Fréttablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 88
52 15. maí 2010 LAUGARDAGUR FÓTBOLTI Landsliðskonan Guðrún Sóley Gunnarsdóttir hefur ekki enn jafnað sig eftir tvö höfuð- högg sem hún fékk síðasta sumar – fyrst í leik gegn Frakklandi á EM í Finnlandi og svo með félagi sínu, Djurgården, í Svíþjóð. Tæpir níu mánuðir eru síðan Guðrún Sóley fékk fyrra höfuð- höggið sem hún er enn að jafna sig á í dag. Það var í fyrri hálf- leik í fyrsta leik Íslands í Finn- landi. Hún kláraði ekki bara leik- inn, heldur alla aðra leiki Íslands á mótinu. Þegar tímabilið hófst svo aftur í Svíþjóð þrýstu forráðamenn Djurgården á hana um að spila með liðinu á lokaspretti tímabilsins og gaf læknir félagsins grænt ljós á það. En Guðrún Sóley fékk aftur í þriðja leik sínum eftir EM þungt höfuðhögg og heilahristing sem hafði alvarlegar afleiðingar. „Þetta versnaði nokkuð eftir síðara höggið,“ segir Guðrún Sóley við Fréttablaðið. „Ég var með hausverk í 3-4 mán- uði og var vissulega orðin skelkuð um heilsufar- ið mitt. Ég var orðin stressuð á því að þetta myndi ekki fara. En ég er orðin betri í dag og hætt að fá hausverk á hverjum degi. Ég fæ enn hausverk af og til en ég er orðin bjartsýn á að ég nái mér.“ „En ég hafði aldrei á ævinni fengið hausverk áður en ég fékk höggið í leiknum gegn Frökkum. Eftir það byrjaði ég bæði að fá stöðuga hausverki sem og mígreniköst,“ segir Guðrún Sóley. Læknar hennar segja að hún þjáist af því sem kallað er á ensku „post- concussion syndrome“. „Það sem gerðist er að ég fékk mar á heila sem getur verið lengi að jafna sig. Læknarnir geta í raun ekkert sagt um lengd bataferlisins en það getur verið allt frá nokkrum mánuðum til nokkurra ára. Þetta eru því mjög óvenjuleg meiðsli fyrir íþróttamann að því leyti.“ Þrátt fyrir að ástand hennar sé skárra nú hefur hún ekkert getað sinnt knattspyrnunni. „Ég get enn ekki hlaupið án þess að fá hausverk – og maður þarf víst að hlaupa eitt- hvað í fótbolta,“ segir hún í léttum dúr. „Það eina sem ég get gert er bara að bíða róleg. Ég vona auð- vitað að ég komist aftur í boltann en ætla þó ekki að taka neina áhættu og flýta mér of fljótt af stað.“ Samningur hennar við Djurgården rann út í haust og samdi hún við félagið á nýjum forsendum. „Ég fæ í raun algerlega að stjórna ferðinni sjálf nú og þarf ekki að hlusta á neina aðra lækna en mína eigin,“ segir hún. „Það þýðir að ég er reyndar á lægri launum en þau hækka þegar ég byrja að spila aftur,” sagði hún en Guðrún hefur unnið í sænska seðlabankanum samhliða boltanum. eirikur@frettabladid.is Var farin að óttast um heilsufarið Guðrún Sóley Gunnarsdóttir er enn frá knattspyrnuiðkun vegna höfuðmeiðsla sem hún varð fyrir í fyrra. Hún var með höfuðverk í marga mánuði en hefur skánað heilmikið. „Fékk aldrei hausverki áður,“ segir hún. GUÐRÚN SÓLEY Hennar er sárt saknað úr íslenska landsliðshópnum en hér er hún í leik gegn Þýskalandi á EM í Finnlandi. NORDIC PHOTOS/AFP Í janúar síðastliðnum neyddist Guðrún Sóley til að hafna draumatilboði frá liði í bandarísku atvinnumannadeildinni – Chicago Red Stars vegna höfuð- meiðsla sinna. „Ég var enn með hausverk þegar kom að því að taka lokaákvörðun og því treysti ég mér engan veginn til að fara út. Það var eftir á að hyggja rétt ákvörðun enda er tímabilið hafið þar núna og ég get enn ekkert spilað. En þetta var vissulega frábært tækifæri og sem betur fer hafði þjálfari liðsins skilning á þessu. Hún hafði sjálf hlotið sömu meiðsli sem leikmaður og við ætlum aftur að vera í sambandi fyrir næsta ár,“ segir hún. Hafnaði draumatilboði frá Bandaríkjunum FÓTBOLTI Breiðholtsliðin ÍR og Leiknir, eru einu liðin með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir 1. deildar karla í fót- bolta, eftir sigur í leikjum sínum. Víkingur, KA og HK unnu einn- ig sína leiki í fyrstu umferð en náðu ekki að fylgja þeim sigrum eftir í gær. Hilmar Árni Halldórs- son tryggði Leikni 1-0 sigur á Þór Akureyri og Björn Viðar Ásbjörnsson skoraði bæði mörk ÍR-inga í 2-1 sigri í Njarðvík. Oddur Björnsson og Haraldur Björnsson tryggðu Þrótti 1-0 úti- sigur á HK. Oddur skoraði sigur- markið á 65. mínútu og Haraldur Björnsson varði víti frá HK- manninum Ásgrími Albertssyni á 71. mínútu. - óój 1. deild karla í fótbolta í gær: Breiðholtið með fullt hús Í STRANGRI GÆSLU Þróttarar vörðust vel í gær og unnu HK 1-0. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Úrslit í 1. deild karla í gær: KA-Grótta 1-1 Haukur Hinriksson - Magnús Bernhard Gíslason. HK-Þróttur 0-1 0-1 Oddur Björnsson (65.) Leiknir R.-Þór Ak. 1-0 Hilmar Árni Halldórsson Fjölnir-Víkingur 2-2 Viðar Guðjónsson, Pétur Georg Markan - Dofri Snorrason, Þorvaldur Sveinsson Njarðvík-ÍR 1-2 Ísleifur Guðmundss. - Björn Viðar Ásbjörnss. 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.