Fréttablaðið - 08.05.2010, Síða 27

Fréttablaðið - 08.05.2010, Síða 27
LAUGARDAGUR 8. maí 2010 27 Stundum býsnast menn mjög yfir því að Íslendingar geti lent í því, fari allt á enn verri veg en þegar er orðið, að hokra í menningarsnauðri verstöð á hjara veraldar. Þetta er auðvitað bara fullyrðing sem menn hafa kastað fram í hálfkæringi, en er þó nokkuð gott dæmi um held- ur dapurlegt gæðastig umræðunn- ar hérlendis. Eitt stærsta tækifæri Íslands nú um stundir felst nefni- lega meðal annars í því að efla fisk- veiðar og -vinnslu með vistvænum aðferðum. Til þess hafa Íslending- ar bæði þekkingu og tækni sem gæti gert þeim kleift að verða leið- andi í heiminum á þessu sviði. Gæðin aðalatriðið Sjávarútvegurinn og fisvinnslan leið, eins og fleiri atvinnugrein- ar hérlendis, fyrir þá frumstæðu hugsun að magnið eitt skipti máli, að veiða og vinna sem allra mest. Meira í dag en í gær, það var mæli- kvarðinn á framfarirnar. Áherslan færðist þar með frá því sem mestu máli skiptir: gæðunum. Fáránleg- ustu dæmin um þetta er það hvern- ig stundum var (og er) farið með hinn vandmeðfarna og dýrmæta uppsjávarafla, stór hluti hans fór í bræðslu í stað þess að vera frystur til manneldis eins og gert er meðal nágrannaþjóða okkar. Vistvænt hátækniríki Nú þegar tímar eru sem betur fer farnir að breytast er ef til vill tíma- bært að huga betur að því hvernig hægt er að gera enn meiri verð- mæti úr þeirri takmörkuðu auð- lind sem hafið er. Eitt af því væri að efla útflutning á ferskum afurð- um (unnum eða óunnum), nota mun háþróaðri kælingu og fersk- leikastýringu en gert hefur verið fram til þessa og stórauka þannig geymsluþol fersku afurðanna. Það myndi þýða að mun hærra og stöðugra verð fengist fyrir allar afurðir en nú er, því raunin er sú að með flestum þeim kæli- og flutn- ingaaðferðum sem nú eru notað- ar er fiskur frá Íslandi oft orðinn ansi gamall og lúinn, níu til fjórtán daga, þegar hann er settur á mark- að í Evrópu. Eða þá hann er fluttur út frystur, sem er ævinlega annars flokks hráefni, a.m.k. í Frakklandi, þar sem ég þekki best til. Til að yfirstíga þennan vanda er fiskur fluttur út í flugfragt sem er dýr flutningsmáti og óhagkvæm- ur, auk þess sem hann er síður en svo öruggur eins og nýleg dæmi sanna. Hins vegar eru nú þegar til frá- bærar kæliaðferðir og -tækni á Íslandi, aðferðir sem þýða gerbylt- ingu í gæðamálum og gera kleift að afhenda allt að tveggja vikna fisk ferskan og fínan sjóleiðis, en þær hafa af einhverjum ástæð- um sorglega lítið verið notaðar til að hámarka verðmæti ferskra afurða. Sennilega eru þarna að verki systurnar gömlu, Íhaldssemi og Vanahugsun. Fagurgræn kælitækni Gamli tíminn var hálfúldinn fiskur handa lágstéttarfólki í Englandi. Framtíðin er ferskur hágæðafisk- ur handa sterkefnuðum Evrópubú- um, Bandaríkjamönnum, Japönum og Kínverjum sem er umhugað um heilsuna og útlitið. Núna eru Íslendingar einhvers staðar mitt á milli gamla tímans og framtíðar- innar, mun styttra á veg komnir en þeir gætu verið, þar sem þessi nýja tækni hefur enn ekki verið nýtt sem skyldi. Forskotið á aðrar þjóð- ir sem hægt er að ná með þessari nýju tækni þarf, og ber, að nýta. Með tilkomu farsímans og nets- ins hefur orðið bylting í fjarskipt- um undanfarin ár, tími og fjar- lægðir hafa öðlast nýjar víddir og margt einfaldast. Með inn- leiðingu nýjustu kælistýringar- tækni og gæðastjórnunar gæti svipuð bylting átt sér stað á sviði sjávarafurða hérlendis, með til- heyrandi arðsemi. Hafi menn til að bera dug, þor og víðsýni til að nýta sér þá innlendu tækni sem þegar er