Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 26
26 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
Ákæru á hendur níu mótmæl-endum vetrarins 2008 til 2009
er ekki aðeins beint gegn lækna-
nemanum, myndlistarmanninum,
leikskólakennaranum, líftækni-
fræðingnum eða öðrum aðgerða-
sinnum í hópi sakborninga. Hún
beinist gegn öllum þeim sem líta
svo á að vald ríkisins sé háð vilja
fólksins.
Sextán ár
Þvert á það sem ætla mætti af
ónákvæmum fréttaflutningi
flestra miðla snýst meginákær-
an ekki um bætur fyrir tognað-
an þumal þingvarðar eða að í
ryskingum var bitið í eyra lög-
reglumanns. Það er ekki fyrir
þetta sem allt að 16 ára fangelsis-
dómur vofir yfir níu manns, held-
ur fyrir brot á 100. grein hegning-
arlaga, fyrir „árás á Alþingi“. Í
hverju fólst „árásin“? Jú, að ætla
að hafa háreysti á opnum þing-
pöllum, í mótmælaskyni. Þing-
verðir lokuðu pöllunum, og mein-
uðu fólkinu aðgang. Lögregla var
send á vettvang, króaði fólkið af í
stiganum en hleypti því loks út.
Að þetta atvik feli í sér árás á
Alþingi, en það geri til dæmis ekki
búsáhaldabyltingin í janúar 2009,
þegar þúsundir rufu þinghald svo
þingmenn voru fluttir burt í lög-
reglufylgd og ríkisstjórn féll, er
taktísk túlkun atburða, ákvörðun
um að ráðast á garðinn þar sem
hann er lægstur. Ásetningurinn
með ákærunni er útskúfun og
refsing fárra, sem hótun til allra
þeirra sem gætu viljað byrsta sig
á ný.
Einu sinni áður hefur verið
ákært fyrir árás á Alþingi: eftir
mótmælin við þinghúsið 30. mars
1949. Það var „trylltur hvítliða-
skríll“ samkvæmt Þjóðviljanum
sem þá fékk lögreglukylfur til að
berja „trylltan kommúnistaskríl“,
að sögn Morgunblaðsins. Tuttugu
mótmælendur voru ákærðir og
dæmdir. Sex þeirra misstu kosn-
ingarétt og kjörgengi. Um síðir
var þeim öllum veitt full sakar-
uppgjöf, enda dómurinn skýrt
mannréttindabrot. Tyftunin ent-
ist hins vegar í tæpan mannsald-
ur: þátttaka í mótmælum varð
ekki almenn á ný þar til haustið
2008. Að stjórnvöld fari fram í
órétti dregur þannig ekki úr getu
þeirra til að kæfa andóf, brjóta
vilja og vanvirða líf.
Sviðsetning valdsins
Um miðjan apríl 2010 mættu eitt
hundrað manns á áhorfendabekk
í héraðsdómi til að fylgjast með
framvindu dómsmálsins: mættu,
horfðu, hlustuðu og þögðu.
Dómari ákvað að við þetta yrði
ekki unað. Þegar rétturinn kom
næst saman, 30. apríl, hafði dóm-
ari takmarkað hverjir mega nýta
sér stjórnarskrárvarinn rétt til
að sækja opin réttarhöld: Þeir 25
sem fá sæti. Fjölmennt lögreglu-
lið var á staðnum, til að sviðsetja
það sem Stefán Eiríksson lög-
reglustjóri nefndi síðar um dag-
inn „leikrit“. Hlutverk lögreglu
var að hleypa réttarhaldinu upp
með því að handtaka tvo áhorf-
endur í salnum fyrir að vera
tveimur of margir. Öllum var
brugðið. Sumir grétu. „Þið leikið
ykkar hlutverk,“ sagði lögreglu-
stjóri að viðstöddum útvarps-
manni, „við leikum okkar“. Verj-
andi fór þess á leit við dómarann
að fenginn yrði stærri salur næst
til að lögregla héldi ekki áfram að
græta gesti réttarins að ósekju.
