Fréttablaðið - 08.05.2010, Qupperneq 16
16 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Hvernig er Landspítalinn búinn tækjum?
SVAVAR HÁVARÐSSON
svavar@frettabladid.is
Fyrrverandi yfirlæknir hjarta-
deildar telur að tækjamál Land-
spítalans séu helsti veikleiki hans.
Mörg stærri lækningatæki hefa
hærri meðalaldur en ásættanlegt
getur talist. Sambærilegar stofnan-
ir á Norðurlöndunum eru margfalt
betur settar, og vart hægt að bera
saman íslenskan raunveruleika í
því samhengi.
Björn Zoëga, forstjóri LSH, og
Ólafur Baldursson, framkvæmda-
stjóri lækninga, hafa lýst áhyggj-
um af því að fjárveitingar hafa ekki
fengist frá ríkinu til eðlilegrar end-
urnýjunar á tækjabúnaði spítalans.
Kallað er eftir skilningi fjárveit-
ingavaldsins svo halda megi uppi
því þjónustustigi sem Íslendingar
telja ásættanlegt. Björn orðar það
svo að spítalinn sé kominn í gjald-
þrot hvað varðar tækjakaup.
Lækningatæki á Landspítala
Að ósk Fréttablaðsins vann Land-
spítalinn samantekt um lækninga-
tæki á spítalanum og hvernig fjár-
veitingar til tækjakaupa hafa þróast
á undanförnum fimmtán árum.
Samantektin sýnir hversu umfang
starfseminnar er mikil og við hvað
er að eiga þegar harðnar á dalnum
í efnahagslegu tilliti.
Skráð lækningatæki í notkun
á Landspítala eru nú um 11.930
talsins. Heildarendurnýjunarverð
þeirra er um átta milljarðar, en
heildarkaupverð er 4,9 milljarðar.
Ódýrustu tækin kosta frá einhverj-
um þúsundum eða tugþúsundum
króna en þau dýrustu yfir 300 millj-
ónir króna. Meðalaldur tækjanna í
dag er rúm átta ár. Mörg tæki eru á
viðunandi aldri en mörg stærri tæki
eru með hærri meðalaldur.
Tækjakaup og framlög á fjárlögum
Framlag til kaupa á lækningatækj-
um fyrir Landspítala hafa lækkað
umtalsvert í krónutölu frá samein-
ingu LSH og Sjúkrahúss Reykja-
víkur (Borgarspítala) árið 2000
til dagsins í dag. Eftir sameiningu
var ljóst að umtalsverða fjármuni
þurfti til bæði nýkaupa og endur-
nýjunar á lækningatækjum. Fram-
kvæmdastjórn og forstjóri LSH
töldu á þeim tíma að það væri for-
gangsmál að fá meira fjármagn til
þessara þátta og yrði leitað eftir því
á næstu árum. Það gekk hins vegar
ekki eftir og greiðslur fyrir leigu á
tækjum, sem gripið var til í neyð,
hafa síðan tekið æ stærri hluta af
fjárveitingu hvers árs. Því er búið
að ráðstafa hluta af fjárframlagi til
tækjakaupa til ársins 2014 og vegna
gengishrunsins fer öll fjárveiting
þessa árs og næsta árs til greiðslu
leigusamninga.
Spítalinn hefur vegna þessa ekki
haft fjárveitingu fyrir kaupum á
stærri tækjum í nokkur ár og árið
2009 voru eingöngu keypt tæki sem
bráðakaup fyrir um 25 milljónir
króna en forgangsraðaðar beiðnir
innan sjúkrahússins voru um 450
milljónir króna.
Fjárveiting og endurnýjun lækninga-
tækja
Fjöldi lækningatækja í notkun kall-
ar á endurnýjun í einhverjum mæli
á hverju ári auk þess sem tæki
úreldast og ný tækni kemur á mark-
að fyrir meðferð og greiningu sjúk-
dóma auk nýrrar starfsemi. Verk-
lag í klínískri starfsemi breytist
og kallar á nýja tækni sem var
ekki notuð áður og búnaður verður
óhagkvæmur í rekstri og kallar á
breytingu vegna hagkvæmni.
Á Landspítala fer fram mikið
af starfsemi sem ekki er til staðar
annars staðar í heilbrigðiskerfinu
hér á landi og í mörgum tilfellum
reiðir starfsemin á landsvísu sig á
tækjabúnað LSH, og má þar nefna
röntgendeild, skurðstofur, gjör-
gæslu og rannsóknarstofur. Skiptir
því miklu að rétt tæki séu til staðar
og þau í lagi. Umfangsmikil starf-
semi er innan LSH vegna þjónustu
við tækin, bæði reglubundið eftirlit
og einnig bráðaviðhald. Rík áhersla
er lögð á að tæki í klínískri notkun
séu í lagi og starfi eðlilega.
Lækningatæki eru nauðsynlegur
hluti fyrir starfsemi LSH en fjár-
magn til endurnýjunar er aðeins
lítið brot af heildarrekstri spítalans.
Fjárveiting fyrir lækningatæki er
nú um 0,6 prósent af fjárveitingu til
rekstrar LSH og er það mun lægra
en er á sambærilegum sjúkrahúsum
á Norðurlöndum.
Í athugun frá 2002, frá nokkr-
um helstu háskólasjúkrahúsum á
Norðurlöndunum sem sinna sam-
bærilegum rekstri og Landspítali,
er hlutfall fjárveitingar til tækja-
kaupa á móti fjárveitingu til rekst-
urs frá 1,8 prósentum til 3,2 pró-
senta. Það ár var fjárveitingin 0,8
prósent á LSH. Hlutfallið hefur
engu síður lækkað á undanförnum
árum. Hlutfallið fyrir árið 2009 var
um 0,53 prósent og verður um 0,68
prósent fyrir árið 2010.
