Fréttablaðið - 08.05.2010, Page 106
66 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
Hljómsveitin Kakali hefur
gefið út sína fyrstu plötu
sem nefnist The Cave.
Kakali var stofnuð í Reykjavík
2003 af tvíburunum Árna og Daða
Guðjónssonum og Kristjáni Árna
Kristjánssyni. Bassaleikarinn
Þorsteinn Hermannsson gekk svo
til liðs við sveitina fyrir skömmu,
auk þess sem Guðmundur Stefán
Þorvaldsson og Jón Geir Jóhanns-
son hafa spilað með henni.
Þrátt fyrir að hafa starfað í sjö
ár spilaði hún á sínum fyrstu tón-
leikum um síðustu helgi á Sódómu
Reykjavík. Tónleikar númer tvö
voru síðan haldnir á skemmti-
staðnum Dillon á föstudagskvöld.
Ástæðan fyrir þessum örfáu tón-
leikum er sú að hljómsveitarmeð-
limir hafa búið sitt á hvað, bæði
hér heima og erlendis, og aldrei
náð að hella sér út í tónleikahald.
„Við erum búnir að taka upp plöt-
una í bútum í gegnum árin, mest
í október síðastliðnum,“ segir
Kristján Árni, sem er söngvari
og gítarleikari sveitarinnar. „Við
erum búnir að vera að taka upp
á milli landa en núna erum við
tilbúnir. Við ætlum að drífa í að
gefa út plötuna og spila eins og
vitleysingar.“
The Cave, sem hefur að geyma
indírokk á ensku, er komin út
á síðunni Gogoyoko.com og á
Kakali.bandcamp.com. Um næstu
mánaðamót kemur hún síðan út á
geisladiski. Útgáfutónleikar eru
fyrirhugaðir um næstu mánaða-
mót. Þeir sem vilja fylgjast nánar
með hljómsveitinni geta kíkt á
Kakali.is eða á Facebook-síðu
hennar. freyr@frettabladid.is
Jenny McCarthy virðist vera búin
að jafna sig á sambandsslitunum
við leikarann Jim Carrey. Nýver-
ið sást til hennar kyssa annan
mann á dansgólfi í Las Vegas eftir
að hún hafði farið út á lífið með
systur sinni og nokkrum vinkon-
um. Eftir að hafa snætt gómsæt-
an humar á steikhúsi fór Jenny á
Playboy-klúbb og var þar í góðum
gír með nýja manninum. Hin 37
ára Jenny, sem er fyrrum Play-
boy-fyrirsæta, hætti með Carrey
í síðasta mánuði eftir fimm ára
samband. Þrátt fyrir það ætla þau
áfram að vera vinir.
Kossaflens í
Las Vegas
JENNY MCCARTHY Jenny virðist vera
búin að jafna sig á sambandsslitunum
við Jim Carrey.
Leikarinn Samuel L. Jackson var
mestmegnis í fötunum við upp-
tökur á kynlífsatriði í sinni nýj-
ustu mynd, Mother and Child. Þar
lék hann á móti hinni áströlsku
Naomi Watts. „Ég er ekki tilbúinn
fyrir nektina. Trúið mér, þið viljið
ekki sjá mig allan á stóra tjaldinu.
Naomi og ég vorum að kela en við
vorum að mestu í fötunum okkar,“
sagði Jackson. Hann hefur í nógu
að snúast um þessar mundir. Síð-
ast lék hann í Iron Man 2 og síðar
á þessu ári er væntanleg gaman-
myndin The Other Guys.
Hann snýr einnig
aftur sem Nick Fury
í Captain America:
The First Avenger.
Í fötunum í
kynlífsatriði
SAMUEL L. JACK-
SON Leikarinn
var í fötun-
um þegar
hann lék í
kynlífsatriði
með Naomi
Watts.
HÆTT SAMAN Halle Berry og Gabriel
Aubry eru hætt saman og enginn veit
af hverju.
Miklar vangaveltur hafa verið í
kringum sambandsslit leikkon-
unnar Halle Berry og Gabriels
Aubry, en þau tilkynntu fyrir
stuttu að þau höfðu slitið sam-
bandi sínu í janúar. Bandarískir
fjölmiðlar hafa þó ekki getað
komið sér saman um ástæðu sam-
bandsslitanna og hafa margar
sögur verið á kreiki þess efnis.
„Halle vildi flytja burt frá Los
Angeles og í rólegra hverfi en
Gabriel var ekki tilbúinn til þess
og sleit sambandinu. Þau unnu úr
sínum málum og ákváðu að deila
forræðinu yfir dóttur þeirra,
Nöhlu. Halle er sorgmædd en
ber höfuðið hátt,“ sagði einn
heimildarmaður um málið.
Halle
sorgmædd
KAKALI Hljómsveitin Kakali hefur gefið út sína fyrstu plötu sem nefnist The Cave. Á
myndina vantar Árna Guðjónsson sem býr í Noregi. Hann lítur alveg eins út og Daði
tvíburabróðir hans, sem er annar frá hægri á myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tvennir tónleikar á sjö árum
Leikarinn Russell Crowe er alveg
til í að leika í framhaldsmynd
um Hróa hött. „Við erum ekki
með neitt handrit tilbúið enn þá.
Ef fólk hefur gaman af þessari
mynd og kvikmyndaverið hefur
áhuga þá erum við Ridley [Scott
leikstjóri] alveg til í að gera aðra
svona mynd. Á tímum þegar allt
er gert með tölvubrellum og með
hjálp hasarmyndahetja þá er
ég meira en lítið til í það,“ sagði
Crowe, sem er einn af framleið-
endum Robin Hood. Myndin verð-
ur frumsýnd hér á landi á mið-
vikudaginn. Auk Crowe
leika helstu hlutverk
í myndinni Cate
Blanchett, Max Von
Sydow og William
Hurt.
Crowe til í
framhald
RUSSELL
CROWE Crowe
er tilbúinn til
að leika í fram-
haldsmynd um
Hróa hött.
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFINN ÓSKARSVERÐLAUNAHAFINN
SELFOSSKEFLAVÍK
ÁLFABAKKI
FRUMSÝND 12. MAÍ
FORSALA HAFIN Á