til staðar til að hámarka verðmæti úr sjó á umhverfisvæn- an hátt gæti Ísland hæglega orðið leiðandi í heiminum á sviði fagur- grænnar kælitækni í sjávarútvegi og fiskvinnslu. Fagurgræn kælitækni Frjálslyndir í Kópavogi hafa gengið frá framboðslista fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar í Kópavogi. Fyrstu þrjú sætin eru þannig skipuð: 1. sæti skipar Helgi Helgason stjórnmálafræð- ingur, 2. sæti skipar Ásta Haf- berg varaformaður Frjálslynda flokksins og 3. sæti Kolbrún Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar. Listinn var kynntur á fundi á sumardaginn fyrsta. Ég lýsti því yfir á fundinum að ég myndi ekki taka sæti í stjórnum einkafyrir- tækja eða fjármálastofnana verði ég kjörinn bæjarfulltrúi. Það var líka mjög ánægjulegt að efstu menn listans voru sammála um að setja það á oddinn sem bar- áttumál framboðsins að innleiða íbúalýðræði. Tillögur framboðs- ins eru mjög skýrar í því efni, ólíkt öðrum framboðum. Frjáls- lyndir vilja innleiða það í bæjar- málasamþykkt Kópavogs að 25% kjósenda geti krafist kosninga um umhverfis- og skipulagsmál. Með þessu móti hefðu íbúar á Nónhæð, í Lundi í Fossvogi eða á Kársnes- inu getað varist þeirri valdníðslu sem núverandi meirihluti hefur viðhaft í skipulagsmálum á þess- um svæðum. Frjálslyndi flokk- urinn mun beita sér fyrir því að umhverfis- og skipulagsmál í bænum verði endurskoðuð frá grunni með það að markmiði að íbúar hafi meira um sitt nánasta umhverfi að segja. Öllum skipu- lagshugmyndum núverandi meiri- hluta á Kársnesinu vill flokkur- inn henda og skipuleggja upp á nýtt með íbúum svæðisins þar sem þeirra rödd og hugmyndir ráða för. Frjálslyndir munu hafa endaskipti á forgangsröðun þegar hagræðing er annarsvegar. Nýlega ákvað bæjarstóri að eldri borgarar fengju ekki lengur frítt í sund í Kópavogi. Meirihlut- inn taldi sig spara 7 milljónir með þessu. Við segjum að þetta sé vit- laus forgangsröðun. Bæjarstjór- inn í Kópavogi hefði getað skorið sín laun niður úr 1,7 milljónum á mánuði í 1,2 milljónir á mánuði. Þar með hefðu eldri borgarar fengið áfram frítt í sund og góð heilsa eldri borgara, máttarstólpa þjóðfélagsins, er sparnaður fyrir ríki og bæjarfélög Aukum íbúalýðræði Vistvæn hátækni Friðrik Rafnsson verkefnisstjóri hjá STG- Multi-Ice/ MIQ ehf. Sveitarstjórnarkosningar Helgi Helgason oddviti Frjálslynda flokksins í Kópavogi Nýlega ákvað bæjarstóri að eldri borgarar fengju ekki lengur frítt í sund í Kópavogi. Meirihlutinn taldi sig spara 7 milljónir með þessu. Við segjum að þetta sé vitlaus forgangsröðun. Nú þegar tímar eru sem betur fer farnir að breytast er ef til vill tíma- bært að huga betur að því hvernig hægt er að gera enn meiri verðmæti úr þeirri takmörkuðu auðlind sem hafið er. Stærri fyrirmyndarfyrirtæki: 1. Íslenska gámafélagið 2. Öryggismiðstöð Íslands 3. Icepharma 4. Betware á Íslandi 5. Logos 6. Securitas 7. Fjarðarkaup 8. CCP 9. Össur 10. Alcan á Íslandi 11. Gróðurvörur 12. 1912 13. Johan Rönning 14. Sorpa 15. Parlogis 16. Rauði kross Íslands 17. Lýsi 18. Prentsmiðjan Oddi 19. Nova 20. Maritech 11. Sölufélag garðyrkjumanna 12. Gogogic 13. Bókhald og uppgjör 14. Iðnmennt 15. Kjarnavörur 16. Sæmark 17. Trackwell-Stefja 18. Sensa 19. Hagvangur 20. Karl Kristmanns umboðs- & heildverslun Minni fyrirmyndarfyrirtæki: 1. Spölur 2. Miracle 3. Beiersdorf 4. Verslunartækni 5. Birtingahúsið 6. Vélfang 7. Microsoft Íslandi 8. Sigurborg 9. Gróco 10. Globus Virðing Réttlæti Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2010
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.