Fréttablaðið - 08.05.2010, Qupperneq 100
60 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
OKKUR
LANGAR Í
…
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Nammi nammi namm …
þessir litríku leðursandalar
frá Marc Jacobs eru stór-
fenglega sumarlegir.
Sexý sundbolur sem
minnir á Hollywood
glamúr sjöunda
áratugarins. Frá
tískudrottning-
unni Diane Von
Furstenberg og fæst á
netaporter.com
Ótrúlega fagurt varagloss
sem er hluti af samstarfslínu
Liberty og Mac.
Bandaríski hönnuðurinn Ralph
Lauren er þekktur fyrir fáguð
föt og falleg efni í klassískum
bandarískum stíl, föt sem henta
bæði á skrifstofur og sveitaset-
ur hjá heldri fjölskyldum. Þeir
sem forðast litagleði í sumartísk-
unni geta glaðst yfir frísklegu
og einföldu yfirbragði sumarlín-
unnar frá Ralph Lauren þar sem
blá gallaefni voru í forgrunni.
Strákaleg tíska sem einkennd-
ist af skyrtum, vestum, galla-
buxum og jafnvel smekkbuxum.
Ljósblái liturinn hefur ekki verið
sérstaklega áberandi undanfarin
ár en Lauren minnti okkur á að
þetta er flottur og óvæminn kost-
ur þegar hlýna tekur í veðri.
- amb
GALLAEFNI HJÁ RALPH LAUREN:
Tímalaus klassík
Ég var algjör lúði þegar ég var lítil og hafði ekki hundsvit á tísku.
Tíska virtist jafn fjarlægt áhugamál og aðrir leiðindahlutir fullorð-
inna eins og tiltekt og að vinna á skrifstofu. Í dag er kominn heill nýr
markaðshópur í tísku – smákrakkar – og litla fólkið virðist orðið mun
meðvitaðra um persónulegan stíl en áður. Þegar ég fór á RFF í vor
fékk ég litla vinkonu mína lánaða til að setjast mér við hlið á fremsta
bekk og sú stutta var svalari en allir þarna inni, með sín risavöxnu
svörtu gleraugu og blátt hár þar sem hún fylgdist grannt með sýning-
unni. Stór gleraugu og svalt attitjúd hjá krökkum er auðvitað ekkert
nema kjút en þegar ég rak augun í
tískubloggsíðu stúlkunnar, Tavi, varð
mér ekki um sel. Tavi er stórsniðugt,
stórskrýtið og dálítið ógnvænlegt
fyrirbæri í formi þrettán ára stúlku
frá New York sem hefur bloggað um
tísku frá því að hún var ellefu ára á
síðunni „Style Rookie“.
Tavi er alveg fáránlega smart og
virðist vera með alla putta á púls-
inum hvað heitustu tískustraumana
varðar. Fyrst þegar hún byrjaði að
blogga héldu flestir að þetta væri
eitthvert „feik“ því að barn gæti
aldrei haft slík tök á tískunni. En nei,
þessi eðlislæga náðargáfa hennar
hefur skotið henni upp á stjörnuhim-
ininn og í dag situr þessi pínulitla
stuttklippta stúlka með stóru gler-
augun á fremstu bekkjum hjá fræg-
ustu hönnuðum heims. Hún klæðir
sig oft eins og pínulítil gömul kona og
var meira að segja búin að lita hárið á sér grátt um daginn. Stundum
finnst mér hún furðulega lík tískubloggaranum Facehunter sem mætir
reglulega til Íslands. Miuccia Prada og Rei Kawakubo hreinlega dýrka
hana og þau og fleiri hönnuðir ausa yfir hana gjöfum í formi rándýrs
fatnaðar, fylgihluta og skótaus. Hún hefur setið fyrir á forsíðum ofur-
svalra tískublaða og verið í ótal viðtölum og fékk vikufrí í skólanum til
að geta mætt á tískuvikuna í New York.
Sniðugt, eða hvað? Þegar fyrirsætur í blöðum verða að vera sextán
ára er þá ekki skrýtið að lítið barn hafi svona mikinn áhuga á heimi
sem, því miður, er oft mengaður af yfirborðskennd, spillingu, djammi
og dópi? Og getur verið gott fyrir litla sál að hafa svona gífurlega mik-
inn áhuga á ytri klæðum manna í stað þess að vera bara heima hjá sér
að leika sér? Ég efast um að Tavi eigi marga jafnaldra vini. Þeim hlýt-
ur að þykja hún skrýtin. Og hvernig verður stúlkan þegar hún er rétt
skriðin yfir tvítugt? Útbrunnið tískufrík? „Í Gamla testamentinu gekk
fólk aðeins í fötum til að halda á sér hita því það var vilji Guðs,“ segir
hin gyðingatrúaða Tavi. „Ég hef hins vegar orðið fyrir mikilli upp-
ljómun hvað varðar föt og hef öðlast skýra sýn á því að föt geta verið
listaverk.“ Þessari stúlku ætla ég að fylgjast með.
Yngsti tískubloggari heims
> ENDURREISN HJÁ NEMUM Í LHÍ
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman hefur kennt nem-
endum Listaháskólans í fatahönnun listina að teikna
tísku og um helgina sýna nemendur afrakstur úr
tískuteiknunarkúrsinum. Sýningin stendur yfir í Hug-
myndahúsi háskólanna á Grandagarði og þar gefur að
líta gullfalleg og stórskemmtileg verk. Það er opið frá
12-17 á laugardag og sunnudag og áhugafólk um listir
og tísku ætti ekki að láta þetta framhjá sér fara.
ÞÆGILEGT Víðar
snjáðar gallabux-
ur við gegnsæja
siffonskyrtu.
SVEITALEGT
Krúttlegar
smekkbuxur við
blómaskyrtu.
GALLAEFNI Töffaraleg
síð gallaskyrta yfir
strákalegar buxur.
GAMALDAGS
Klassískur jakki og
skyrta við dökkar
gallabuxur.
RENDUR
Skyrtukjóll
með svörtu
og strákalegu
vesti yfir.