Fréttablaðið - 08.05.2010, Síða 38

Fréttablaðið - 08.05.2010, Síða 38
38 8. maí 2010 LAUGARDAGUR ■ Gjóskulagafræði, eða gjóskutímatal, er aðferð sem notar gjóskulag úr ákveðnu eldgosi, sem tímaviðmiðun í jarðfræði, fornleifafræði eða loftslagsfræði. Sérhvert eldgos hefur ákveðin efnafræðileg séreinkenni, sem greina má í gjóskunni, og er því með efnagreiningu hægt að sjá úr hvaða eldstöð og jafnvel úr hvaða eld- gosi gjóskan er komin. ■ Helstu eldfjöll, sem hafa verið miðpunktur gjóskulaga- rannsókna, eru Hekla og Vesúvíus á Ítalíu. ■ Upphafsmaður gjóskulagarannsókna var Sigurður Þór- arinsson, sem í doktorsritgerð sinni 1944, rannsakaði gjóskulög úr Heklu, einkum í Þjórsárdal og nágrenni. Sigurður gerði gjóskulagafræði að alþjóðlegri fræði- grein. ■ Í seinni tíð hefur Guðrún Larsen, jarðfræðingur við Jarðvísindastofnun HÍ, fengist mikið við gjóskulaga- rannsóknir, sem hafa varpað ljósi á gossögu Veiðivatna og Kötlu. Kjarnaboranir í gegnum Grænlandsjökul hafa gert mönnum kleift að tímasetja af nokkurri nákvæmni söguleg og forsöguleg stórgos á Íslandi. HVAÐ GETUR GJÓSKULAGAFRÆÐIN SAGT OKKUR? Hekla 1947: Gosið hófst 29. mars með sprengingu. Gos- mökkurinn náði 30 km hæð. Vindur stóð af norðri svo öskufallið í byggð varð mest um ofanverða Rangárvelli, í Fljótshlíð og undir Eyjafjöllum. Fíngert öskuryk barst með háloftavindum austur yfir Atlantshaf og tók að falla í Helsinki í Finnlandi á þriðja degi gossins. Talið er að fyrstu 30 mínútur gossins hafi um 75.000 rúmmetrar af gjósku ruðst upp úr Heklugjá, en það samsvarar um 200- földu rennsli Þjórsár. Katla 1918: Gosmökkurinn náði 14 kílómetra hæð og olli talsverðu tjóni í Skaftártungu. Útreiknað gjóskufall í þessu gosi er áætlað um 700 milljónir rúmmetra. Gjóskan dreifðist svipað og í gosinu. Hekla 1845: Gosið hófst 2. september og stóð í um 7 mánuði. Mikið öskufall fór til suðausturs og hlaup í Ytri-Rangá. Hraun runnu til vesturs og norðvesturs, um 25 km², og var bærinn Næfurholt fluttur um set vegna þessa. Gosið stóð samfellt fram í apríl 1846 en lá svo niðri fram í miðjan ágúst er umbrotunum lauk endanlega með smá öskugosi. Hekla 1766: Öskufall var mikið og Í gosbyrjun kom mikið hlaup í Ytri-Rangá sem sennilega hefur átt upptök í hettunni á háfjallinu. Að vanda var fyrsta goshrinan kröftug og meirihluti gosöskunnar féll á fyrstu 5-6 tím- unum. Talsvert tjón varð í Landsveit og í Hreppum en þó mun minna en 1693 þar sem vindur var vestanstæðari svo askan féll austan byggða. Öskufall í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum. Tíu jarðir fóru í eyði. Katla 1721: Vafalítið mesta gjóskugos Kötlu og fjórða stærsta gjóskugos á Íslandi á sögulegum tíma. Það hefur verið áætlað að heildarrúmmál gjóskunnar hafi verið 1500 milljónir rúmmetrar og náði askan allt til Færeyja. Hekla 1693: Gos hófst 13. febrúar og stóð fram á haust. Mikið öskufall til norðvesturs í upphafi goss sem olli miklu og varanlegu tjóni í nærsveitum. Sáust 14 gígar gjósa