Fréttablaðið - 08.05.2010, Síða 96
56 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Í dag verður opnuð sýning
í Gerðarsafni á verkum
frá löngum ferli Hafsteins
Austmann en hann fagn-
ar með sýningunni 75 ára
afmæli. Á sýningunni má
rekja feril Hafsteins allar
götur frá því að hann sat
kornungur við fótskör
meistara franska skólans á
sjötta áratug síðustu aldar.
Hafsteinn Austmann hefur fyrir
löngu skapað sér nafn sem einn
af vönduðustu listmálurum sinn-
ar kynslóðar. Hann er fæddur á
Vopnafirði 1934, en ólst að mestu
upp í Reykjavík. Kornungur ákvað
Hafsteinn að helga sig myndlist-
inni og eftir nám í Myndlista-
skólanum í Reykjavík og Hand-
íða- og myndlistarskóla Íslands
dvaldi hann í París 1954-55 og
sótti þá tíma í Académie de la
Grande Chaumière, meðal ann-
ars hjá myndhöggvaranum Zad-
kine. Námsdvöl hans í París á
þeim árum þegar franski skólinn
var mikilsvirtur í öllum hinum
vestræna heimi setti mark sitt á
feril hans. Hafsteinn heillaðist
snemma af franskri abstraktlist
og var meðal annars boðið að sýna
á hinni alþjóðlegu Réalités Nou-
velles-sýningu, aðeins tvítugum
að aldri. Heimkominn tók Haf-
steinn þátt í öllum helstu sýning-
um íslenskra myndlistarmanna og
skar sig ævinlega úr fyrir fágaðar
abstraktmyndir sínar, bæði olíu-
og vatnslitamyndir. Hann starf-
aði einnig við leikmyndagerð fyrir
Leikfélag Reykjavíkur en hefur að
mestu helgað líf sitt málverkinu,
bæði olíu- og ekki síður vatnslita-
myndum sem hann hefur sjaldgæf
tök á, og svo höggmyndum.
Til þessa hefur hann haldið um
30 einkasýningar og tekið þátt í
miklum fjölda samsýninga um
allan heim. Sömuleiðis er verk Haf-
steins að finna í öllum helstu lista-
söfnum Norðurlanda. Verk hans
hafa enn fremur hlotið ýmsar við-
urkenningar, meðal annars alþjóð-
legu Windsor & Newton-verðlaunin
fyrir vatnslitamyndir. Hafsteinn
hefur einnig hlotið tvenn verðlaun
fyrir útilistaverk og gert vegg-
mynd fyrir Borgarspítalann.
Í tengslum við sýninguna verður
gefin út vönduð bók „Kvika: Haf-
steinn Austmann, Myndverk 1950-
2010“, sem Aðalsteinn Ingólfsson
hefur tekið saman. Aðalsteinn mun
vera með leiðsögn um sýninguna
á morgun kl. 15. Sýningin er hluti
af dagskrá Kópavogsdaga og mun
standa til 20. júní. pbb@frettabladid.is
YFIRLITSSÝNING HAFSTEINS
MYNDLIST Hafsteinn Austmann fagnar sjötíu og fimm ára afmæli með stórri yfirlitssýningu í Gerðarsafni. MYND FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ath. kl. 20 í kvöld
breski gamanleikurinn 39 þrep var sýndur í fyrsta
sinn í gærkvöldi í Íslensku óperunni og verða sýning-
ar í kvöld og á morgun. Fjórir leikarar fara á kostum í
rússibanareið ótrúlegs fjöld stórra og smárra persóna,
alls 139 hlutverk deilast á leikhópinn. Leikstjóri er
María Sigurðardóttir sem kunn er af vinsælum leik-
sýningum sunnan og norðan heiða, Sex í sveit og Ló
á skinni. Verkið var sýnt við metaðsókn á Akureyri í
vetur en sýningar sunnan heiða verða fáar.
Tólf sýningar verða í boði á
næstu vikum á hinum sígilda
sjónleik Williams Shakespeare,
Rómeó og Júlíu, í Borgarleik-
húsinu. Vesturport er enn eina
ferðina að rifja upp sviðsetningu
sína sem farið hefur víða um
lönd og var í tvígang á fjölunum
í London eftir að hafa notið mik-
illa vinsælda hér heima á Litla
sviði Borgarleikhússins 2002.
Er þetta sú leiksýning íslensk
sem átt hefur lengstu lífi að
fagna. Nú verður hún endurlífg-
uð á Stóra sviðinu og er hluti af
áskriftarsýningum hússins frá
liðnu hausti.
Hallgrímur Helgason þýddi
verkið að nýju þegar Vesturport
undir leikstjórn þeirra Gísla
Arnar Garðarssonar og Agnars
Jóns Egilssonar setti sýninguna
á svið. Katrín Hall sá um dansa
en Börkur Jónsson og Þórunn
Elísabet Sveinsdóttir sáu um
útlit leikmyndar og búninga.
Sýningar hefjast 11. maí.
Önnur sviðsetning á sama
verki verður í samstarfi Borgar-
leikhússins og Listahátíðar í
Reykjavík boðin áhugasömum
gestum, en það er tíu ára gömul
sviðsetning sem hefur farið
víða á þeim áratug: Leikstjóri
er Oskar Korsunovas og verða
sýningar tvær: 14. og 15. maí.
Kostunovas er einn besti leik-
stjóri heimsins í dag. Þessi upp-
setning hefur ferðast um heim-
inn undanfarin tíu ár og er því
ferðalagi langt frá því lokið.
Í þessari uppsetningu berj-
ast ættir tvær í bakaríum sem
þær reka hvor um sig. Kraft-
ur, húmor og magnað sjónarspil
einkenna sýninguna. Oskaras
er einn fremsti leikstjóri Evr-
ópu en hann hefur verið ráð-
inn til að leikstýra jólasýningu
Borgarleikhússins 2010 en það
er Ofviðrið eftir Shakespeare.
Heitið var þriðju sýningunni í
haust í kynningarherferð Borgar-
leikhússins á þessu kunna verki
í sviðsetningu Þorleifs Arnars-
sonar frá St. Gallen í Sviss en
ekki bólar á henni og er vísast
um að kenna kreppunni.
Græna ljósið hleypur undir og
sýnir hina frábæru kvikmynd
Baz Luhrmann eftir verkinu
þar sem þau Leonardo DiCaprio
og Clare Danes léku svo eftir-
minnilega þau Rómeó og Júlíu.
Sýnt verður í Háskólabíó 20. og
21. maí kl. 20. - pbb
Rómeóraunir
LEIKLIST Úr Rómeó og Júlíu Vesturports
2002: Nína Dögg sem Júlía og Ólafur
Darri sem fóstran. MYND FRETTABLAÐIÐ/
Þýskir gagnrýnendur voru yfir
sig hrifnir af sýningu Íslenska
dansflokksins á danshátíð í Brem-
en í Þýskalandi sem haldin var í
apríl. Á dagskránni voru tvö verk
eftir þekkta og virta danshöf-
unda: Kvart eftir Norðmanninn
Jo Strömgren, og Endastöð eftir
Svíann Alexander Ekman. Þriðja
verkið var Heilabrot eftir Brian
Gerke og Steinunni Ketilsdóttur
sem er nýtt og ferskt tvíeyki frá
Íslandi þekkt fyrir kómíska, jafn-
vel grátbroslega, og óhefðbundna
sköpun.
Blaðið Die Tageszeitung sagði
að Íslenski dansflokkurinn hefði
óvænt verið stjarna hátíðarinnar:
„Vegna landfræðilegrar staðsetn-
ingar sinnar er flokkurinn ein-
angraður og hefur þar af leiðandi
tileinkað sér mikla fjölbreytni
– verkin sem flokkurinn sýndi
voru á ótrúlega breiðum skala,
allt frá óvægnu dansleikhús yfir
í dansflugelda í anda Svanavatns-
ins. Það virðist einnig sem þetta
kalda loftslag ali af sér virkilega
skemmtilegan húmor.“
Gagnrýnendur Kreiszeitung
Bremen og Augsburger Allgemeine
hrósuðu dönsurunum fyrir tækni-
lega fullkomnun en einnig og þá
sérstaklega fyrir leiklistarhæfi-
leika þeirra og héldu þeir varla
vatni yfir frammistöðu dansar-
anna í hinu mjög svo kómíska verki
Endastöð, þar sem þeir túlka eldra
fólk í leit sinni að æskunni.
Dansflokknum hrósað
LISTDANS Úr verkinu Kvart eftir Jo
Strömgren sem sýnt var á danshátíð í
Brimum við mikið lof.