Fréttablaðið - 08.05.2010, Page 90
50 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
MAGNÚS TUMI GUÐMUNDSSON
JARÐEÐLISFRÆÐINGUR ER 49 ÁRA
Í DAG.
„Það er ómögulegt að spá
fyrir um gos í Kötlu en auð-
vitað er rétt að hafa augun
hjá sér.“
Magnús Tumi er deildarfor-
seti jarðvísindadeildar Háskóla
Íslands og stýrir Jarðvísinda-
stofnun. Ummælin lét hann
falla 21. mars þegar gos var
nýhafið á Fimmvörðuhálsi.
Léttsveit Reykjavíkur á tvöfalt afmæli
á þessu ári og lýkur þriggja konserta
vordagskrá með tónleikum í Háskóla-
bíói í kvöld. Þar ætlar hún að blása
þjóðinni bjartsýni og baráttuanda í
brjóst og fjalla í leiðinni um ýmislegt
sem hent hefur í þjóðlífinu. Þess ber
söngskráin merki. Þar má finna laga-
heiti eins og Af aurum apar og Fram-
tíðardraumar. Önnur hefðbundnari
eru þar einnig, svo sem Þú álfu vorr-
ar yngsta land, Lífsgleði njóttu og
ýmis þjóðleg sveitasælulög.
Margrét Þorvaldsdóttir er formaður
Léttsveitar Reykjavíkur. Hún útskýr-
ir þetta tvöfalda afmæli sem getið er í
upphafi greinarinnar svo: „Léttsveitin
er eitt afsprengi Kvennakórs Reykja-
víkur sem hóf starfsemi sína 1993
og ungaði út alls konar kórum. Það
eru fimmtán ár frá því að við urðum
léttsveit innan Kvennakórsins og svo
eigum við tíu ára sjálfstæðisafmæli
því árið 2000 hættum við að heyra
undir stjórn hans. Þannig að þetta eru
stór tímamót þótt um ungan kór sé að
ræða, miðað við marga aðra.“
Í Léttsveit Reykjavíkur eru 113
konur, svo fullyrða má að hún sé
meðal fjölmennustu kóra landsins
ef hún hreinlega á ekki metið. Sami
stjórnandi hefur verið frá upphafi,
Jóhanna V. Þórhallsdóttir, og líka
sami píanóundirleikari, Aðalheiður
Þorsteinsdóttir.
Margrét hefur verið formaður Létt-
sveitarinnar í sex ár með smá hléi og
á ellefu ára söngferil að baki með
henni, eða frá 1999, svo ljóst er að
tryggðin við félagsskapinn er mikil.
Hvaða töfrar eru þarna í gangi? „Það
er bara ótrúlega skemmtilegt að til-
heyra svona stórum og fjölbreyttum
hópi og alltaf gaman að syngja saman.
Ef eitthvað bjátar á er ekkert til betra
en fara á kóræfingu. Það er allra
meina bót,“ svarar hún með sannfær-
ingarkrafti í röddinni.
Margrét segir ýmislegt fleira fylgja
félagsskapnum en söngur. „Við höld-
um árshátíðir og skemmtisamkomur
fyrir okkur og vinkonur okkar og svo
höfum við ferðast heilmikið og hald-
ið tónleika. Bæði farið til útlanda
og líka um landið okkar. Ég held
við séum búnar að heimsækja alla
landshluta.“
Nú er Léttsveitin nýkomin úr söng-
ferð til Norðurlands. „Við sungum í
Hóladómkirkju og á Dalvík,“ upplýsir
Margrét. „Við lentum inn á sæluvik-
una í Skagafirði og hittum Álftagerð-
isbræður þar. Þeir ætla að endur-
gjalda heimsóknina og taka nokkur
lög með okkur í Háskólabíói í kvöld.“
gun@frettabladid.is
LÉTTSVEIT REYKJAVÍKUR: HELDUR UPP Á BÆÐI 10 OG 15 ÁRA AFMÆLI
Skemmtilegt að tilheyra svo
stórum og fjölbreyttum hópi
LÉTTSVEIT REYKJAVÍKUR Einn stærsti kór landsins, en Álftagerðisbræður ætla að taka nokkur lög með honum í kvöld. MYND/ÚR EINKASAFNI
MERKISATBURÐIR
1636 Eldgos verður í Heklu.
1835 Fyrstu ævintýri H.C. And-
ersen gefin út í Dan-
mörku.
1933 Mohandas Gandhi hefur
þriggja vikna hungurverk-
fall til að mótmæla kúgun
Breta í Indlandi.
