Fréttablaðið - 08.05.2010, Qupperneq 107
LAUGARDAGUR 8. maí 2010 67
Leikarinn David Boreanaz sem
fer með hlutverk í sjónvarpsþátt-
unum Bones viðurkenndi fyrir
stuttu að hafa haldið framhjá
eiginkonu sinni til níu ára. Upp
komst um framhjáhaldið
þegar hjákonan reyndi
að kúga fé út úr Borean-
az. Framleiðandi sjón-
varpsþáttanna Bones
gaf út tilkynningu
fyrir hönd leik-
arans í vikunni
og sagði hann
miður sín vegna
málsins. „David
Boreanaz er
miður sín, hann
þakkar aðdá-
endum sínum
fyrir þann
stuðning sem
þeir hafa sýnt
honum og hann
er harðákveðinn
í að vinna úr sínum
málum.“
Sér eftir
framhjáhaldi
Söngkonan Britney Spears er
víst komin með nóg af kærasta
sínum, umboðsmanninum Jason
Trawick, og hefur beðið föður
sinn um að finna handa henni
nýjan kærasta. Samkvæmt heim-
ildarmanni hefur söngkonan
afhent föður sínum lista með
draumamönnum sínum, en þeirra
á meðal eru leikarinn Ryan
Phillippe, raunveruleikastjarn-
an Doug Reinhardt og Avatar-
stjarnan Sam Worthington.
„Britney vill helst vera búin að
finna nýjan kærasta áður en hún
hættir með Jason. Hún þolir ekki
að vera ein og vill þess vegna
að pabbi hennar gangi strax í
málið.“
Langar í nýj-
an kærasta
KOMIN MEÐ NÓG Britney Spears vill að
faðir sinn finni handa sér nýjan kærasta.
NORDICPHOTOS/GETTY
MIÐUR SÍN David Bor-
eanaz er miður sín eftir
að hafa haldið framhjá
eiginkonu sinni.
Bít i l l i n n f y r r -
verandi, Sir Paul
McCartney, neitar
að gefa eiginhandar-
áritanir þegar hann
vill njóta einkalífs-
ins.
„Það getur verið
pirrandi að vera
frægur. Núna fer ég
eftir reglum. Ég hef
loksins áttað mig á
því að ég hef mín réttindi. Þegar
fólk gengur upp að mér á veitinga-
stað og biður um eiginhandarár-
itun segi ég: „Því miður. Ég gef
ekki áritanir þegar ég er að borða.
Vonandi geturðu
skilið það. En ég skal
taka í höndina á þér
og spjalla við þig“,“
sagði McCartney.
„Mér finnst í góðu
lagi að tala við fólk
en um leið og það
vill breyta mér í
einhverja stjörnu
sem ég forðast að
vera á þeim tíma-
punkti segi ég: „Nei ég tek ekki
þátt í þessu“. 99,9 prósent fólks er
mjög skilningsríkt vegna þess að
það skilur ef maður vill vera út af
fyrir sig.“
Einkalíf án áritana
SIR PAUL MCCARTNEY Bítillinn
fyrrverandi vill ekki alltaf gefa
eiginhandaráritanir.
Rokkkóngurinn Elvis Presley
lést af völdum hægðatregðu.
Hingað til hefur því verið haldið
fram að hann hafi látist af völd-
um hjartaáfalls en það virðist
ekki vera rétt.
Elvis fannst látinn á klósett-
inu heima hjá sér árið 1977, 42
ára. Samkvæmt þáverandi lækni
hans, George „Nick“ Nichopou-
los, neitaði kóngurinn að fara í
skurðaðgerð, sem hefði bundið
enda á vandamálið.
„Við áttuðum okkur ekki á
því fyrr en við krufninguna að
hægðatregðan hefði verið svona
slæm,“ sagði læknirinn. „Hann
skammaðist sín fyrir þetta.
Hann lenti í slysum á sviðinu.
Hann þurfti að skipta um föt og
koma aftur vegna þess að við
vorum að reyna að meðhöndla
vandamálið.“
Samkvæmt því sem kemur
fram í bók Nichopoulos, The
King and Doctor Nick, þjáðist
Elvis af arfgengum kvilla sem
nefnist iðralömun en í krufning-
unni kom í ljós að ristillinn hans
var tvöfalt stærri en í venjulegu
fólki.
„Ef hann hefði farið í aðgerð á
ristlinum væri hann líklega enn
á lífi,“ sagði læknirinn.
Hægðirnar í ólagi hjá kónginum
ELVIS PRESLEY Rokkkóngurinn lést af
völdum hægðatregðu, samkvæmt lækni
hans, Nichopoulos.
VELDU
ÞINN STAÐ
Reykjavíkurborg auglýsir eftir kauptilboðum í byggingarrétt
fyrir íbúðarhús á eftirtöldum lóðum í Reykjavík. Um er að
ræða lóðir í grónum hverfum borgarinnar.
Lóðir í grónum hverfum
l Fimm lóðir fyrir um 350 fermetra keðjuhús við Lautarveg í Fossvogi.
l Fimm lóðir fyrir um 275-300 fermetra einbýlishús við Blesugróf, Jöldugróf
og Bleikargróf.
l Einbýlishúsalóð við Lambasel (með grunni).
l Einbýlishúsalóð við Bauganes.
Skilafrestur tilboða
Tilboð skulu gerð á sérstökum tilboðseyðublöðum, sem Reykjavíkurborg lætur í té,
og skal þeim skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, Reykjavík,
fyrir kl. 16:15 miðvikudaginn 19. maí 2010, merkt „Kauptilboð – 2010“.
Hver bjóðandi skal greiða kr. 300.000,- tilboðstryggingu þegar tilboði er skilað.
Tilboð verða opnuð að viðstöddum bjóðendum kl. 16:30.
Skilmálar og önnur útboðsgögn
Allir skilmálar og gögn varðandi lóðirnar og útboð byggingarréttarins eru
aðgengileg á lóðavefsíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/lodir.