Landspítali er því að fá hlut-
fallslega mun minna til tækja-
kaupa en sambærileg sjúkrahús á
Norðurlöndunum. Þörfin fyrir end-
urnýjun er hins vegar jafnmik-
il hér og á þeim sjúkrahúsum sem
samanburðurinn nær til.
Helsti veikleikinn
Ólafur Baldursson, framkvæmda-
stjóri lækninga, sagði í viðtali við
Fréttablaðið fyrir stuttu að stað-
an væri mikið áhyggjumál. Það sé
orðin veruleg þörf á venjulegum
lækningatækjum. Þar má nefna
öndunarvélar, ómtæki og línu-
hraðal, sem kostar til dæmis um
300 milljónir í stofnkostnað. „Með
hverju árinu sem líður verður
þessi þörf sífellt meiri og þá erum
við ekki að tala um neinar nýjung-
ar,“ sagði Ólafur og bætti við að
samfélagið verði að gera upp við
sig hvort kaupa á nýjustu tækni til
landsins eða hvort senda eigi fólk til
rannsókna til útlanda.
Guðmundur Þorgeirsson, próf-
essor í lyflækningum við Háskóla
Íslands og fyrrverandi forstöðu-
maður hjartadeildar LS, telur að
tækjamál LSH séu helsti veikleiki
spítalans. Hann segir að mann-
afli, skipulag þjónustu, rannsókn-
ir, kennsla og jafnvel húsakosturinn
geri LSH að þeirri öflugu stofnun
sem menn þekki. Það sé því úr takti
að kaup og endurnýjun á tækjakosti
spítalans sé háð þeim annmörkum
sem raun ber vitni.
Stóraukin framlög
þarf til tækjakaupa
Lækningatæki samkvæmt lagaskilgreiningu:
■ Hvert það verkfæri, búnaður, áhald, efni (þó ekki lyf) eða annar hlutur,
notað eitt sér eða með öðru, ásamt hugbúnaði sem þarf til að tækið
starfi rétt, sem framleiðandi ætlar til notkunar fyrir menn til þess að:
a. greina, hindra, athuga, meðhöndla eða lina sjúkdóma,
b. greina, hafa eftirlit með, meðhöndla, draga úr eða bæta líkamstjón,
fötlun eða skerta getu,
c. rannsaka, breyta eða koma í stað líffæris eða lífeðlisfræðilegrar starf-
semi,
Lækningatæki - skilgreiningKRAFT YOGA/FRAMHALDS YOGA GOTT FYRIR ALLA OG UPPLAGT FYRIR HLAUPARA
Komum sterk inn í sumarið
Áhersla lögð á aukinn kraft, miklar teygjur, rétta öndun
og góða slökun.
Kennt í Drafnarhúsinu Hafnarfi rði (Sjúkraþjálfarinn)
Sanngjarnt verð
Skráning og upplýsingar í síma 6910381
Flugtímabil: 4. maí –20. júní
Bókunartímabil: 4.–11. maí
10.000 kr.
afsláttur
Sumargjöf
Afsláttarkóði:
IEX0502
með ánægju
www.icelandexpress.is
Allar nánari upplýsingar um afsláttinn á www.icelandexpress.is
Bókaðu núna!
Jeppi
TIL SÖLU
Dana 60 fr & aft / Milligír / Tölvukubbur / HL:5:38 / Loftkerfi /
Gormar fr & loftpúðar aftan / Spil / Bedlock felgur / o. fl.
Toyota LC 120 / 2007 / 46” dekk
Ásett verð kr. 11,9 m / Nánari upplýsingar í síma 898-4988
ALVÖRU
Óska eftir að kaupa íslenskt – enskt
Lingapone námskeið.
Námskeið sem samanstendur að einni stórri bók sem á stendur Íslenskt enskt
Lingapone námskeið. Kassa og kassettur. Ég borga 40.000 fyrir námskeiðið
Upplýsingar síma 865-7013
Eiríksstaðir
Blóðbanki
Hringbraut
Læknagarður
Geðdeild Hr.
Eskihlíð 6a
Ægisgata 26
Landakot
Öldugata 17
Skjalageymsla
Grensás
Fossvogur
Gautland 11
Hátún 10
Ármúli 1a
Flókagata 62
Lágmúli 9
Rauðilækur 36
Dalbraut
Kleifarvegur 15
Kleppur
Laugarásvegur 71
Ljósheimar 22
Starfsemi Landspítalans í Reykjavík
Flókagata 29, 31
STARFSEMI Á 33 STÖÐUM Tækjamál LSH verður að skoða í ljósi þess hversu starfsemin er dreifð. Nýtt háskólasjúkrahús mun
spara stórar upphæðir vegna hagræðis, og á það ekki síst um betri nýtingu tækja og búnaðar. Sem dæmi má nefna að tvennt
þarf af ýmsum dýrum tækjum vegna skiptingar á milli starfseminnar í Fossvogi og við Hringbraut.
Hvítabandið Skúlagata 10 Rauðarárstígur 31
Lokastígur 16 Leifsgata 5 Rauðarárstígur 33
Þverholt 18
Reynimelur 55
M
YN
D
/BYG
G
Ð
Á
U
PPLÝSIN
G
U
M
FR
Á
LA
N
D
SPÍTA
LA