Fréttablaðið - 08.05.2010, Side 86

Fréttablaðið - 08.05.2010, Side 86
46 8. maí 2010 LAUGARDAGUR V ið byrjuðum á því að spila blús en slík tón- list einkennir Malí,“ útskýrir Amad- ou sem er staddur í París um þessar mundir. Það var þó ekki aðeins tón- listin heldur einnig ástin sem sam- einaði þau Amadou Bagayoko og Mariam Doumbia fyrir um þrem- ur áratugum í borginni Bamako í Malí. Þau hittust í stofnun fyrir unga blinda Malíbúa og uppgötv- uðu fljótlega að þau deildu sömu ástríðunni fyrir tónlist. „Við byrj- uðum á því að spila blús en slík tónlist er dæmigerð fyrir landið okkar.“ Nýjasta plata þeirra hjóna, „Wel- come to Mali“ er þó allt annað en hefðbundin afrísk tónlist og sam- einar ólíka menningarheima og tónlistarstrauma í einum stórfeng- legum bræðingi af afrískum blús, rokki, reggí og raftónlist. „Á öllum plötunum okkar reynum við þó að kynna Malí fyrir heiminum. Land- ið okkar er ríkt af menningu, tón- listarlegri og sögulegri og fólkið er einstaklega hjartahlýtt og gest- risið.“ Það er ekki bara eymd og volæði í Afríku En tónlistin ykkar er þó rík af ann- ars konar áhrifum en einungis frá Malí? „Já, á vissan hátt. Tónlist- in okkar er blönduð alveg eins og heimurinn, og þannig á einmitt heimurinn að vera. Allir leika sitt hlutverk, hvernig sem þeir kunna að vera á litinn og við verðum að búa til tónlist saman. Ég held að slík blanda verði framtíðin fyrir mannkynið.“ Textar þeirra hjóna fjalla mikið um ástina. Um róm- antíska ást, ást til fjölskyldu og vina en einnig er í þeim að finna ádeilur á ástandið í Malí og ann- ars staðar í Afríku. „ Við reynum að koma skilaboðum til fólksins okkar og hvetja það áfram. Segj- um fólki að fara að vinna og fara í skóla af því að það er mikilvægt og gefast ekki upp þótt á móti blási. En við syngjum mikið um ástina vegna þess að lífið á að snúast um ástina. Það er mikilvægt að tónlist reyni að sameina heiminn og færa honum einhvers konar boðskap um ást. Það er líka mikilvægt fyrir okkur Afríkubúa að hugsa vel um hvert annað. Álfan hefur einkennst af styrjöldum milli ólíkra ættbálka og landa og við reynum að útskýra fyrir fólki að við séum öll foreldr- ar og að við þurfum alls ekki á á stríði og deilum að halda, heldur frekar að við sameinumst.“ Finnst honum Vesturlönd hafa slæma ímynd af Afríku og ástand- inu þar? „ Að vissu leyti. Margir halda að það sé ekkert í Afríku nema eymd og volæði en þar er einnig gleði, líf, manngæska og samkennd. Þegar einhver á um sárt að binda reyna allir að aðstoða eftir megni. Það má ekki einbeita sér að neikvæðu hliðum Afríku og ég vona að tónlist okkar hjálpi til við að koma jákvæðum skilaboð- um áleiðis um álfuna. Vonandi hjálpar svo heimsmeistaramótið í fótbolta til við að kynna vestrænu fólki menningu okkar. “ Fötlunin hefur aldrei verið hindrun Amadou segist alltaf hafa haft gaman af vestrænni tónlist og hafi hlustað mikið á rokk og blús. Hann er gamall aðdáandi Pink Floyd og þau hjón hafa hitað upp fyrir Coldplay og verið í samstarfi við Damon Albarn. „Við höfum allt- af haft gaman af tónlistarblöndu, alveg frá því að við vorum lítil. Nýjasta platan okkar er einmitt gerð í samstarfi við marga aðila þar sem skipst er á hugmyndum. Við hittum fólk sem hefur gaman af tónlistinni okkar og fólk sem gerir tónlist sem við hlustum á. Samstarf milli ólíkra tónlistar- manna er alltaf mjög skemmti- Það má ekki einbeita sér að nei- kvæðu hliðum Afríku og ég vona að tónlist okkar hjálpi til við að koma jákvæðum skilaboðum áleiðis um álfuna. Tónlist uppfull af ást ÞAU ERU MÚSÍKALSKT PAR Amadou og Mariam hafa ekki látið blindu aftra sér frá því að verða heimsfræg fyrir fallega tónlist. Afrísk tónlist heillar hinn vestræna heim ■ Tónlist Amadou og Mariam er blanda hefð- bundinnar tónlistar frá Malí, rokktónlistar og blús með fiðlum frá Sýrlandi, trompetum frá Kúbu, indverskum og egypskum hljóðfærum. ■ Árið 2003 kynntust þau tónlistarmanninum Manu Chao sem framleiddi plötu þeirra Dimanche á Bamako og syngur einnig á plötunni. ■ Árið 2006 tóku þau upp þemalag heimsmeist- arakeppninnar í fótbolta ásamt þýska tónlistarmanninum Herbert Grönemeyer. Lagið