Fréttablaðið - 25.05.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 25.05.2010, Blaðsíða 48
20 25. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR BAKÞANKAR Hólmfríður Helga Sigurðardóttir ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ááá! Jesús! Góðan daginn! Njóttu hans! Ég bý með snar- vitlausri konu sem talar tungum! Hlýtur að vera! Mamma! Það er fárán- legt að ég þurfi að koma heim klukkan ellefu! Ég krefst sömu réttinda og aðrir vinir mínir fá hjá sínum foreldrum! Hvenær þarft þú að vera kominn heim til þín Pierce? Hálf ellefu. Gott mál. Hér eftir kemur þú heim klukkan hálf ellefu. Ef ég væri þú myndi ég tékka á vatninu áður en þú stekkur út í. Kennarinn minn vill að ég leiki býflugu í leikritinu. En spenn- andi! Þú verður að búa til búning fyrir mig. Ég get gert það. Með broddi... Ókei. ... sem skýtur eldkúlum í hvern þann sem hlær að mér. Það var semsagt ekki drauma- hlutverkið að leika býflugu? Ég þarf að ákveða hvort ég sætti mig við þig eins og þú ert eða láti mig hverfa... gefðu mér stund til að komast að niðurstöðu... Rétt eins og allflestar mæður í kringum mig þjáist ég af stöðugu samviskubiti yfir að eyða ekki meiri tíma með barninu mínu. Undanfarið hef ég hins vegar verið blessunarlega laus við þessa leiðindatil- finningu. Við fjölskyldan tókum okkur nefnilega frí frá íslenskum veruleika og smeygðum okkur inn í norskan í heilar þrjár vikur. Bróðurparti daganna eyddum við öll saman, nokkuð sem hefur aldrei gerst áður í svo langan tíma. ÁÐUR en við lögðum af stað í ferðalagið hófst hver kvöldmáltíð með afslöppun í boði stráksins – „anda inn, anda úúúút“ – og eftir matinn heyrðist „takk fyrir matinn, kæra vinkona mamma“. Þá hló ég með sjálfri mér og hugsaði: „Hvað er fólk eiginlega að væla? Það er skítlétt að ala upp barn.“ ÞAÐ var svo úti í Ósló fyrir nokkrum dögum, þegar drengurinn lá undir borði, harðneitaði að borða matinn sinn og sagði: „Ég á ekki að hlýða þér, þú ert ekki mamma mín“ að það rann upp fyrir mér ljós. Það eru sennilega ekki við pabbinn sem eigum heiður- inn af því hvað strákur er vel heppn- aður. Það eru nefnilega á langflest- um heimilum ekki foreldrarnir sem kenna börnum mannasiðina. Það eru leikskólakennararnir sem sjá um það. Í ÆVINTÝRALEGU gulu timburhúsi á Bergþórugötunni taka æðislegar konur hlýlega á móti orminum okkar og öllum hinum krökkunum á hverjum einasta morgni. Það er svo heimilislegt á Ósi að mörg barnanna halda að þessar vin- konur þeirra búi þar allar saman í einni hamingjuríkri kommúnu, dag og nótt. Á TÍMABILI leit ekki vel út með fram- tíð Óss. En nýlega skrifaði borgarstjóri loksins undir nýjan samning við einka- reknu leikskólana og tryggði hana þar með, í bili. Þar fyrir utan lítur allt út fyrir að eitt foreldranna á Ósi sé á leið- inni í borgarstjórn fyrir Besta flokkinn. Ég treysti því að flokkurinn standi við klíkukosningaloforðin. Nú verði sól á Ósi um ókomna framtíð – lóðin gerð upp, húsið málað, graffitíið fjarlægt og fram- kvæmdasjóðurinn fylltur af peningum. EN ÞAÐ var þetta með mömmusam- viskubitið. Ég er að hugsa um að varpa því bara af mér, Eða alla vega að skipta um – fyllast heldur samviskubiti yfir því að hafa hoggið skarð í glimrandi upp- eldi Ós-mæðranna á syni mínum. Nei, annars, ég nenni því ekki, þetta voru svo huggulegar þrjár vikur. En ég biðst samt afsökunar á umskiptingnum sem þið fáið til baka. Þið reddið þessu, er það ekki? Þú ert ekki mamma mín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.