Fréttablaðið - 08.05.2010, Side 112
72 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
Lið: FH
Spá Fréttablaðsins: 2. sæti.
Árangur í fyrra: Íslandsmeistarar.
Þjálfari: Heimir Guðjónsson.
Lykilmaður: Matthías Vilhjálms-
son.
Styrkleikar: Frábær markvörður,
sterk varnarlína, öflugir miðju-
menn, góð framlína, sterkur
heimavöllur, sigurhefð í hópnum.
Veikleikar: Meiri breyting á liði
milli ára en áður, misstu lykil-
menn, ekki sama breiddin og
áður.
Helstu breytingar: Liðið missti
Tryggva Guðmundsson, Davíð
Þór Viðarsson, Daða Lárusson
og Dennis Siim en fékk Gunn-
leif Gunnleifsson, Gunnar Már
Guðmundsson, Torger Motland og
væntanlega Jesper Neestrup.
Lið: KR.
Spá Fréttablaðsins: 1. sæti.
Árangur í fyrra: 2. sæti.
Þjálfari: Logi Ólafsson.
Lykilmaður: Bjarni Guðjónsson.
Styrkleikar: Gríðarleg breidd,
stórskotalið í framlínunni, sterkir
miðjumenn, frábær heimavöllur,
liðið minna breytt en síðustu ár.
Veikleikar: Mikil pressa, erfitt að
halda öllum ánægðum.
Helstu breytingar: Liðið missti
Andre Hansen, Atla Jóhanns-
son, Guðmund Benediktsson,
Guðmund Pétursson en fékk
Guðjón Baldvinsson, Guðmund
Reyni Gunnarsson, Kjartan Henry
Finnbogason, Lars Ivar Moldskred
og Viktor Bjarka Arnarsson.
FÓTBOLTI Pepsi-deild karla hefst
eftir aðeins tvo daga og Frétta-
blaðið birtir í dag umfjöllun um
þau lið sem við teljum að muni bít-
ast um Íslandsmeistaratitilinn í ár.
Það eru liðin sem enduðu í fyrsta
og öðru sæti síðasta sumar.
2. sæti – FH
Einn helsti styrkleiki FH síðustu
ár er hversu litlar breytingar
hafa orðið á liðinu milli ára. Í ár
er staðan aðeins önnur enda hefur
liðið misst þrjá algjöra lykilmenn
– Davíð Þór Viðarsson, Tryggva
Guðmundsson og Daða Lárusson.
FH fékk reyndar enn betri mann
í markið fyrir Daða, Gunnleif
Gunnleifsson. Góður markvörð-
ur er gulls ígildi og Gunnleifur á
örugglega eftir að verða nokkurra
stiga virði fyrir FH-inga.
Skörð þeirra Tryggva og Dav-
íðs hafa ekki verið fyllt eins vel.
Davíð Þór hefur verið prímusmót-
orinn í þessu liði undanfarin ár
og slíkt skarð er einfaldlega ekki
fyllt svo auðveldlega. Gunnar Már
Guðmundsson er mættur til FH í
staðinn. Flestir þekkja hæfileika
drengsins en hann þekkir ekkert
nema Fjölni og hefur aldrei sannað
sig annars staðar.
Hann hefur alla burði til þess
að standa sig afar vel en er samt
ákveðið spurningamerki. Frammi-
staða hans í vorleikjunum hefur að
margra mati ekki verið nógu sann-
færandi.
Þó svo Tryggvi hafi ekki spil-
að jafn mikið í fyrra og síðustu
ár þá má engan veginn vanmeta
hans frábæra framlag. Tryggvi
er mikill sigurvegari og tryggði
FH-ingum ófá stigin með annað-
hvort mikilvægum mörkum eða
frábærri stoðsendingu. Tryggvi er
maður sem getur gjörbreytt gangi
leikja og FH mun klárlega sakna
hans mikið í sumar.
FH hefur ekki gengið sem skyldi
á leikmannamarkaðinum og hreyf-
ingar þeirra á markaðinum síðustu
vikur lykta af ákveðinni örvænt-
ingu. Motland bauð ekki upp á
neina flugeldasýningu er hann
kom til landsins en fékk samt
samning enda vantaði FH fram-
herja. Að FH sé síðan að reyna að
draga Bjarka Gunnlaugsson á flot
sýnir svo ekki verður um villst að
FH er ekki sérstaklega öruggt með
sig fyrir tímabilið.
Liðið vantar þess utan afgerandi
leiðtoga. Horfa margir til Matthí-
asar Vilhjálmssonar í þeim efnum
og það mun mæða mikið á honum
í sumar.
Í fyrsta skipti í mörg herrans
ár yrði það afrek hjá FH að verða
Íslandsmeistari en ekki skylda í
augum margra. Heimir Guðjóns-
son kann því eflaust vel að vera
ekki undir sömu pressu og síðustu
ár en hann mun samt aldrei sætta
sig við neitt annað en þann stóra.
1. sæti – KR
Þó svo breytingar séu á KR-liðinu
milli ára er beinagrindin í liðinu
frá því í fyrra til staðar og rúm-
lega það. KR ætti því að ná þeim
stöðugleika sem hefur vantað upp
á þetta sumarið. Frammistaða
liðsins gefur klárlega til kynna að
liðið sé mun sterkara en það var
í fyrra.
Skal svo sem engan undra enda
á KR tvo menn í hverja stöðu og
hreinlega þrjá leikmenn í nokkrar
stöður. Pressan er því öll á KR í
sumar. Allt nema Íslandsmeistara-
titill er vonbrigði fyrir KR, sama
hversu mikið þjálfarinn reynir
að tala pressuna niður. Nú duga
hreinlega engar afsakanir.
Logi Ólafsson, þjálfari KR, þarf
því að vinna við nýjar aðstæð-
ur í sumar og verkefnið verður
erfitt þó svo efniviðurinn sé til
staðar. Sagan sýnir nefnilega að
KR hefur ekkert allt of oft geng-
ið vel að standa undir væntingum
þegar félagið er með besta liðið á
pappírnum fræga.
Það mun virkilega reyna á hann
að búa til samheldni í hópnum
með öllum þessum stjörnum. Það
verður ekki auðvelt verk að halda
öllum leikmönnum ánægðum. Það
er hætta á að þeir sem verða fúlir
fari í baktal og niðurrifsstarfsemi,
slíkt hefur komið fyrir áður. Þarna
þarf Logi að vera klókur á sama
tíma og hann þarf að passa sig á
því að halda réttu jafnvægi í lið-
inu í stað þess að troða mönnum
í hinar og þessar stöður bara til
þess að láta þá spila.
Miðað við fjölda sóknarmanna
sem KR hefur verður sókn líklega
besta vörnin hjá KR. Það ætti því
að verða gaman að fylgjast með
leikjum liðsins í sumar en það
mun reyna á andlega hliðina hjá
leikmönnum.
Fyrstu leikirnir eru gegn nýlið-
unum tveimur. Þar ætti KR að
næla í sex auðveld stig en mis-
stígi liðið sig í upphafi gæti komið
skjálfti í hópinn. henry@frettabladid.is
Pressan farin af FH yfir á KR
Fréttablaðið spáir því að KR hampi Íslandsmeistaratitlinum í ár en að FH þurfi að sætta sig við annað
sætið að þessu sinni. Það er minni pressa á FH í ár en mörg síðustu ár en mikil pressa er á Vesturbæingum.
LYKILLINN AÐ MEISTARATITLINUM? Bjarni Guðjónsson er leiðtogi KR-liðsins og mað-
urinn sem á að binda liðið saman inni á vellinum. Hann mun þurfa að vera í sínu
allra besta formi ætli KR sér alla leið í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI KR-ingum var spáð
Íslandmeistaratitlinum í árlegri
spá fyrirliða, þjálfara og forráða-
manna liðanna í Pepsi-deild karla
en pressan hefur oft farið illa
með Vesturbæjarliðið.
KR-ingar hafa aðeins þrisvar
sinnum unnið titilinn í þau ellefu
skipti sem liðinu hefur verið spáð
titlinum í þessari árlegu spá.
KR-liðið vann titilinn 1999, 2000
og 2003 en hefur oftar endað í
fimmta sæti eða neðar þegar lið-
inu hefur verið spáð svona góðu
gengi í sumarbyrjun.
Þegar meistaraspáin er skoðuð
betur kemur í ljós að önnur lið
hafa unnið í 9 af 14 skiptum sem
þeim hefur verið spáð titlinum
(64 prósent) sem er mun betri
árangur spámannanna en þegar
þeir hafa spáð KR titlinum en þá
státa þeir aðeins af 27 prósenta
árangri. - óój
Gengi KR þegar félaginu er
spáð titlinum að vori:
2004 6. sæti (FH varð meistari)
2003 Íslandsmeistarar
2001 7. sæti (ÍA)
2000 Íslandsmeistarar
1999 Íslandsmeistarar
1997 5. sæti (ÍBV)
1996 2. sæti (ÍA)
1995 2. sæti (ÍA)
1994 5. sæti (ÍA)
1993 5. sæti (ÍA)
1991 3. sæti (Víkingur)
KR spáð titlinum í 12. sinn:
Aðeins klárað
titilinn þrisvar
LOGI ÓLAFSSON Vann titilinn með
Víkingi (1991) og ÍA (1995) þegar KR var
spáð titlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR
FÓTBOLTI Lokaumferðin í ensku
úrvalsdeildinni fer fram á morg-
un og þá ræðst það hvort Chelsea
tekst að enda þriggja ára sigur-
göngu Manchester United og vinna
meistaratitilinn í fyrsta sinn síðan
2006. Þetta er aðeins í fimmta sinn
sem titillinn vinnst á lokadeginum
síðan úrvalsdeildin var sett á lagg-
irnar 1992. Chelsea er með eins
stigs forskot á Manchester Unit-
ed og það lið sem var í sömu stöðu
og Chelsea hefur alltaf hampað
titlinum í lokaumferðinni.
Chelsea er á heimavelli á móti
Wigan þar sem liðið hefur unnið 16
af 18 leikjum í deildinni og skorað
í þeim 60 mörk. Það gerir þennan
leik þó aðeins athyglisverðari að
Wigan vann fyrri leik liðanna 3-1.
„Það eru ekki fleiri leikir í
boði. Ef við nýtum ekki tækifær-
ið núna þá er enginn möguleiki á
því að bæta fyrir það,“ sagði Carlo
Ancelotti, stjóri Chelsea, sem á
möguleika á að gera Chelsea að
meisturum á sínu fyrsta ári með
liðið.
„Við erum í mjög góðri stöðu en
við vildum samt vera með fleiri
stig en við erum með. Við erum
samt með einu stigi meira en
United. Það er gott að geta ráðið
örlögum sínum sjálfur og það á
heimavelli okkar á Brúnni. Við
verðum samt að spila þennan leik
og það er ekkert klárt ennþá,“
sagði Ancelotti. „Þeir eru með
mjög gott lið og unnu okkur fyrr á
tímabilinu. Við verðum því að vera
vakandi,“ sagði Ancelotti.
„Mér er alveg sama hvor verð-
ur meistari því ég hef bara áhuga
á því hvernig við spilum. Það er
mikilvægt að enda tímabilið með
góðri frammistöðu á Brúnni,“
sagði Roberto Martinez, stjóri
Wigan.
Manchester United er líka á
heimavelli og á móti liði Stoke sem
steinlá 7-0 á móti Chelsea fyrir
tveimur vikum. Stoke á enn mögu-
leika á níunda sætinu eftir sigur á
Fulham í vikunni en þá þarf félag-
ið að gera það sem því hefur ekki
tekist frá því að það kom upp – að
skora mark hjá United.
„Ég hef trú á Wigan og að það
reyni sitt besta. Við getum samt
ekki búist við því að Chelsea tapi
stigum. Það er pressa á báðum lið-
unum því bæði liðin þurfa að vinna
sinn leik. Ég veit ekki hvað fer í
gegnum hugann á Chelsea-mönn-
um en það eina sem við getum gert
er að vona,“ sagði Alex Ferguson,
stjóri Manchester United. - óój
Chelsea og Manchester United berjast um titilinn í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn:
Chelsea vinnur titilinn með sigri á Wigan
STJÓRARNIR Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, og Carlo Ancelotti,
stjóri Chelsea.
MYND/AFP
FÓTBOLTI Íslands- og bikarmeist-
arar Vals bættu við þriðja titl-
inum í vor þegar liðið vann 1-0
sigur á Breiðabliki í Meistara-
keppni KSÍ í gær. Valur hafði
áður unnið Reykjavíkurmeistara-
titilinn og Lengjubikarinn. Þetta
er fjórða árið í röð og í sjötta sinn
á sjö árum sem Valsliðið vinnur
Meistarakeppnina.
Dagný Brynjarsdóttir skoraði
tvö glæsileg mörk með mínútu
millibili í seinni hálfleik eftir
að Kristín Ýr Bjarnadóttir hafði
komið liðinu í 1-0 eftir 6 mínútur
og Katrín Jónsdóttir bætt við
öðru marki á 66. mínútu. - óój
Meistarakeppni kvenna í gær:
Valur vann
fjórða árið í röð