hét „Celebrate the Day“ og var í efsta sæti þýskra vinsældalista. ■ Árið 2008 náði lag þeirra „Sabali“ fimmtánda sæti yfir bestu lög ársins hjá Pitchfork Media. ■ Í maí í fyrra spiluðu þau á góðgerðartónleikum fyrir heimilislausa í Lond- on ásamt David Gilmour á gítar. ■ Í fyrra hituðu þau upp fyrir tvo Blur-tónleika í Hyde Park og fóru með Coldplay á „Viva La Vida“ túrinn. ■ Í gær léku þau á tónleikahátíðinni All Tomorrow’s Parties, en þau voru sérstaklega valin til að spila á hátíðinni af Matt Groening, skapara The Simpsons-þáttanna. Hátíðin er ein virtasta tónlistarhátíð heims og þar komu meðal annars fram hljómsveitirnar Spiritualized, The XX og Nick Cave. Amadou og Mariam hafa verið fengin til að opna stærsta íþróttaviðburð heims, heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu, sem fer fram í Suður-Afríku og hefst í næsta mánuði. Hjónin munu koma fram á sérstökum opnunar- tónleikum aðfaranótt fyrsta leiks mótsins 10. júní ásamt Aliciu Keys, Shakiru, Black Eyed Peas og suður-afrísku hljómsveitinni BLK JKS – ásamt fótboltastjörnum frá ýmsum tímabilum fótboltasögunnar (herma fregnir að sjálfur Pelé verði þarna í stuði ásamt stjörnum nútímans á borð við Cristiano Ronaldo og Ronahdinho). Opna heimsmeistarakeppnina í fótbolta legt.“ Spurður um hvernig sam- starfið við Damon Albarn byrjaði segir Amadou það hafa verið ein- falt. „Hann kom og hitti okkur. Svo fórum við og hittum hann. Svo tókum við tónlist upp saman.“ En hefur það aldrei háð þeim að vera blind? „Nei, í hreinskilni sagt þá hefur það ekki háð okkur. Við eigum góða foreldra og fjölskyldu sem studdu okkur frá barnsaldri og gerðu allt sem þau gátu fyrir okkur til að lífsgæði okkar væru eins og annarra. Auðvitað komu stundum upp erfiðir tímar þegar ég var lít- ill strákur. Þá man ég eftir því að ég vildi stundum ekki fara í skól- ann af því að mér var strítt. Þegar ég fór á stofnun fyrir unga blinda Malíbúa þá var ég góður á gítar og var beðinn um að kenna hinum að syngja og dansa. Og þegar við Mariam byrjuðum að semja tónlist saman nutum við strax vinsælda og fylltum tónleikasali af fólki. Fólki fannst kannski líka heill- andi að þrátt fyrir augljósa fötlun þá gerðum við það sem okkur lang- aði til að gera og gekk vel í því.“ Á hverju ári standa Amadou og Mari- am fyrir tónleikahátíðinni „París- Bamako“ til að styrkja blind börn og unglinga í Malí. „Við höfum safnað fyrir mat, fyrir tækjum, blindrabókum og fleiru. Vonandi getum við stækkað þetta átak yfir í önnur lönd líka.“ Með smá áhyggjur af eldgosinu Heimsókn þeirra hjóna til Íslands er þeirra fyrsta og þau eru mjög spennt fyrir ferðinni. „Við erum á tónleikaferðalagi um Evrópu og þegar okkur bauðst að koma til Íslands fannst okkur það spenn- andi. Við höfðum heyrt að Reykja- vík væri mjög skemmtileg og lif- andi borg þar sem menningar- og tónlistarlífið blómstrar. Ég hef ekki fylgst mjög vel með íslenskri tónlist en ég hlakka mikið til að fá að hitta fólk og sjá hvað þið eruð að gera þarna. Annars geri ég mér litla grein fyrir því hvernig landið er og hef dálitlar áhyggjur af þessu eld- gosi. Ég vona að það hindri okkur ekki í að komast til Íslands en mér sýnist þó á fréttum að þetta ösku- fall sé að minnka.“ Amadou tekur fram að hann voni að Íslendingar eigi eftir að skemmta sér vel á tónleikunum. „Við erum hjón sem elskum hvort annað og við erum að reyna að koma skila- boðum á framfæri um það hversu mikilvæg ástin er í lífinu. Við vilj- um að tónlist færi heiminum gleði og geti hjálpað til við að sameina hann. Færa fólki von, samkennd og fallegar minningar saman.“ Tónleikar Amadou og Mariam verða í Laugardalshöll 12. maí. Blinda parið Amadou og Mariam frá Malí hafa vakið heimsathygli fyrir tónlist sína. Þau hafa meðal annars hitað upp fyrir Coldplay, verið í samstarfi við Damon Albarn og spilað fyrir for- seta Bandaríkjanna. Þau koma nú til Íslands með hljómsveit sinni til að spila á opnunartónleikum Listahátíðar í Laugardalshöllinni. Anna Margrét Björnsson sló á þráðinn til Amadou Bagayoko, gítarleikara og söngvara, sem staddur var í París.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.