Dómarinn svaraði: „Hér inni er
það ég sem ræð,“ tók upp símtól,
hringdi í afgreiðslu dómstólsins,
heilsaði ritaranum og sagði: „Ætl-
arðu að taka frá sama sal fyrir
mig 12. maí.“
Plastdolluríkið
Guðmundur Andri Thorsson birti
á dögunum grein þar sem hann
rifjaði upp skýrslu forsætisráðu-
neytisins um „ímynd Íslands“ frá
vorinu 2008, ímynd sem skyldi
efla undir kjörorðinu „Kraftur,
friður, frelsi“. Í greininni sagði
hann skýrsluna og ásetning-
inn að baki vera til marks um
fasisma. Greinina nefndi hann
raunar „Fasisminn í hlaðinu“.
Þessu orði hefur ekki verið beitt
á prenti, um íslenskar valda-
stofnanir, langalengi. Guðmund-
ur Andri sagðist feginn því að
„áhugaleysi um sannleika, ást á
klisjunni,“ væri liðin tíð. En það
er hún ekki.
Í byrjun maí kynnti iðnaðarráð-
herra markaðsátak til að bregðast
við ímyndarskaðanum sem gos
undir Eyjafjallajökli hefur valdið
Íslandi. 700 milljón króna áætlun-
in miðast við að nýta „tengslanet
almennings“ og fá alla Íslend-
inga til að „segja söguna eins og
hún er – vinum okkar, samstarfs-
fólki og kunningjum í öðrum
löndum … kynna kraftinn í stór-
brotinni náttúru okkar, náttúr-
unni sem hefur gert okkur að því
sem við erum.“ Til að „sýna hver
við raunverulega erum og hvern-
ig daglegt líf gengur fyrir sig á
Íslandi“. Það ætti ekki að koma á
óvart að þetta verkefni, og önnur
framundan, grundvallast á hug-
myndum skýrslunnar vandræða-
legu og hálf-fasísku. Áhugaleysi
um sannleika, ást á klisjunni. Ef
við stundum líf okkar sem Tupp-
erware-kynningu, getum við nú
grætt á daginn og á kvöldin.
Farsinn í hlaðinu
Auðvitað heitir það ekki lygi að
lofa vöru, heldur ímyndarsköp-
un. Það væri því ónákvæmt að
tala um lygara, en þeir sem leggja
harðast að sér við sköpun ímynda
eiga stundum erfitt með að horfast
í augu við raunveruleikann. Lík-
lega voru ráðherrar að fara yfir
plastdollukynninguna á ríkis-
stjórnarfundinum hinn 30. apríl,
á meðan áhugafólki um réttarfar
var vísað frá sýningu vegna sæta-
skorts. Vegna þess að þar með var
fólk á torginu þótti rétt að lauma
ráðherrum bakdyramegin út úr
Stjórnarráðinu og flytja þá burt
í lögreglufylgd.
Kannski eru stjórnvöld bara
að grínast. Endurflytja gamlan
harmleik sem farsa. Kannski segir
dómarinn bara „Djók!“ þann 12.
maí, þegar rétturinn kemur næst
saman. Ef ekki gæti þetta orðið
ansi kostnaðarsamt. Þar sem sam-
eiginlegur orðaforði ráðamanna
snýst um plastdollur og peninga er
rétt að þýða þetta svo það skiljist:
pólitískar ofsóknir, mannréttinda-
brot og valdníðsla er ekki heppileg
fyrir ímynd landsins. Gæti kostað
monní, fleiri myndir af lundum,
sundlaugum og sætum húsum.
Til að dylja hver við raunveru-
lega erum og hvernig daglegt líf
gengur fyrir sig á Íslandi. Ljúga
hærra.
Að þetta atvik feli í sér árás á Alþingi, en það geri til dæmis ekki
búsáhaldabyltingin í janúar 2009, þegar þúsundir rufu þinghald
svo þingmenn voru fluttir burt í lögreglufylgd og ríkisstjórn féll, er
taktísk túlkun atburða, ákvörðun um að ráðast á garðinn þar sem
hann er lægstur
Réttlæti í plastdollu
Þjóðfélagsmál
Haukur Már
Helgason
rithöfundur og
heimspekingur
Hátt í 15.000 starfsmenn tóku þátt í stærstu
vinnumarkaðskönnun landsins og hlutu alls
40 fyrirtæki nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki
ársins 2010. Fyrirtæki af öllum stærðum og
gerðum mældust afar vel og óskum við þeim
innilega til hamingju.
Kynntu þér niðurstöðurnar í heild á www.vr.is.F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Vorum að taka upp stóra vinninginn