samtímis. Þá lögðust 50 bæir í eyði um tíma og einn endanlega, Sandártunga í Þjórsárdal. Hekla 1636: Gosið hófst 8. maí og stóð í rúmt ár. Gjósku- lagarannsóknir hafa sýnt að öskufall var til norðausturs og tjón lítið. Hekla 1597: Gos hófst 3. janúar og stóð langt fram á sumar. Gjóska dreifðist víða en olli litlum búsifjum, þó helst í Mýrdal. Hekla 1341: Annálum ber saman um að skepnur, eink- um nautpeningur, hafi fallið í stórum stíl vegna öskufalls- ins. Gosið hófst 19. maí og aska hefur ýmist tekið fyrir beit eða valdið flúoreitrun svo fénaður dó unnvörpum úr gaddi. Öskufallið hefur vafalítið nánast allt orðið fyrstu gosdagana. Hekla 1300: Eitt stærsta gosið í Heklu; fjallið rifnaði að endilöngu og gosdrunur heyrðust alla leið norður í land. Gosið var kísilríkt blandgos. Engar heimildir eru til um gjóskufall utan Íslands. Gosið var það næststærsta á sögulegum tíma. Gjóska barst til norðurs og olli miklum skemmdum ásamt harðindum um veturinn sem kom í kjölfarið. Gosið stóð yfir í um 12 mánuði. Eldgjá 934: Fyrsta eldgos í Eldgjá sem sögur fara af og þá er áætlað að runnið hafi frá eldstöðinni um 18 km³ af hrauni, sem þakti um 700 ferkílómetra. Nákvæm tíma- setning gossins fékkst með rannsóknum á öskulögum úr borkjörnum úr Grænlandsjökli. Landnámslag 870: Landnámslagið frá því um 900 er gott dæmi um notagildi gjóskulaga (goslag frá Torfajökli að talið er) og hefur mikið vægi við aldursákvarðanir í fornleifafræði hér á landi. Jörðin nýtt sem upplýsingabanki Eftir að eldgos braust út í Eyjafjallajökli vita margir landsmenn meira um ösku en þeir hingað til hafa talið nauðsynlegt. Færri vita að til er sérstök fræðigrein innan jarðfræðinnar sem tekur sérstaklega til gjóskulaga og þeirra upplýsinga sem þau hafa að geyma. Svavar Hávarðsson komst að því að það eru íslenskir vísindamenn sem hafa dregið vagninn við rannsóknir af þessu tagi. Hekla 1510: Jarðvegssnið sýna að uppblástur hefur færst mjög í aukana í kjölfar gossins og svo virðist sem fá gos hafi orðið afdrifaríkari fyrir byggðaþróun á Suðurlandi. Vindur stóð af norðaustri og askan barst yfir Rangárvelli og Landeyjar en einnig yfir Landsveit og Holt og allt vestur í Flóa. Byggðin í hraununum norðan við Keldur var hart leikin í þessu gosi og varð aldrei söm eftir. Í jarðvegi á Suðurlandi er askan frá 1510 langþykkasta og grófasta Heklulagið frá sögulegum tíma. Það er tiltölulega auð- þekkjanlegt, víðast dökkbrúnt að lit. Rétt neðan við það í jarðveginum er þykkt kolsvart öskulag sem dreifðist yfir Suðurland í feiknamiklu gosi í Kötlu um 1485. Stórgos með miklu öskufalli til suðurs. Stærsta Hekluhraun frá söguleg- um tíma. Mikil landeyðing í Rangárvallasýslu í kjölfarið. Katla um 1500: Frá Kötlugosi kringum 1490 eru til gjóskulög. Er það eina vísbendingin um gosið. Árið er að vísu á reiki, þar gæti skeikað 5-10 árum. Hekla 1389: Gjóskulagarannsóknir hafa leitt í ljós að Norðurhraun rann í þessu gosi (Sigurður Þórarinsson 1968). Það er komið upp í gíg sem nefnist Rauðöldur og er neðarlega í suðvesturhlíðum Heklu. Hekla 1206: Öskufall virðist hafa verið fremur lítið. Þrátt fyrir stuttaralegar frásagnir hefur þetta verið allmikið hraun- gos því líkur eru til að Efrahvolshraun hafi runnið þá. Hekla 1104: Fyrsta gos hennar á sögulegum tíma og það mesta. Mikið öskufall til norðurs og norðausturs. Þjórs- árdalur eyddist, þ.