Fréttablaðið - 08.05.2010, Page 12
8. maí 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Verður kosningafyrirkomulaginu
breytt?
Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra
demókrata, er kominn í þá stöðu
að geta valið með hverjum hann
vill stjórna. David Cameron, leið-
togi Íhaldsflokksins, hefur gefið
loforð um að helstu kosningamál-
um frjálslyndra verði gert hátt
undir höfði í stjórnarsáttmála
samsteypustjórnar þeirra.
Gordon Brown, forsætisráð-
herra og leiðtogi Verkamanna-
flokksins, bíður álengdar og hefur
einnig lofað frjálslyndum öllu
fögru fari viðræður Camerons og
Cleggs út um þúfur.
Clegg hefur ekki viljað gefa
nein svör, önnur en þau að sá
flokkur sem flesta þingmenn
fékk eigi rétt á að reyna fyrst að
mynda stjórn. Hann bíður þess
að heyra nánar í hverju tilboð
Camerons er fólgið.
Úrslitum ræður væntanlega
hvor þeirra er tilbúinn til að ganga
lengst í kjördæmamálinu, enda
gæti breytt kosningafyrirkomu-
lag gert langþráðan draum Frjáls-
lyndra demókrata að veruleika:
að verða einn af stóru flokkun-
um þremur í staðinn fyrir að sitja
fastur í hlutverki þriðja flokksins
sem engu ræður.
Úrslit þingkosninganna á
fimmtudag voru vonbrigði fyrir
alla leiðtoga þessara þriggja
flokka, en líklega þó mest fyrir
Nick Clegg því fyrir aðeins fáum
vikum leit út fyrir að honum
myndi takast að breyta landslagi
breskra stjórnmála með því að
gera flokk sinn að jafnoka hinna
tveggja.
David Cameron getur að vísu
fagnað því að hafa fengið flest
atkvæði og um leið flest þingsæti,
en hann náði ekki meirihluta eins
og honum hafði þó verið spáð lengi
vel.
Gordon Brown forsætisráðherra
harmar að hafa misst þingmeiri-
hluta stjórnar sinnar, en gerir
sér enn vonir um að geta haldið
áfram að stjórna með Clegg sér
við hlið. Samanlagður þingstyrk-
ur þeirra dugar þó ekki til, og því
þyrftu einhverjir smáflokkanna
að koma til liðs við hugsanlega
stjórn þeirra – og óvíst með öllu
hvort af því yrði.
Eins og fyrri daginn hafði kosn-
ingafyrirkomulagið veruleg áhrif
á útkomu allra flokkanna. Þannig
bættu frjálslyndir í reynd við sig
einu prósenti atkvæða frá kosn-
ingunum 2005, en misstu samt
fimm þingsæti.
Íhaldsflokkurinn fékk ekki
nema fjórum prósentum meira en
í síðustu kosningum, en fékk samt
97 þingmönnum fleira en síðast,
og Verkamannaflokkurinn missti
91 þingmann þótt hann hefði ekki
tapað nema sex prósentum.
Þetta skýrist af því að kosið er í
einmenningskjördæmum, þar sem
sá flokkur sem flest atkvæði fær í
kjördæmi fær jafnframt þingsæti
þess kjördæmis.
Þessu fyrirkomulagi vill
Frjálslyndi flokkurinn fyrir alla
muni breyta. Þrátt fyrir fögur
orð Camerons er þó ekki víst að
Íhaldsflokkurinn sé í reynd tilbú-
inn til að ganga langt til móts við
sjónarmið frjálslyndra í þessum
efnum, því breytt kosningafyrir-
komulag gæti sem hægast haft í
för með sér að langt verði þang-
að til íhaldsmenn komist aftur í
stjórn.
Eftir kosningarnar á fimmtudag
eiga flokkarnir ekki aðra kosti en
að mynda samsteypustjórn eða
minnihlutastjórn. Síðast var gerð
tilraun til slíks árið 1974 þegar
Harold Wilson stjórnaði minni-
hlutastjórn Verkamannaflokksins.
