Fréttablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 36
6 FERÐALÖG
S
t. Pétursborg er stór-
merkileg. Þótt hún virð-
ist vestræn á marga vegu
kemur fljótt í ljós að það
býr margt að baki þessarar merki-
legu borgar.
Borgin er ekki nema 300 ára
gömul en á þeim skamma tíma
hefur hún gengið í gegnum miklar
raunir, allt frá því að Pétur mikli
byggði hana sem glugga Rússlands
að Evrópu, þar til kommúnisminn
féll árið 1991 og allt til dagsins í
dag. Fólkið hér er áhugavert. Það
er ekki sérlega gefið fyrir þjón-
ustulund og flestir halda sér út af
fyrir sig. Ég tók eftir því frá fyrsta
degi að fólk er ekkert sérstaklega
hjálpsamt. Síðar var mér gert ljóst
að þetta ríkir sterkt í þjóðarsálinni
vegna áhrifa Stalíns. Þegar hann
var við völd var ekki óalgengt að ef
fólk skipti sér af einhverju eða var
hreinlega fyrir gat gerst að það yrði
kært fyrir landráð eða hreinlega
tekið af lífi.
Hálfmállaus vegna vanþekk-
ingar minnar á rússnesku rölti ég
gegnum götur ballettakademíunnar
að styttu Katrínu miklu sem horfir
tignarlega í áttina að Nevskí sem
er aðalgata Pétursborgar. Hinn
9. maí síðastliðinn var haldin þar
heljarinnar skrúðganga til að fagna
lokum seinni heimsstyrjaldarinn-
ar. Það gefur augaleið að mikið var
um fagnaðarlæti sérstaklega þegar
verið var að hylla þá sem lifðu af
ÞAR SEM TSARINN
Perlan í austri, Pétursborg, er merkileg fyrir ríkulega sögu og stórfenglegan arkitektúr. V
stödd í borginni og fangaði fegurð hennar fyrir Ferðalög.
Litríkir turnar Hér er blóðkirkjan í allri sinni dýrð.
Virðulegur byggingarstíll Drungalegur himinn á maímorgni í Pétursborg.
Horft yfir ána Útsýni yfir Vetrarhöllina.
PÓSTKORT FRÁ PÉTURSBORG
Skrúðganga á Nevskí Endaloka síðari heimsstyrjaldarinnar minnst.
17.–22.08.
HELSINKI OG TALLINN
Verð á mann frá: 140.840,-
Innifalið í verði er flug, flugvalla-
skattar, gisting í tveggjamanna
herbergjum, morgunverður, skoðun-
arferð um Helskinki, sigling til og
frá Tallinn og skoðunarferð þar,
skoðunarferð til Porvoo og íslenzk
fararstjórn.
Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson
Verð miðast við gengi og forsendur
23. marz 2010 og 30 manna hóp.
Leitið nánari upplýsinga og kynnið
ykkur fleiri ferðir á okkar vegum á
heimasíðu okkar www.ferdir.is
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf.
Sími 511 1515
www.ferdir.is outgoing@gjtravel.is