1945 Síðari heimsstyrjöldinni
lýkur í Evrópu með upp-
gjöf Þjóðverja.
1970 Síðasta breiðskífa
Bítlanna kemur út.
1979 Hornsteinn er lagður að
Hjúkrunarheimilinu Eir í
Grafarvogi.
1996 Stjórnarskrá sem tryggir
ríkisborgurum víðtæk rétt-
indi tekur gildi í Suður-
Afríku.
Félag frjálshyggjumanna á
Íslandi var stofnað á áttræð-
isafmæli Friedrichs A. von
Hayeks 8. maí 1979, með það
að markmiði að kynna frjáls-
hyggju á Íslandi.
Stjórnarmenn voru allir
sjálfstæðismenn, þeirra á
meðal Friðrik Friðriksson, sem
var formaður, Árni Sigfússon,
Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson og Hreinn Loftsson, en
þess skal getið að félagið var
ekki í beinum tengslum við
Sjálfstæðisflokkinn.
Félagið stóð fyrir fundahaldi
og útgáfu á tímaritinu Frelsið,
sem Hannes Hólmsteinn
ritstýrði, bókum eins og Ein-
staklingsfrelsi og hagskipulag
eftir Ólaf Björnsson prófessor
og Velferðarríki á villigötum
eftir Jónas H. Haralz banka-
stjóra. Þá komu ýmsir erlendir
fyrirlesarar á vegum félagsins
til landsins, svo sem Nóbels-
verðlaunahafarnir Friedrich
A. von Hayek og Milton
Friedman.
Félagið starfaði í áratug eða
til ársins 1989, en þá þótti
ljóst að markmiðið hafði náðst
og því var félagið lagt niður.
Sjá www.wikipedia.org.
ÞETTA GERÐIST: 8. MAÍ 1979
Félag frjálshyggjumanna stofnað
Móðir okkar og amma,
Inga Þorgeirsdóttir
kennari, Hofteigi 48,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju mánudaginn
10. maí kl. 15.
Þorgerður Ingólfsdóttir og Knut Ødegård
Mali Ødegård og Roar Sørli
Knut, Kristine
Hege Ødegård
Rut Ingólfsdóttir og Björn Bjarnason
Sigríður Sól Björnsdóttir og Heiðar Guðjónsson
Orri, Bjarki, Rut
Bjarni Benedikt Björnsson og Daði Runólfsson
Vilborg Ingólfsdóttir og Leifur Bárðarson
Margrét María Leifsdóttir og Guðmundur Pálsson
Máni, Diljá Helga, María
Inga María Leifsdóttir og Kristbjörn Helgason
Júlía Helga, Jakob Leifur
Unnur María Ingólfsdóttir og Thomas Jan Stankiewicz
Catherine María Stankiewicz
Helene Inga Stankiewicz
Thomas Davíð Stankiewicz
Inga Rós Ingólfsdóttir og Hörður Áskelsson
Guðrún Hrund Harðardóttir og Gunnar Andreas Kristinsson
Áróra, Auðunn
Inga Harðardóttir og Guðmundur Vignir Karlsson
Björt Inga, Ísleifur Elí
Áskell Harðarson
Faðir okkar,
J. Grétar Þorvaldsson
bifreiðastjóri, Stóragerði 38,
lést á heimili sínu 5. maí. Jarðarför verður auglýst síðar.
Valdís Ósk Jónasdóttir
Þórir Karl Jónasson
Þorvaldur Jónasson
Árleg ráðstefna Oddafélags-
ins, samtaka áhugamanna
um endurreisn fræðaset-
urs að Odda á Rangárvöll-
um, verður haldin í dag.
Ráðstefnan verður sett í
Frægarði hjá Landgræðslu
ríkisins í Gunnarsholti á
Rangárvöllum klukkan 13
og stendur til 17.30 og eru
allir velkomnir.
Þór Jakobsson setur ráð-
stefnuna sem hefst með því
að tveir meðlimir félagsins
frá byrjun, Þórður Tóm-
asson í Skógum og Jakob-
ína Erlendsdóttir frá Odda
á Rangárvöllum, verða
gerðir að heiðursfélögum.
Meðal fyrirlesara á ráð-
stefnunni eru Páll Skúla-
son. - jma
Oddafélagið með ráðstefnu í Frægarði
ÁHUGAFÓLK UM ENDURREISN ODDA Þór Jakobsson, formaður Oddafélagsins, setur ráðstefnu í dag um
endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum.