Fréttablaðið - 25.05.2010, Side 19
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
BRYNDÍS BOLLADÓTTIR sýnir nýjustu hönnun
sína, kúluna, á nýrri sýningu í verslun og veitingastofu
Þjóðmenningarhússins fram í ágúst. Kúlan er unnin ur
þæfðri íslenskri ull og bregður sér í ólík hlutverk, frá
snaga til leikfangs.
„Þetta eru útivistar- og líkamsrækt-
arnámskeið fyrir smábarnaforeldra
sem hófust í ágúst í fyrra. Reyndar
hafa engir pabbar komið til okkar
ennþá, en mæður í fæðingarorlofi
hafa flykkst til okkar með börnin
sín í kerrum eða vögnum,“ segir
Halla Björg Lárusdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og ljósmóðir, þegar for-
vitnast er um fyrirbærið kerrupúl.
Þar er hún leiðbeinandi ásamt Mel-
korku Árnýju Kvaran, íþróttakenn-
ara og matvælafræðingi.
„Við reynum að vera alltaf tvær,“
segir Halla. „Önnur er fremst í röð-
inni og hin aftast því hópurinn teyg-
ir dálítið úr sér á göngustígunum.
Konurnar eru misjafnlega vel á sig
komnar eftir barnsburðinn og þær
verða að geta farið á sínum hraða
þó við viljum auðvitað ná púlsinum
svolítið upp.“ Um klukkustundar
púl er að ræða hverju sinni og Halla
lýsir fyrirkomulaginu þannig: „Við
hittumst við innganginn að Hús-
dýra- og fjölskyldugarðinum og
förum í góða kraftgöngu til að byrja
með. Þá taka við æfingar á hinum
ýmsu stöðum í Laugardalnum þar
sem við notum bekki, þvottalaug-
arnar og fleira til að styðjast við,
fyrir utan kerrurnar og vagnana.
Svo teygjum við í lokin.“
Mæðurnar kaupa sér tíma í fjór-
ar til átta vikur í einu og margar
eru búnar að vera með svo mánuð-
um skiptir. „Þetta eru stórir hópar
eða allt upp í 25 til 30 mæður í
hverjum. Það verður vanabindandi
að vera úti í góða loftinu í Laugar-
dalnum. Reyndar voru aðeins færri
í vetur en nú með vorinu hefur
fjölgað,“ lýsir Halla. Hún segir þær
stöllur halda áfram með tímana í
sumar, þrátt fyrir sumarfríin.
„Þó að ýmislegt sé í boði fyrir
þennan hóp inni á líkamsræktar-
stöðvunum er þetta það eina sem
þær geta farið í og haft litlu börnin
með sér. Yfirleitt sofa þau minnstu
vært og rótt í vögnunum en stærri
börnin sitja og hafa bara gaman
af að sjá mömmur sínar hoppa og
sprikla. Svo er allt í lagi að setjast í
grasið og gefa brjóst á meðan aðrar
gera æfingarnar. Við kennararnir
tökum börnin líka stöku sinnum í
fangið eða sýnum þeim dót ef með
þarf,“ segir Halla. Heimasíðan er
www.kerrupul.is gun@frettabladid.is
Horfa á mömmur sínar
hoppa, sprikla og teygja
Þeir sem eiga leið um Laugardalinn fyrri part dags í miðri viku rekast oft á föngulega hópa ungra kvenna
með kerrur og vagna. Þarna eru mæður smábarna að stunda kerrupúl, tiltölulega nýtt sport hér á landi.
Hressilegur hópur ungra mæðra í kerrupúli í Laugardalnum. Halla er í miðjum hóp og heldur á barni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Patti húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
324.8
10 krBa
sel só
faset
t
Verð
frá
Áklæði að eigin vali
Lím og þéttiefni í úrvali
Tré & gifsskrúfur.
Baðherbergisvörur og höldur.
Glerjunarefni.
Hurðarhúnar og skrár.
Rennihurðajárn.
Hurðarpumpur.
Rafdrifnir hurðaropnarar.
Hert gler eftir máli.
Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin.
104 Reykjavík S: 58 58 900. - www.jarngler.is
Listh
STILLANLEG RÚM
HEILSUDÝNUR
OG
HEILSUKODDAR
Queen rúm með botni
kr. 179.900
SAGA, ÞÓR
OG VALHÖLL
Heilsudýnur
á frábæru verði.
Queen rúm með botni
frá kr. 99.900
Gleðilegt sumar!
www.svefn.is
2x90 cm – Verð frá 349.900
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki