Fréttablaðið - 03.06.2010, Page 54
34 3. júní 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Varstu
að
öskra?
Nei, nei,
allt í góðu.
Vá, skyrtan
þín er
næstum
eins og
nýstraujuð.
Á mjög sérstök-
um dögum vil ég
ganga í fötum sem
eru frekar ofarlega
í fatahaugnum
mínum.
„Þegar stutt
var liðið á
stefnumótið
fannst Rúnari
eins og það
gengi ekki
alveg
nógu vel“
Pabbi, geturðu
stafað fyrir
mig „kleinu-
hringur“?
„Kleinuhringur“
Já, það
væri líka fínt
ef þú gætir sýnt
mér hvernig
maður skrifar
súkkulaði og
mjólk. Og
kannski líka kex
og greipsafa.
Nei,
þetta er
komið,
takk
pabbi.
Af hverju varst þú að
uppfæra innkaupalist-
ann minn?
Var það eitthvað
fleira?
Hey, þú, hvenær held-
urðu að þú verðir búinn
með matinn þinn?
Þvílík bylting sem það hlýtur að hafa verið þegar fyrstu hreyfimyndirnar
runnu fyrir augum áhorfenda snemma á
tuttugustu öld. Dolfallnir hafa þeir starað á
smækkaðar manneskjur sem trítluðu fram
og aftur, svart/hvítar og hljóðlausar og
hugsað með sér: „Allt er nú til!“
SVO voru sjónvarpstæki fundin upp. Þau
urðu að almenningseign og fjölskyldan
safnaðist saman fyrir framan sjónvarpið á
síðkvöldum. Þó að tækin hafi þótt hálfgerð-
ar töfravélar voru þau einföld að gerð, það
þurfti bara tvo takka, kveikja- og hækka/
lækka takkann. Litirnir komu líka með
árunum og fleiri takkar til að skipta um
stöð. Þó að þeirra hafi ekki verið þörf
hér á landi lengi framan af.
SVO kom að því að ekki þurfti lengur
að standa upp til að kveikja eða hækka í
sjónvarpstækinu, tæknin hafði getið
af sér fjarstýringuna. Undratæki
sem breytti okkur áhorfend-
um umsvifalaust í sófakartöfl-
ur þegar ekki þurfti lengur að
standa upp úr hægindunum
heldur hægt að láta mata sig
fyrirhafnarlaust á afþreying-
unni. Þvílík þægindi.
OG TÆKNIN hélt áfram að vinda
upp á sig, sjónvörpin stækkuðu,
urðu flöt og takkarnir ósýnilegir snertiflet-
ir. Dagskráin tók að streyma gegnum óra-
víddir internetsins og alls kyns myndlyklar
og módem urðu fastir fylgihlutir.
EFTIR því sem tækninni hefur fleygt fram
hefur þó orðið flóknara að horfa á sjónvarp-
ið að mér finnst og þægindaþróunin fallið
um sjálfa sig. Stöðvarnar eru orðnar ótelj-
andi margar og valda valkvíða þar sem auð-
vitað er margt sem gaman væri að horfa á í
gangi á sama tíma. Nú er heldur ekki nóg að
ýta bara á einn takka og horfa. Nettenging-
in heima hjá mér á það til að detta út, mynd-
lykillinn frýs oft og iðulega og fjarstýring-
arnar, sem eru orðnar fleiri en ein, týnast
allar margsinnis á einni kvöldstund.
FJARSTÝRINGIN hefur líka löngu tapað
hlutverki sínu að stjórna úr fjarlægð, því
þegar ég á annað borð finn þær þarf að
hamast á tökkunum alveg upp við sjónvarp-
ið til ná mynd á tækið. Ekkert gerist svo
oftar en ekki neyðist ég til að kippa lyklin-
um úr sambandi og bíða meðan „myndlykill
ræsir sig“ en það getur tekið drjúga stund.
ÞÁTTURINN sem ég ætlaði að horfa á er þá
langt kominn eða jafnvel búinn þegar loks-
ins kemur mynd á sjónvarpsskrattann. Má
ég þá heldur biðja um tveggja takka tækn-
ina aftur, þar sem ég er hvort eð er löngu
staðin upp úr sófanum.
Tveggja takka tæknin
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða á eina af
rómuðustu sýningum Vesturports
Takmarkaður sýningafjöldi
Miðasala er hafin!