Fréttablaðið - 03.06.2010, Side 31
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
NÝ KLIPPING getur frískað upp á útlitið svona í
byrjun sumars. Ef hárið er líflaust eftir veturinn er líka
gott að taka vítamín eins og hárkúr og jafnvel splæsa á
sig einhverjum góðum hárvörum.
„Mér finnst rosalega gaman að
klæða mig upp á. Ég fæ svo sjald-
an tækifæri til þess,“ segir Hörn
Hrafnsdóttir messósópran. „Það
er mjög gaman að vera með tón-
leika þar sem við fáum virkilega
tækifæri til þess að vera rosalega
fínar. Nú erum við með verk sem
eru í Vínaranda og maður syngur
ekki vínarvalsa í gallabuxum. Það
er engin sveifla í því. Við förum í
síðkjóla sem passa við verkin.“
Hörn syngur ásamt Óp-hópnum
á tónleikum í Hafnarborg á morg-
un og í Vestmannaeyjum á sunnu-
daginn. Með hópnum syngur einnig
sópransöngkonan Erla Björg Kára-
dóttir sem er gengin 35 vikur. „Ég
fór í Flash og bað um stóran kjól
fyrir ólétta konu. Þetta var stærsti
kjóllinn í búðinni en hann er mjög
fallegur. Ég var mjög glöð yfir að
hún ætti svona stóran kjól.“
Hörn og Erla eru sammála um
það að kjólarnir skapi ákveðna
stemningu á tónleikum. „Ég syng
bara öðruvísi um leið og ég er
komin í kjólinn. Ég fer í smá hlut-
verk þegar ég er komin í flottan
kjól,“ segir Erla og Hörn bætir
við: „Í sumum lögunum förum
við aðeins að dilla okkur í takt við
tónlistina og þá er gaman að láta
pilsið sveiflast í takt.“
Þær Erla og Hörn segjast eiga
nokkra sparikjóla til skiptanna
og finnst gaman að hafa þá í mis-
munandi litum. Erla keypti sér
bleikan síðkjól í byrjun ársins.
„Hann er eiginlega alveg eins og
sá sem Rósalind er í. Það er svolít-
ið fyndið því við erum að syngja
dúett saman og erum systur þar.
Við ætlum að vera báðar í bleiku,“
útskýrir Erla brosandi.
Söngkonurnar hafa fundið kjól-
ana á Íslandi og í útlöndum. „Ég
var að læra úti í Salzburg í Aust-
urríki og ég keypti flesta kjólana
þar,“ segir Erla en gestir Carn-
egie Hall í New York hafa meðal
annarra fengið að sjá bláa kjólinn
hennar Harnar.
martaf@frettabladid.is
Pilsið sveiflast í takt
Söngkonunum Hörn Hrafnsdóttur og Erlu Björgu Káradóttur finnst gaman að klæðast síðkjólum á tón-
leikum og segja ákveðna stemningu fylgja þeim. Ótækt sé að vera í buxum við söng á Vínarvölsum.
Rósalind Gunnarsdóttir, Erla Björg, Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Hörn, Antonía Hevesi og Jóhanna Héðinsdóttir klæða sig upp á fyrir
tónleika um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
BOAS
Leður hægindasófi 3 sæta 149.900
Svefnsófi 149.900
NÝT
T NÝTT
79.900
129.900
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
GERUM TILBOÐ FYRIR
HÓTEL OG GISTIHEIMILI
Íslenskir PU leðurbotnar
og gaflar. Íslensk framleiðsla.
Gerið gæða- og verðsamanburð
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvali
www.gabor.is
Sérverslun með