Fréttablaðið - 08.05.2010, Síða 84
44 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
Eldsumbrot íslenskunnar
Nýyrði og tökuorð hafa fylgt tungumálinu frá upphafi. Fáir hafa lagt meira til nýyrðabanka íslenskunnar en
ljóðskáldið og náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrímsson. Mörg nýyrðanna úr ranni Jónasar eru tungunni svo
töm að erfitt er að ímynda sér að þau hafi nokkurn tímann verið ný. Fréttablaðið stiklar á stóru í orðasmiðju
skáldsins og birtir fyrstu dæmin þar sem þau koma fyrir, samkvæmt Ritmálssafni Orðabókar Háskólans.
Aðdráttarafl: „aðdrátt-
arabl hnattarins mikla
togaði hann til sín.“
Baksund: „…eiga
piltarnir að temja sjer
baksund með fótunum
einum saman.“
Bróðurpartur:
„…miðla þrátt af þinn-
ar móður arfi / þeim,
sem að glata sínum
bróðurpart.“
Einstakl-
ingur: „ …
reínsla hvurs
eínstaklíngs,
útaf firir sig,
er harðla
lítil.“
Eldsumbrot: „…umbiltingar, sem þá hafa
orðið á jörðinni, virðast eínkum hafa orsakast
af elzumbrotum innaní henni.“
Fiskverkun:
„…hann hefur
sjálfur ferðazt
víða og grann-
kynnt sjer allt,
sem viðvíkur
fiskverkun.“
Fluggáfaður:
„Þarf ekki
nema líta á
hann, til að
sjá hann er
fluggáfaður.“
Framsókn: „
…framsókn,
rugg og ljós-
villa.“
Frelsishetja:
„ …fríða,
fullstyrka
/ frelsis-
hetju.“
Gangverk:
„Dregur
fio{}dur gáng-
verkid í því
[úri].“
Geislabaugur:
„Þá var ad
sjá følljósan
geislabaug
umhverfis
túnglid.“
Guðsafneit-
un: „ …að in
óbifanlega
nauðsyn og
eylífu lög [ [
…]] geti leítt
til guðsafn-
eítunar.“
Hafflötur: „
…enn hafflöt-
urinn liggur
opinn firir
þeim.“
Háðskur:
„ …en
háðskur mót
/ ómur orð-
vani / eyra
hrærði.“
Heiðardalur:
„ …hrauna
veitir bárum
bláum /
breiðan fram
um heiðar-
dal.“
Himingeimur:
„ …skapaði
guð sólina og
himintúnglin
og sveiblaði
þeim útí him-
ingeiminn.“
Drottnunargirnd:
„ …öfundin í Rauð
rekji og drottnunar-
gjirndin.“
Jarðfræðingur: „…létu
jarðfræðíngarnir sig
aldrei vanta, til að vera
við og gefa gætur að
því sem upp kæmi.“
Landafræði: „
…ímsar fróðlegar
bendíngar áhrær-
andi landafræðina.“
Líffæri: „Frá líffærum
spendýranna.“
Lífsnautn: „…en
menníngin er farin svo
að vakna að fjöldinn
vill lifa siðaðra manna
lífi. Auðvitað leiðir það
ýmsa út í ofeyðslu og
óhollar lífsnautnir.“
Lögbundinn: „…ad
brautir þeirra [:
halastjarnanna] eru
lögbundnar.“
Miðbaugur: „…mið-
baugsfjærð þeírra,
eður fjarlægð suður
og norður frá mið-
baugji.“
Dauðleiður:
„…kallaðu mig
fyrir rétt, þó mér
sé það meir en
dauðleitt.“
Hugsunarleysi: „…Þó
það hvurki komi til af
leti né hugsunarleysi á
almenníngs þörfum.“
Fyrirkomulag:
„…meðan fyrir-
komulag sólkerfis
vors haggast ekki af
nýum og stórkost-
legustu viðburðum.“
Ljóshraði: „ …þad
er ljóshradinn.“
Mörgæs:
„…Mörgæsir [ [
…]] eru svipað-
ar geírfuglum,
eíga heíma í
suður höfum.“
Rennisléttur:
„…Innst fyrir botni
hafnarvogsins liggja
rennisléttir sandar.“
Hundsvit: „Síðan hef
ég haft þetta hundsvit,
sem Síbbern talar um.“
Munaðarleysingi: „…að ala
so upp munaðarleýsíngjana,
sem eru fósturbörn þeirra allra
saman.“
Sálarástand: „Svo stendur
nú á sálarástandinu, að
ég held lítið verði um
það.“
Seigla: „…til að taka
úr þeim mestu seigl-
una og lýsisbragðið.“
Sjónarmunur:
„Hægt er og ad
reikna sjer til hinn
litla sjónarmun
(Parallaxe).“
Sjónauki: „
…í gjegnum
gódan
sjónauka
(Mikroskop).“
Sjóveikur: „Ég var
býsna sjóveikur.“
Skottulækning:
„…það á nú að fara
að hýða hann fyrir
skottulækningar.“
Skötuselur:
„Sædyfli,
skötuselur
(lophius
piscatorius,
Linn.).“
Smekkmaður: „þó
síra Tómas hafi
nokkurn tíma verið
sérlegur smekk-
maður á skáld-
skap.“
Sólkerfi: „á meðan
fyrirkomulag sól-
kerfis vors haggast
ekki af nýjum [ [
„…]] viðburðum.“
Sólmyrkvi: „Sól-
mirkvar verda,
þegar túnglid er í
sólstefnu.“
Spendýr: „Frá ætt-
erni spendýranna.“
Stjörnubjartur: „…um stjørnubjart-
ar nætur.“
Stuttbuxur:
„ …kven-
fólkið,
sem rakar,
verður að
ganga með
stuttbux-
ur innan
undir.“
Sporbaugur: „…braut hans
[Merkúríusar] er sporbaugur.“
Svarthol:
„Það á nú
samt að vera í
„svartholinu“
(Caschjot-
ten) þangað
til skólinn
kemur.“
Tímamælir:
„Sigurverk, er
heitir tímamælir
(Chronometer)
edur sæúr.“
Upplitsdjarf-
ur: „…aldrei
var ég eins
glaður eða
upplitsdjarf-
ur og ég
reyndar átti
að mér.“
Veðurfræði:
„að þeim, er
iðka veður-
fræðina, verði
búið nokkuð í
haginn.“
Yfirborga: „…hann
keypti ég og yfir-
borgaði hann af
ásettu ráði.“
Þjóðareign: „ …dýrmætar menjar
feðra vorra og þjóðareign, er ekki
má selja úr landi.“
Þremill: „Guizot! Hver þremillinn er
orðinn af manninum?“
Þrælsterkur: „ …veit ég ekki, hvaða
skelfilegan óláns-klaufa, þrælsterk-
an, hefir þurft til þess.“
Æðarkolla: „Æður, æðar-
bliki, æðarkolla (somat-
eria mollissi,a. Leach).“
Æxlunarfæri:
„Æxlunar-
færin, er vinna
að getnaði
nýrra dýra.“
Vísindastarf:
„…haft hinn
tímann til
vísinda-
starfa
minna.“