Fréttablaðið - 25.05.2010, Blaðsíða 20
VIRKNI Í SKÓLASTARFI er yfirskrift nýrrar handbókar sem Lýð-
heilsustöð hefur gefið út um hreyfingu fyrir grunnskóla. Handbókin
ætti að nýtast við kennslu á ýmsum skólastigum og í tómstundastarfi.
„Rannsóknin var gerð fyrst og
fremst til að kanna okkar eigin
reynslu af þessari meðferð,“ segir
Jens A. Guðmundsson, sérfræðing-
ur í fæðinga- og kvensjúkdóma-
lækningum og innkirtlakven-
sjúkdómum, sem framkvæmdi
rannsókn á fóstureyðingum með
lyfjum ásamt Ágústi Inga Ágústs-
syni sem er í sérnámi í fæðinga-
og kvensjúkdómalækningum og
Kristínu Jónsdóttur, sérfræðingi
í fæðinga- og kvensjúkdómalækn-
ingum. „Þetta er talið vera alveg
jafn gott og kannski öruggara
heldur en aðgerð.“
Byrjað var að bjóða upp á fóstur-
eyðingar með lyfjum í febrúar
2006 og gengust 246 konur undir
meðferðina fram í júlí 2007, meðan
á rannsókninni stóð. Heildarfjöldi
fóstureyðinga á tímabilinu var
1417 og var því hlutfall fóstur-
eyðinga með lyfjum 17,4 prósent.
Fullkomið fósturlát varð í 91,1 pró-
senti tilvika en gera þurfti aðgerð
á 22 konum. „Þessar niðurstöður
komu í rauninni ekki á óvart. Þær
staðfestu það sem við bjuggumst
við,“ segir Jens og bætir við að
niðurstöðurnar séu svipaðar og í
nágrannalöndum okkar sem fram-
kvæmt hafa fósturlát með lyfjum
í um tíu ár.
Jens lýsir meðferðinni þannig:
„Tekin er inn ein tafla. Töfluna
verður að afhenda á spítalanum,
það má ekki láta hana út fyrir spít-
alann,“ segir Jens og bætir við að
konan fari heim eftir inntöku töfl-
unnar sem virkar á tveimur sólar-
hringum. „Þetta líkist fósturláti.
Það er í rauninni verið að fram-
kalla fósturlát. Tveimur dögum
eftir að taflan er tekin þá taka
konur töflurnar sem valda sam-
drætti í leginu.“
Jens segir að konur geti farið í
fóstureyðingar með lyfjum fram
undir lok níundu viku eða fyrstu
63 daga meðgöngunnar en miðað
er við tólf vikna meðgöngu ef
fóstureyðing er framkvæmd með
aðgerð. „Þegar komið er fram
yfir níu vikur er fóstureyðingu
með lyfjum ekki beitt nema í
undantekningartilvikum. Þá blæð-
ir meira og það er erfiðara.“
Rannsóknin sýndi að ekki var
marktækur munur á fjölda þeirra
kvenna sem þurftu að gangast
undir aðgerð eftir að fóstureyð-
ing með lyfjum hafði verið reynd
ef meðganga var undir 49 dögum
eða þeirra sem gengnar voru 49 til
63 daga. martaf@frettabladid.is
Mikil aukning í fóstur-
eyðingu með lyfjum
Fóstureyðingar með lyfjum hafa aukist verulega frá árinu 2006. Rannsókn sem gerð var frá febrúar 2006
til júlí 2007 sýndi að hlutfall fóstureyðinga með lyfjum var 17,4 prósent en er nú á milli 60 og 70 prósent.
„Þessar niðurstöður komu í rauninni ekki á óvart,“ segir Jens A. Guðmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is
www.raudakrosshusid.is |
Opið virka daga kl. 12-17
Dagskrá vikunnar
Rauðakrosshúsið
Allir velkomnir
Mánudagur 24. maí
Þriðjudagur 25. maí
Qi–Gong kl. 12-13 Gönguhópur kl. 13-14 Íslenskuhópur kl. 13-14
Vinnum saman - Ný viðhorf (Býflugurnar) kl. 14-16
Miðvikudagur 26. maí
Tölvuaðstoð kl. 13.30-15.30 Briddsklúbbur kl.14-16
Lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur kl. 14-16
Matur og matarvenjur í Japan - Þar er fleira á boðstólum en Sushi
og margvíslegir spennandi réttir á borðum. Komdu og lærðu um matinn og
matarvenjurnar af Toshiki Toma. kl.12:30 -13:30
Möguleikar internetsins fyrir þig - Fáðu innsýn inn í hvernig þú getur
markaðsett þig eða áhugamálið á netinu. Þú þarft einungis almenna tölvu-
þekkingu til að nýta þér möguleikana. Umsjón: Ólafur Þór Ólafsson, Affiliate
Marketing. kl.15:30-16:30
Fimmtudagur 27. maí
Saumasmiðjan kl. 13-15 Jóga kl. 15-16
Gönguhópur kl. 12.30-13.30 Hláturjóga kl. 15:30 -16:30
Hvernig stöndumst við álag - Hvers vegna snögg reiðumst við eða pirrum
okkur yfir smámunum í daglegu lífi? Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur. kl.12:30-14
Bingó - Veglegir vinningar, kaffi á könnunni og vöfflur með rjóma. kl.14-15
Föstudagur 28. maí
Ekta pastasósa - Lærðu að gera gómsætar pastasósur frá grunni og fáðu
smakk í lokin. Umsjón: Aurelio Ferro, arkítekt og matgæðingur. kl.12:15 - 13:15
Heilsa og hreyfing - Vertu með í hópi sem hjálpar þér að halda þér við
efnið. Fagleg ráðgjöf og eftirfylgni. kl.14-15
Hvernig getur kristin trú verið mér stuðningur í erfiðleikum?
Umræður í umsjón Ragnheiðar Sverrisdóttur, djákna. kl. 14 - 15
Lokað - Annar í Hvítasunnu.
Prjónahópur - Prjónahópurinn er alla jafna á mánudögum. kl. 13-15
Skiptifatamarkaðurinn fer í sumarfrí - Síðasti markaðurinn
fyrir sumarið verður í næstu viku, þann 1. júní. kl. 16-18
Tímapantanir
534 9600Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur -www.heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
Nýju ReSound heyrnartækin endurvekja tilfinningu fyrir
hljóðum sem berast úr hvaða átt sem er á svipaðan hátt
og þegar skipt er úr einföldum steríótækjum með
tveimur hátölurum í kringóma (surround) heimabíó með
hátalara til allra átta.
Ný tækni . Betra verð . Fagleg þjónusta
Frí ráðgjöf í maí
ReSound heyrnartækin setja mann í miðpunkt
hljóðheimsins sem maður hrærist í. Þegar maður getur
fylgst betur með hljóðum sem berast úr öllum áttum
nýtur maður góðs hljóms mun betur. Auðveldara er að
átta sig á hvaðan hljóðið berst og maður getur notið
þess að tala við fólk þó hávaði sé í umhverfinu.
SURROUND
KRINGÓMA
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki