Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 104
64 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
Leikkonan Naomi Watts er að
eigin sögn látin í friði á götum úti
þar sem fáir átti sig á því hver
hún sé. „Fólk þekkir mig ekki.
Fólk hefur gengið upp að mér
og sagt við mig: „Þú líkist leik-
konunni Naomi Watts
mjög mikið.“ Og
þegar ég er með
Liev hafa stúlkur
ýtt mér í burtu
og hrópað: „Þetta
er gaurinn úr
Scream!“
Watts
hefur verið
í sambúð
með leikar-
anum Liev
Schreiber,
sem sló í
gegn í hroll-
vekjunni
Scream, frá
árinu 2005
og eiga þau
saman tvo
syni, Alexand-
er og Samuel.
Naomi líkist
sjálfri sér
ÞEKKIST EKKI
Naomi Watts
segist fá frið frá
ágengum aðdá-
endum því fólk
þekki hana ekki.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrrum klámmyndaleikkonan Jenna Jameson lenti í
útistöðum við sambýlismann sinn, glímukappann Tito
Ortiz, fyrir stuttu og var í kjölfarið flutt á sjúkrahús
til aðhlynningar. Jameson segir Ortiz ekki hafa gengið
í skrokk á sér heldur hafi þetta verið óhapp.
„Við höfðum rifist kvöldið áður og um morguninn
vakti Tito mig og sagðist hafa fundið lyf sem hann
hélt ég væri að ofnota. Við fórum aftur að rífast og
ég elti hann inn á baðherbergi. Hann er stór maður
og vegur næstum hundrað kíló þannig að þegar hann
ætlaði að ýta mér frá flaug ég á gólfið og lenti með öxl-
ina á baðkarið,“ úskýrir Jameson. Hún segist þó ekki
vera búin að ákveða hvort hún taki við sambýlis manni
sínum aftur þar sem hún hafi áður verið í ofbeldisfull-
um samböndum og lítur því atvikið mjög alvarlegum
augum.
Jenna ver sambýlismann sinn
MEIDDIST ÓVART Jenna Jameson segir sambýlismann sinn
ekki hafa ætlað að meiða hana. NORDICPHOTOS/GETTY
Eivör Pálsdóttir heldur
útgáfutónleika í Íslensku
óperunni í lok maí. Eivör
hefur ekkert heyrt í ævi-
söguritara sínum og er
orðin pínulítið stressuð.
„Ég hlakka mikið til að koma til
Íslands. Ég er ekki búin að syngja
mikið þar undanfarin ár og ég
sakna Íslands voða mikið,“ segir
færeyska söngkonan Eivör Páls-
dóttir. Hún heldur útgáfutónleika
í Íslensku óperunni 28. maí í til-
efni af útkomu sjöttu hljóðver-
splötu sinnar, Larva, sem kemur
í verslanir á þriðjudaginn.
Eivör var föst á Kastrup-flug-
velli í Kaupmannahöfn vegna
öskunnar úr Eyjafjallajökli þegar
Fréttablaðið ræddi við hana.
Útgáfutónleikar hennar í Fær-
eyjum verða haldnir á miðviku-
daginn og vonaðist hún eftir að
komast í flug sem fyrst til að geta
undirbúið sig.
Í Danmörku spilaði hún á ell-
efu tónleikum við góðar undir-
tektir en platan var tekin upp
þar í landi. „Hún er miklu hrárri
og er meira í átt að rokkmúsík
og tilraunamennsku en ég hef
verið að gera. Ég er að vinna
með alls konar hljóðheima. Þetta
eru aðeins meiri læti en fólk er
vant að heyra frá mér,“ segir
Eivör. „Ég fór í hljóðver í Dan-
mörku í tíu daga með hljómsveit-
inni minni og tók upp alla plöt-
una „live“ í hljóðverinu. Ég vildi
ná þessari hráu, „live“ stemn-
ingu á plötuna sem ég er rosalega
ánægð með.“
Komið hefur fram í fjölmiðlum
að tónlistarbloggarinn Jens Guð
sé að skrifa ævisögu Eivarar. Hún
kannast við málið en hefur ekk-
ert heyrt í Jens vegna bókarinn-
ar. „Eins lengi og maður má lesa
þetta áður og vera með í þessu þá
er þetta fínt. Ég er kannski pínu-
lítið stressuð ef það kemur eitt-
hvað út sem ég er ekki sátt við,“
segir hún. „Hann er búinn að tala
við fólk sem þekkir mig en er ekki
búinn að tala við mig.“ - fb
Eldgosið hægir á
Eivöru Pálsdóttur
EIVÖR PÁLSDÓTTIR Eivör gefur út plötuna Larva á þriðjudaginn. Hún var tekin upp á
tíu dögum í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
www. f j a l ako t tu r inn . i s