokk-
ur, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Vinstri
græn eru í framboði.
Búast má við ívið betri kosningaþátttöku
í sveitarfélögum þar sem val er um önnur
framboð sem tekið geta við óánægjufylgi.
Gott dæmi um það er Besti flokkurinn, sem
býður fram í Reykjavík, segir Grétar.
Hann segir að athygli veki að ríflega 40
prósent þeirra sem tóku þátt í skoðanakönn-
un Fréttablaðsins og Stöðvar 2 í Reykja-
vík nýverið hafi ekki tekið afstöðu. Tæplega
fjórðungur til viðbótar segist ætla að kjósa
grínframboð. Aðeins þriðjungur segist ætla
að kjósa það sem kalla megi hefðbundna
stjórnmálaflokka.
Þetta endurpeglar óánægju kjósenda með
hefðbundna stjórnmálaflokka, segir Grétar.
Flokkarnir hafi trúlega aldrei notið minna
trausts en nú. - bj
Fylgi við grínframboð sýnir óánægju með aðra flokka, segir stjórnmálafræðingur:
Fjármálin eru sitjandi meirihlutum erfið
GRÍN Stuðningur við Jón Gnarr og Besta flokkinn er
mun meiri en við hefðbundin grínframboð, sem sýnir
óánægju kjósenda með hefðbundna stjórnmálaflokka
segir prófessor í stjórnmálafræði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON