Fréttablaðið - 08.05.2010, Page 97

Fréttablaðið - 08.05.2010, Page 97
LAUGARDAGUR 8. maí 2010 57 Söngsveitin Fílharmónía fagnar 50 ára afmæli með glæsilegum afmælistónleikum sunnudaginn 9. og þriðjudaginn 11. maí í Lang- holtskirkju, kl. 20 báða daga. Þar verður frumflutt nýtt íslenskt tón- verk sem kórinn pantaði af þessu tilefni af tónskáldinu Tryggva M. Baldvinssyni: Heimsljós – íslensk sálumessa. Með verkinu er brugð- ið nýju ljósi á eitt ástsælasta bók- menntaverk okkar, en texti tón- verksins er sóttur í verk Laxness. Verk Tryggva er í sex köflum, samið fyrir kór, hljómsveit og tvo einsöngvara. Kórinn leitaði til Tryggva fyrir meir en tveimur árum og hefur verið spennandi að fylgjast með þróun og tilurð verksins sem kór- inn hefur æft af kappi síðustu mánuði og tekið miklu ástfóstri við. Segja kórfélagar að honum tekist að skapa listaverk ríkt af tilfinningu sem talar til huga og hjarta. Tryggvi kynntist skáldsögu Halldórs á unga aldri og lýsir fyrsta lestri sínum hugljómun: „Á mörgum stöðum hefur textinn mann upp í annan heim, drauma, lita og einlægrar fegurðar, stund- um nokkuð sársaukafullan, en jafnframt umvefur skáldskap- urinn lesandann mikilli hlýju.“ Sagan hefur fylgt honum síðan. Tónverkið er kynnt sem sálumessa. Víst má til sanns vegar færa að sagan lýsir stríði sem háð er um sál og líf Ólafs ljósvíkings. Þar takast mörg öfl á: „Hinum trúarlega tóni sem svífur yfir vötnunum í sög- unni um Ólaf Kárason fannst mér best komið til leiðar í formi sálu- messu, því að efnistök bókarinnar ríma vel við hina þrjá meginþætti sálumessunnar: ákall, uppgjör og friðþægingu. Með þessu verki er ég þó alls ekki að reyna að rekja sögu Ólafs Kárasonar, enda er textinn í tón- verkinu tekinn héðan og þaðan og myndar engan efnislegan sögu- þráð. Mín athygli er á textan- um sjálfum og þeim töfrum sem þar felast. Það fór mikill tími í að velja þá kafla og setningar sem ég notaðist við að lokum. Þeir þurftu bæði að innihalda þá ljóðrænu sem ég sóttist eftir og jafn- framt að henta sem sjálfstæður þáttur í sálumessunni. Ég tók mér það leyfi að stytta suma textana, fella úr þeim orð, setning- ar og jafnvel málsgreinar til að fella þá betur að tónlistinni. Texti þriðja þáttar, Guð refsar öllum sem svíkjast um, sker sig nokk- uð úr, því að þar er ekki stuðst við heila málsgrein heldur er textinn að miklu leyti settur saman úr skammaryrðum og upphrópunum í garð Ólafs Kárasonar. Þessi reiði- lestur er slitinn í sundur af draumi Ólafs um betri tíma. Eflaust væri hægt að tengja hefðbundin latnesk kaflaheiti sálumessunnar við hina sex kafla íslenskrar sálumessu og bæri þá 3. þátturinn eflaust nafnið Dies irae, en mér fannst mun eðli- legra að nota kaflaheiti sem sótt eru í textann.“ Þá verða einnig fluttir vald- ir kaflar úr nokkrum þeim stóru verkum sem Söngs- veit i n F í lha rmón- ía hefur flutt á ferli sínum, meðal ann- ars úr Carmina Bur- ana, Þýsku sálumessu Brahms, Messías eftir Handel og verkum eftir Mozart, Haydn og Bach. Söngsveitin hefur á ferli sínum lagt megináherslu á flutning stórra tón- verka fyrir kór og hljóm- sveit og frumflutt á Íslandi fjöldamörg helstu kórverk tónlistarsögunnar. Einsöngvarar eru Ingi- björg Guðjónsdóttir og Snorri Wium. Sif Tul- inius er konsert- meistari 30 manna hljómsveitar og Magnús Ragn- arsson stjórn- ar tónleik- unum. - pbb Heimsljós sem sálumessa TÓNLIST Tryggvi M. Baldvinsson tónskáld kynntist Heimsljósi á unglingsárunum og fann að sálu- messuformið hentaði best hinum trúarlega tóni sem er að finna í skáldverkinu. MYND FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SPÆNSKIR DAGAR PO RT h ön nu n
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.