Fréttablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 82
46 15. maí 2010 LAUGARDAGUR
Páll Óskar, Jói Fel, Jón
Ársæll, Sveppi og fleiri
frægir sýndu á sér nýjar
hliðar í þættinum Steindinn
okkar í gærkvöldi. Steindi
hefur fengið góðar viðtökur
og segir lítið mál að fá fólk
til að taka þátt í gríninu.
„Páll Óskar og Jói voru strax til í
þetta og mjög hressir. Þeir gerðu
líka allt sem við báðum þá um að
gera, þeim fannst þetta ekkert
skrýtið, enda sturlaðir menn eins
og atriðið sýnir,“ segir grínistinn
Steindi Jr.
Lokaatriðið í Steindanum okkar
í gær vakti mikla athygli, en þar
börðust t.d Páll Óskar og Jói Fel,
en sá síðarnefndi notaði sérbökuð
vínarbrauð sem vopn. „Við vorum
heppnir að Jói var nýbúinn að
dæma sveinspróf, þannig að hann
kom bara með poka af nýbökuðu
með sér.“
Spurður hvort hann lendi í erf-
iðleikum með að fá fræga fólk-
ið til að taka þátt í gríninu, segir
Steindi að það sé þvert á móti
mjög auðvelt. „Það er alltaf meira
vesen að fá vini sína í að gera eitt-
hvað,“ segir hann.
Fréttablaðið greindi frá því að
fyrsti þáttur Steinda hafi slegið
gullkálfunum Sveppa og Audda
við í áhorfi á meðal áskrifenda
Stöðvar 2. Þeir hafa báðir farið
með hlutverk í Steindanum okkar
og Steindi forðast þórðargleði
þegar þetta er borið undir hann.
„Þetta er náttúrlega engin keppni
– við erum á sömu stöðinni,“ segir
Steindi og kveðst ánægður með
góðar viðtökur.
atlifannar@frettabladid.is
Erfiðara að plata vinina
til að leika en fræga fólkið
HNÍFABARDAGI
Páll Óskar og Jói Fel berjast upp á líf og dauða
í þættinum Steindinn okkar. Jói notaði að sjálf-
sögðu sérbakað vínarbrauð sem vopn, en Páll
varðist fimlega með hnífi. Steindi segir talsvert
erfiðara að fá vini sína til að taka þátt í gríninu,
en þekktu einstaklingarnir eru yfirleitt strax til í
tuskið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fjölmiðlar hið vestra halda
áfram að velta sér upp úr sam-
bandsslitum Óskarsverðlauna-
hafans Halle Berry og fyrrum
sambýlismanns hennar, Gabriels
Aubry. Nýjustu fregnir herma að
Aubry hafi þegar fundið sér nýja
kærustu og ku sú starfa sem fyr-
irsæta líkt og hann. „Að vita það
að Gabriel hafi komist svo fljótt
yfir sambandsslitin og sé farinn
að hitta aðra konu gerir Halle
mjög öfundsjúka. Gabriel dvaldi
mikið í heimalandi sínu, Kan-
ada, á meðan þau voru saman og
Halle óttaðist oft að hann væri
farinn að hitta aðra konu,“ var
haft eftir heimildarmanni.
Öfundsjúk
ÖFUNDSJÚK Halle Berry óttaðist að
sambýlismaður sinn yfirgæfi hana fyrir
aðra konu. NORDICPHOTOS/GETTY
Hönnunarsamkeppni
um hönnun barmmerkis
Fyrir Skottur félag um Kvennafrídaginn á vegum
Hönnunarmiðstöðvarinnar. Merkið á að selja til styrktar
baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og mansali. Merkið þarf
að höfða bæði til karla og kvenna.
Verðlaunahafinn hlýtur 250.000 kr. í verðlaun.
Skila skal hugmyndum fyrir mánudaginn 14. júní 2010.
Úrslit samkeppninnar verður tilkynnt laugar-daginn 19.
júní 2010. Sýning á völdum innsendingum fer fram á sama
tíma.
Skottur félag um 24. október munu eiga einkarétt á notkun
merkisins sem verður fyrir valinu.
Sjá nánar á honnunarmidstod.is og kvennafri.is