Fréttablaðið - 03.06.2010, Blaðsíða 58
38 3. júní 2010 FIMMTUDAGUR
Kór National Philharmonic frá
Washington DC sækir heim
íslenska kórinn Vox Academica
þessa dagana og er stefnt á kóra-
mót sveitanna tveggja í Langholts-
kirkju á laugardag kl 15.
Á efniskránni er margt af því
besta sem bandarísk kórmenning
hefur upp á að bjóða. Þar eru fyrir-
ferðarmest klassísk, bandarísk
kórverk 20. aldar sem hafa notið
mikilla vinsælda víða um heim. Á
tónleikunum verða fluttir marg-
ir gullmolar, svo sem hið fræga
Agnus Dei eftir Samuel Barber
sem ávallt er flutt þegar þjóðar-
sorg ríkir í Bandaríkjunum. Þá
eru þarna verk eins og til að mynda
Alleluia eftir Randall Thompson,
Magnificat eftir Michael Laurid-
sen. Rúsínan í pylsuendanum er svo
hið fræga verk Bernsteins, Chich-
ester Psalms fyrir kór og orgel,
hörpu og slagverk. Verkið samdi
Bernstein upp úr skissum og hug-
myndabrotum sínum að West Side
Story söngleiknum. Til þess að
skilja íslensk tónskáld ekki alveg
útundan verður flutt hin undur-
fagra Ave Maria eftir Hjálmar H.
Ragnarsson.Stjórnendur á tónleik-
unum verða Stan Engebretson og
Hákon Leifsson
National Philharmonic kórinn
heimsækir Ísland nú í fyrsta sinni.
Kórinn er að jafnaði 170 manna kór
sem starfar með 100 manna hljóm-
sveit sem hefur aðsetur sitt í Music
Center í Strathmore, Wasington D.C
og er öflugasti flytjandi klassískr-
ar tónlistar á þeim slóðum. Aðeins
25 manns úr kórnum koma hingað
norður að þessu sinni og syngja nú
hér með liðsmönnum Vox Academ-
ica kórsins.
National Phil kórinn flytur reglu-
lega helstu meistaraverk tónbók-
menntanna á um þrjátíu tónleikum
á hverju ári ásamt nýrri verkum.
Á verkefnaskrá kórsins eru órat-
orísk verk eins og Messias eftir
Händel, Ein Deutsches Reqiuem
eftir Brahms, Carmina Burana
eftir Orrf, Chichester Psalms eftir
Bernstein og þar fram eftir götum.
Fyrir utan reglulegt tónleikahald
er starfræktur söngskóli á vegum
kórsins og mikið starf þar unnið
við að kynna klassíska gæðatónlist
ungu fólki.
Stjórnandi NPC er Dr. Stan Eng-
ebretson. Hann er af íslensku bergi
brotinn, uppalinn á Íslendingaslóð-
um vestra, alinn upp í hinni kunnu
sveitaborg Fargo í Norður-Dakóta.
Hann kynntist ungur skandin-
avískri kóramenningu og hefur
aflað sér víðtækrar menntunar og
reynslu á sviði tónlistar. Hann lauk
mastersnámi í píanóleik og söng
frá University of North Dakota
og doktorsgráðu í hljómsveitar-
stjórnun frá Stanford University.
Hann hefur kennt við University of
Texas og University of Minnesota.
Einnig er hann listrænn stjórnandi
Midland-Odessa Symphony Chorale
og aðstoðarstjórnandi Minne-
sota Chorale. Frá 1990 hefur hann
stjórnað NPC og er prófessor í kór-
söng við George Mason University.
Hann gegnir auk þess fjölda ann-
arra starfa í þágu tónlistarlífsins í
Bandaríkjunum og í Evrópu. Hann
hefur komið oft til Íslands á vegum
Fulbright-stofnunarinnar og kennt
kórstjórn, meðal annars við Tón-
skóla þjóðkirkjunnar. Þannig hófst
samstarf þeirra Stans og Hákons
Leifssonar, stjórnanda og stofn-
anda Vox academica, en Hákon
kennir kórstjórn við Tónskólann.
Og þar er komin kveikjan að þeim
góðu tengslum sem eru á milli NPC
og Vox academica. Miðasala á tón-
leikana á laugardag er Tólf tónum
og miða má einnig panta í síma
8958177. pbb@frettablaðið
Kórar kallast á
TÓNLIST Virtur kórstjóri af íslensku ættum, Stan Engebretson, kominn norður í sól og
öskufall en brosir við björtum degi.
Dieter Roth akademí-
an (DRA) hreiðrar um sig
á Hjalteyri um helgina.
Hún var stofnuð í minn-
ingu svissnesk/þýska lista-
mannsins Dieters Roth
í maí árið 2000, tveimur
árum eftir að hann lést.
Upphaflega voru það vinir, sam-
starfsmenn og fjölskylda Dieters
Roth sem komu saman og ákváðu
að láta hugmyndir hans um aka-
demíu verða að veruleika. Samtök
eða félagsskap þar sem listamenn
og annað gott fólk kæmu saman,
sýndu verkin sín, hjálpuðust að,
miðluðu þekkingu og létu almennt
gott af sér leiða. Stofnendurnir/
prófessorarnir bjóða öðrum lista-
mönnum þátttöku ýmist sem nem-
endum eða prófessorum, allt eftir
reynslu þeirra og þekkingu.
Akademían er ekki stofnun
og hefur engan rekstur og enga
skriffinnsku. Það má kalla það
fyrstu lexíuna í akademíunni að
alla skipulagningu og pappírs-
vinnu sem fylgir því að komast
í samband við prófessorana víða
um heim verða nemendur að sjá
um sjálfir. Í dag eru nokkrir tugir
meðlima í DRA víða um Evrópu, í
Kína og Nýju-Mexíkó í Bandaríkj-
unum, sem hittast árlega og halda
ráðstefnu um listir. Samfara ráð-
stefnunum eru myndlistarsýn-
ingar, fyrirlestrar, gjörningar og
listasmiðjur. Þungamiðjan í öllu
saman eru verk Dieters Roth,
heimspeki hans og lífskraftur.
Dieter Roth kom eins og
stormsveipur inn í heim íslenskr-
ar menningar í lok 6. áratugarins
þegar hann settist að í Reykjavík
ásamt barnsmóður sinni Sigríði
Björnsdóttur. Dieter tók að sér
að kenna við Myndlistarskólann
í Reykjavík fyrir tilstilli Ragn-
ars Kjartanssonar myndhöggv-
ara sem þá var skólastjóri. Starf
Dieters við skólann hafði mikil
áhrif á þá listamenn og kennara
við skólann sem kynntust honum
og hugmyndum hans.
Áhrif verka og hugmynda Diet-
ers Roth á Íslandi urðu marg-
vísleg og afgerandi, ekki síst á
sviði myndlistar og hönnunar.
Sér raunar ekki fyrir endann á
þeim áhrifum, eins og kom fram
í því að á Listahátíð í Reykjavík
2005 var sérstök áhersla á sam-
tímamyndlist. Ber þar helst að
nefna viðamikla sýningu á verk-
um Dieters Roth í þremur lista-
söfnum: Listasafni Reykjavíkur,
Listasafni Íslands og Gallerí 100°
en sýningin þar var í samvinnu
við Nýlistasafnið.
Svissnesk/þýski listamaður-
inn Dieter Roth átti heimili sitt
á Íslandi frá sjötta áratug síð-
ustu aldar. Svo vill til að hann
starfaði um tíma hjá prentsmiðju
Odds Björnssonar á Akureyri, en
Oddur var ættingi Sigríðar eigin-
konu Dieters og barnsmóður.
Dieter Roth akademían á sér
sterkar rætur á Íslandi og hefur
fjölmörgum nemendum verið
boðin þátttaka. Árlega fer Lista-
háskóli Íslands með nemendur í
vinnubúðir á Seyðisfjörð undir
leiðsögn Björns Roth og Kristjáns
Steingríms Jónssonar. Öllu því
fólki býðst þátttaka. Verksmiðj-
an á Hjalteyri hefur boðið DRA
að halda sína 11. ráðstefnu og sýn-
ingu, 5. júní til 18. júlí 2010. Verk-
smiðjan er opin laugardaga og
sunnudaga kl. 14.00-17.00. - pbb
Roth lifir á Hjalteyri
MYNDLIST Dieter Roth í myndverki vinar hans og samverkamanns, Richards Hamilton.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 03. júní 2010
➜ Tónleikar
20.30 Kórastefna við Mývatn 2010 fer
fram 3.-6. júní. Í kvöld munu Graduale-
kór Langholtskirkju og tónleikagestir
syngja í Skjólbrekku undir stjórn Jóns
Stefánssonar. Nánari upplýsingar á
www.korastefna.is.
20.30 Hljómsveitin Buff heldur
tónleika í Ráðhúsinu við Hafnarberg á
Þorlákshöfn.
21.00 Weirdcore-kvöld á Venue við
Tryggvagötu 22. Fram koma Hypno,
Muted, Thizone og Oculus. Enginn
aðgangseyrir.
21.00 Kvartett Sigurðar Flosasonar
og Ásgeir Ásgeirsson leika frumsamda
djasstónlist á tónleikum í Jazzkjallara
Bar 11 við Hverfisgötu 18.
21.00 Söngkonan Jussanam Dejah og
píanóleikarinn Agnar Már Magnússon
flytja þekkt og vinsæl brasilísk lög á
Brasilíu Restaurant við Skólavörðustíg
14.
21.00 Hljómsveitin Kakali heldur
útgáfutónleika á Sódómu Reykjavík.
Einnig kemur fram á tónleikunum
Snorri Helgason.
21.00 Útskrift-
arnemendur
Tónlistar-
skóla FÍH
flytja verkið
Lifun eftir
Trúbrot á
tónleikum á
Græna hattinum
við Hafnarstræti 96
á Akureyri.
22.00 Hvanndals-
bræður halda útgáfu-
tónleika á NASA við
Austurvöll.
➜ Sýningar
Í Gallerí Fold við Rauðarárstíg hefur
verið opnuð samsýning 23ja ljósmynd-
ara á myndum af eldgosunum á Fimm-
vörðuhálsi og Eyjafjallajökli. Opið
virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 og
sun. kl. 14-16.
Í Skaftfelli, miðstöð myndlistar við Aust-
urveg á Seyðisfirði, hefur verið opnuð
sýning á verkum Ásgeirs Emilssonar.
Opið daglega kl. 12-22.
➜ Bæjarhátíðir
Lista- og menningarhátíðin Bjartir
dagar stendur yfir í Hafnarfirði til 6.
júní. Tónleikar, myndlistarsýningar, söng-
leikja- og leiksýningar og margt fleira.
Nánari upplýsingar og dagskrá á www.
hafnarfjordur.is.
➜ Síðustu forvöð
Í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu
stendur yfir sýning á verkefnum útskrift-
arnemenda Hönnunar- og handverks-
skóla Tækniskólans. Þar má sjá verkefni
í faggreinum kjólasaums og klæð skurð-
ar, gull- og silfursmíði auk annarra
verkefna en sýningu lýkur á sunnudag.
Opið mán.-fim. kl. 10-19, fös. kl. 11-19
og um helgina kl. 13-17.
➜ Leikrit
20.00 Leikhópurinn CommonNon-
sense sýnir verkið Af ástum manns og
hrærivélar í Kassanum, sýningarrými
Þjóðleikhússins við Lindargötu.
Nánari upplýsingar á www.leik-
husid.is.
➜ Leiðsögn
14.00 Margrét Hrönn
Hallmundsdóttir verður
með leiðsögn um Nesstofu
á Seltjarnarnesi og um
sýninguna Saga og framtíð.
Aðgangur er ókeypis.