á m. bærinn Stöng. Stórgos með súrri (ljósri) gjósku. Útbreiðsla á landi var 55 þúsund ferkíló- metrar. Einhver mestu hamfaragos á Íslandi áttu sér stað í Heklu fyrir 7.000, 4.500 og 2.900 árum. Ummerki um þessi gos má finna í formi gjóskulaga sem dreifðust yfir stóran hluta landsins. Eina gos Heklu á sögulegum tíma sem sam- bærilegt er við þessi forsögulegu gos, er gosið árið 1104. Jarðvegssniðið á Þjóðminja- safninu var tekið við Næfurholt á Rangárvöllum árið 2004. Það er hluti af glæsilegri sýningu safns- ins um sögu Íslands. Jarðvegssniðið er 2,20 metrar á hæð og rúmur metri á breidd. Magnús Á. Sigurgeirs- son jarðfræðingur hafði umsjón með að taka sniðið og naut fulltingis Guðmundar Ólafssonar, fornleifafræðings á Þjóð- minjasafninu. Jarðvegssniðið var tekið árið 2004 í tengslum við endurbygg- ingu safnsins. Tilviljun réði því að jarðvegssniðið var tekið úr rofabarði við Næfurholt, en Magnús þekkti svæðið þó vel. Um þrjá daga tók að vinna sniðið úr rofabarðinu og koma því á sinn stað. Sniðið er bundið saman með lakki en jarðvegurinn á þessum stað hentaði vel. Það var flutt í tvennu lagi og skeytt saman þar sem það stendur nú á safninu. Ólakkaða hliðin snýr að gestum Þjóðminjasafnsins. Uppblástur: Þykku jarðvegslögin sýna hvernig uppblástur og jarðvegseyðing eykst eftir því sem á líður. Þykkt öskulaganna sjálfra gefur ekki rétta mynd af eldgosum. Vindátt ræður þykkt þeirra eins og sjá má á goslaginu úr Heklu 1389 annars vegar og 1104 hins vegar. Þúsundfalt meiri gjóska féll í gosinu 1104. TIL SÝNIS Á ÞJÓÐMINJASAFNINU MYND/GUÐMUNDUR ÓLAFSSON 20 0 cm 20 0 cm SIGURÐUR ÞÓRARINSSON, JARÐFRÆÐINGUR (8. janúar 1912 – 8. febrúar 1983) 1104 1636 1300 1766 1693 1341 1510 1389 1597 1845 1222 1206 1158 G jóskudreifing frá H eklu 1104-1845 ■ Hekla er 1.491 metra hár eldhryggur og er eitt virkasta eldfjall á Íslandi. ■ Síðast gaus Hekla í febrúar 2000. Þá var hægt að spá fyrir um eldgosið 15 mínútum áður en það hófst. ■ Hekla er fremur ungt eldfjall og er allt háfjallið talið vera yngra en 7.000 ára. ■ Fjallið stendur á fremur þykkri jarð- skorpu þar sem Suðurlandsbrotabeltið og Suðurlandsgosbeltið mætast. ■ Allstór sprungurein er undir fjallinu sem sést vel á yfirborðinu og hefur oft gosið úr henni, en þó líka úr öxl fjallsins utan sprungunnar. ■ Þessari Heklugjá tengjast fleiri gígar sem hafa gosið í áranna rás, sumir einu sinni, aðrir oftar. ■ Fjallið sker sig frá öðrum íslenskum eldfjöllum að því leyti. HEIMILD: ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON, ÍSLENSKAR ELDSTÖÐVAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.