Fréttablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 15. maí 2010 7 Blikksmiður óskast! Óskum eftir blikksmið, eða aðila vönum blikksmíðavinnu. Þarf að geta byrjað strax. Vinsamlegast sendið póst á box@frett.is, merkt; Blikksmiður-1508 Viltu vera í okkar liði? Nánari upplýsingar veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is. Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 23. maí nk. Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Actavis hf. er eitt af dótturfyrirtækjum samstæðunnar og er framleiðslueining fyrirtækisins hér á Íslandi. Fyrirtækið er staðsett í Hafnarfirði og hjá okkur starfa um 300 starfsmenn, flestir á framleiðslu- og gæðasviðum. Verkefnastjóri þjálfunar í töfludeild Hlutverk verkefnastjóra þjálfunar er að tryggja að þjálfun starfsmanna töfludeildar sé af þeim gæðum sem þarf til að uppfylla kröfur um góða framleiðsluhætti í lyfjagerð (cGMP). Verkefnastjóri sér til þess að þjálfunarkerfi deildarinnar stuðli að því á hverjum tíma að starfsmenn vinni sín störf með það fyrir augum að hámarka framleiðni og fylgja nauðsynlegum öryggis- og gæðakröfum. Í starfinu felst meðal annars gerð þjálfunaráætlana og starfslýsinga, mat á starfsmönnum og þjálfurum, gerð og yfirferð kennslugagna og móttaka nýliða. Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun á sviði kennslu-, fræðslu- eða mannauðsstjórnunar, eða sambærilega menntun. Viðkomandi þarf að vera drífandi og með framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Gerð er krafa um skipulagshæfni og nákvæmni. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði. Actavis býður upp á… snyrtilegan og öruggan vinnustað fjölskylduvænt starfsumhverfi góðan starfsanda gott mötuneyti fræðslu og þjálfun iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni sem sinna heilsuvernd starfsmanna árlegan styrk til íþróttaiðkunar auk fræðslustyrks öflugt starfsmannafélag TM // Síðumúla 24 // Sími 515 2000 // tm@tm.is // www.tm.is Starfssvið: // Mótun og þróun vefstefnu TM // Umsjón og ábyrgð á ytri vefjum TM // Þátttaka í mótun á nýjum innri vef félagsins // Samskipti við undirverktaka // Aðkoma að hönnun og uppsetningu vef- og kynningarefnis TM // Önnur tilfallandi verkefni tengd markaðsmálum félagsins Vefstjóri TM Tryggingamiðstöðin auglýsir starf vefstjóra. Starfið heyrir undir forstöðumann markaðs- og kynningarmála á samskiptasviði TM. Viðkomandi þarf að búa yfir frumkvæði og metnaði og geta unnið sjálfstætt. Umsóknarfrestur um starfið er til og með næstkomandi. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á netfangið . Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Ragnhildur Ragnarsdóttir, , veitir frekari upplýsingar um starfið. Hæfniskröfur: // Háskólamenntun sem nýtist í starfi // Mjög góð íslenskukunnátta og færni í rituðu máli // Þekking og reynsla af HTML og umbrots- forritum (Quark / InDesign) // Þekking og reynsla af vefhönnun og CSS er kostur // Brennandi áhugi á vef- og markaðsmálum // Vönduð og skipulögð vinnubrögð // Hæfni í mannlegum samskiptum Aðallögfræðingur Alþingis Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir aðallögfræðingi. Starfssvið: • Almenn lögfræðistörf fyrir skrifstofu Alþingis. • Rannsóknir og athuganir á sviði stjórnskipunarréttar. • Undirbúningur og aðstoð við ýmis lögfræðileg verkefni fyrir forseta Alþingis og skrifstofuna. • Ýmis önnur verkefni á skrifstofu forseta Alþingis. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í lögfræði (kandídats- eða meistarapróf). Sérstök þekking á sviði stjórnskipunarréttar er æskileg. • Gott vald á íslensku máli og færni í að skrifa greinargerðir og minnisblöð. • Lipurð í mannlegum samskiptum, góð framkoma og þjónustulund. • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi . Staðan er laus nú þegar. Launakjör eru samkvæmt kjara- samningi Félags starfsmanna Alþingis. Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Magnússon aðstoðar- skrifstofustjóri (stjórnsýsla) í síma 5630500. Umsóknir ásamt greinargóðum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast skrifstofu Alþingis, Kirkjustræti 10, 150 Reykjavík, merktar “aðallögfræðingur”, eigi síðar en 4. júní nk. Umsóknir má einnig senda með tölupósti á netfangið starfsmannahald@althingi.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.