Sú tilraun entist ekki nema fáeina
mánuði, en þá þurfti að efna til
kosninga á ný. gudsteinn@frettabladid.is
Clegg vill sjá hvað
Cameron býður
Gordon Brown gefur David Cameron kost á að mynda stjórn með Nick Clegg,
en segist reiðubúinn til að reyna stjórnarmyndun ef Cameron nær ekki árangri.
Kjördæmamálið ræður væntanlega úrslitum í stjórnarmyndunarviðræðum.
BÍÐUR ÁTEKTA Gordon Brown átti ekki annan kost en að gefa David Cameron færi á að spreyta sig á stjórnarmyndun.
NORDICPHOTOS/AFP
Á nokkrum stöðum í Bretlandi varð kjörsókn meiri en starfsfólk kjörstaða
réð við. Afleiðingin varð sú að nokkuð stór hópur þurfti frá að hverfa þegar
kjörstöðum var lokað. Biðraðirnar voru einfaldlega of langar.
Samkvæmt breskum kosningalögum verða kjósendur að hafa fengið kjör-
seðil í hendurnar fyrir klukkan 22. Þeim sem komast ekki að er einfaldlega
vísað frá.
Í London, Sheffield, Birmingham og víðar komu hópar fólks saman til að
mótmæla þessu.
„Það er gríðarlega mikið af reiðu fólki hérna,“ sagði einn mótmælenda í
London, sem hafði verið vísað frá kjörstað eftir að hafa staðið lengi í biðröð.
„Þetta er algert hneyksli.“
Margir fengu ekki að kjósa
Breska þingið Þingsæti Breyting Atkvæðahlutfall
Íhaldsflokkurinn 306 +97 36%
Verkamannaflokkurinn 258 -91 29
Frjálslyndir demókratar 57 -5 23
Flokkur lýðræðislegra sambandssinna (N-Írland) 8 -1 0,6
Skoski þjóðarflokkurinn (Skotland) 6 0 1,7
Sinn Fein (N-Írland) 5 0 0,6
Plaid Cymru (Wales) 3 +1 0,6
Sósíaldemókrata- og Verkamannaflokkurinn (N-Írland) 3 0 0,4
Græningjar 1 +1 1,0
Bandalagsflokkurinn (N-Írland) 1 +1 0,1
Kosningu frestað 1
Úrslit þingkosninganna
Skotland
Verkamannaflokkurinn 41
Frjálslyndir demókratar 11
Skoski þjóðarflokkurinn 6
Íhaldsflokkurinn 1
Norður-Írland
Flokkur lýðræðislegra
sambandssinna 8
Sinn Fein 5
Sósíaldemókrata- og
Verkamannaflokkurinn 3
Bandalagsflokkurinn 1
Aðrir 1
Wales
Verkamannaflokkurinn 26
Íhaldsflokkurinn 8
Frjálslyndir demókratar 3
Plaid Cymru 3
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
Mæðradagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur
á Íslandi árið 1934. Siðurinn er sóttur til Banda-
ríkjanna þar sem dagurinn var fyrst haldin hátíð-
legur opinberlega árið 1914,
þann 9. maí.
Það var atorkusöm kona,
Anna Marie Jarvis, sem
kom deginum á en hún
vildi minnast móður
sinnar. Víða um heim
tíðkast að kaupa blóm handa mæðrum á
mæðradaginn. Bjóddu mæðrum upp á rjúkandi
BKI kaffi á mæðradaginn.
BKI Classic
Mömmur og góðar minningar eru allt í kringum
okkur, kysst á bágtið, knús fyrir háttinn og
dýrmætt hrós fyrir vel unnið verk. Njóttu dagsins
og faðmlagsins og rifjaðu upp minningarnar.
Tilvalið tækifæri fyrir mjúkt BKI kaffi.
Kauptu gott BKI kafffi.
Það er kominn tími fyrir BKI kaffi.
Mæðradagurinn er
á morgun.
Fagnaðu
mæðradeginum
með BKI kaffi
Mæðradagurinn er á morgun
Kauptu BKI fyrir
mæðradaginn
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir.