Fréttablaðið - 08.05.2010, Qupperneq 78
6 fjölskyldan
lærum
líka á sumrin ...
Þyngdarstjórnun – orka – úthald – árangur
Ert þú einn af mörgum
Íslendingum sem hafa
grennt sig með Metasys
Metasys hefur verið fáanlegt hérlendis
sl. 6 ár og á stóran aðdáendahóp
Þessi 100% náttúrulega vara er unnin úr kjarna
græna telaufsins og hefur það reynst fjöl-
mörgum hjálp við að auka brennslu
líkamans auk þess að vera mjög orku-
og úthaldsaukandi.
Fjölmargir hafa einnig fundið
að húð og melting stórbatnar við inntöku Metasys.
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á græna telaufinu,
sem er ríkt af egcg catechins (endilega googlið),
sem er mjög andoxunarríkt og hefur einnig
góð áhrif á hjarta- og æðakerfi.
Metasys er fáanlegt í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum flestra stórmarkaða
100%náttúrulegt
www.metasys.is
Hér er enginn söngskóli á sumrin svo við ákváðum að nýta okkur þá góðu aðstöðu sem við höfum og vera með
leikjanámskeið fyrir krakka á aldr-
inum sex til ellefu ára. Við höfum
ekki verið með svoleiðis áður en
finnst það mjög spennandi verk-
efni,“ segir María Björk þegar
hún er spurð hvað Krakkageymsl-
an sé eiginlega. Hún segir skólann
hafa stækkað við sig húsnæðið síð-
asta haust og það bjóði upp á mikla
möguleika. „Helmingurinn af skóla-
húsnæðinu er veislusalur þannig
að við erum með fullkomið eldhús,
borðbúnað og allt. Við munum hafa
góðan mat á borðum fyrir börnin og
baka brauð á hverjum degi. Þau fá
að taka þátt í því,“ segir hún bros-
andi og kveðst leggja mikið upp
úr því að þau hafi nóg fyrir stafni.
„Við erum búnar að plana nánast
hvern klukkutíma og það verður
alltaf jafn gaman. Hér verður gott
starfsfólk þannig að við getum sinnt
öllum vel,“ lofar hún.
Leikjanámskeiðin standa frá
miðjum júní til 20. ágúst og María
Björk segir miðað við að hvert barn
geti verið allt upp í fjórar vikur.
Samt upplifi það alltaf eitthvað nýtt.
„Hingað kemur alls konar listafólk
sem við höfum fengið til liðs við
okkur,“ lýsir hún og bendir á heima-
síðuna www.krakkageymslan.is
Fjörutíu börn geta verið í
Krakkageymslunni í einu og þeim
verður skipt í tíu manna hópa. „Við
erum með nokkur herbergi og eins
munum við nota útisvæðin í Laug-
ardal og Elliðaárdal sem báðir eru
í um það bil 10 mínútna göngufæri.
Ég geri ráð fyrir að sex, sjö og átta
ára börn verði aðallega saman og
níu, tíu og ellefu ára í öðrum hópum.
Á matmálstímum og diskótekum
verða allir saman.“
Spurð hvort sungið verði í
Krakkageymslunni frá morgni til
kvölds svarar María Björk: „Við
tökum lagið öðru hvoru. En ef barn
langar ekkert að syngja þá gerir það
bara eitthvað annað. Markmiðið er
að allir hlakki til að koma.“
- gun
Feikilegt fjör í Krakkageymslunni
Gaman saman „Við höfum aldrei verið með leikjanámskeið áður en finnst það mjög spennandi verkefni,“ segir María
Björk, umkringd hressum stelpum, þeim Kristjönu og Rakel Mist næst sér og Birnu Rún, Sonju og Evu Margréti fyrir
framan. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Vorin eru skemmtilegasti tíminn
til að heimsækja Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn í Laugardal. Þá
gefur að líta ungviðið sem krökk-
um á öllum aldri þykir gaman að
skoða.
Nýverið gaut gyltan Bestla og
dafna grísir hennar vel eins og
myndirnar sýna. Sauðburður er í
þann veg að hefjast og um að gera
að fylgjast með fréttum af því og
líta á litlu lömbin þegar hann er
hafinn. Garðurinn er opinn alla
daga frá klukkan tíu til fimm.
Fyrir tíu til tólf ára krakka er
boðið upp á námskeið í sumar þar
sem krakkarnir vinna með dýr
garðsins, gráupplagt fyrir krakka
sem áhuga hafa á dýrum almennt.
Þá er einnig farið í skemmti-
lega umhverfisfræðslu, gerðar
eru vísindatilraunir og undir-
stöðuatriði tálgunar kynnt fyrir
krökkunum.
Ungviðið í garðinum
Nýgotnir Grísirnir hennar Bestlu dafna vel sem sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LAUTARFERÐ Börnum þykir spennandi að fara í lautartúr og þarf þá ekki
að fara langt til þess að njóta lífsins. Ekki þarf mikinn undirbúning að slíkri
ferð, bara að smyrja nesti og halda svo af stað.
NÁMSKEIÐ
Fjölbreytt úrval námskeiða Börn
á grunnskólaaldri eru gjarnan á sumarnám-
skeiðum hluta sumarfrísins enda fæstir
foreldrar í meira en fjögurra til fimm vikna fríi yfir
sumarið. Úrval námskeiða er mjög fjölbreytilegt.
Íþróttafélögin eru til að mynda flest með knattspyrnu-
skóla á sumrin. Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur
er með sumarskóla þar sem undirstöðuatriðin í badmin-
ton eru kennd. Hestamennska er klassískt sumarsport
fyrir unglinga. Leikjanámskeið eru fjölmörg á höfuðborg-
arsvæðinu og listrænir krakkar geta notið sín í Myndlista-
skólanum. Á heimasíðum sveitarfélaga og íþróttafélaga má
finna upplýsingar um námskeiðin.
Vatnsstríð, furðufataball, danskennsla, sveitaferð og
Viðeyjarferð. Allt er þetta á dagskrá á leikjanámskeiðum
Söngskóla Maríu Bjarkar sem kallast Krakkageymslan.is.