Fréttablaðið - 03.06.2010, Qupperneq 70
50 3. júní 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
8 DAGAR Í HM
FÓTBOLTI Valsmaðurinn Danni
König er leikmaður 5. umferð-
ar að mati Fréttablaðsins. Hann
skoraði tvö mörk í 5-2 sigri Vals
á Fylki og er nú markahæsti leik-
maður deildarinnar með fjögur
mörk í fimm leikjum. König gekk
í raðir Vals frá Randers í Dan-
mörku og hann sér ekki eftir því
að hafa valið að spila knattspyrnu
á Íslandi.
„Þetta hefur verið mjög jákvæð
reynsla,“ segir hann í samtali við
Fréttablaðið. „Hér er allt miklu
betra en ég bjóst við – bæði
aðstæður og knattspyrnan sjálf.
Öll liðin í deildinni eru góð og
engin verulega slæm lið. Þetta er
jöfn deild og það er jákvætt.“
Hann segir að honum hafi verið
mjög vel tekið hjá Val. „Hér hafa
allir hugsað mjög vel um mig
– liðsfélagar, þjálfarinn og allir
aðrir í kringum liðið. Mér líður
því mjög vel.“
König segir enn fremur að
honum hafi sífellt gengið betur
að aðlagast leik liðsins eftir því
sem líður á. „Þetta var svolítið
stirt í byrjun og þá sérstaklega
í fyrstu leikjum mínum á undir-
búningstímabilinu. Ég þurfti að fá
að kynnast liðsfélögunum og þeir
mér. En þetta hefur orðið betra
með hverjum leiknum sem er
mjög gott. Gegn Fylki skoraði ég
tvö góð skallamörk og ég er mjög
ánægður með það,“ segir hann.
„En ég verð líka að hrósa mínum
félögum í Val. Martin [Pedersen]
og Arnar Sveinn [Geirsson] gáfu
góðar sendingar á mig í mörkun-
um enda spilar enginn vel nema
liðið sjálft spili vel.“
Hann þekkti ekki mikið til
íslenska boltans áður en hann kom
hingað en þekkti þó til leikmanna
sem hafa spilað hér. „Bo Henriksen
þjálfaði mig hjá Brönshöj en hann
spilaði nú með Val á sínum tíma.
Svo þekki ég líka Hans Mathiesen
sem spilaði með Fram og Keflavík.
Ég gat því ráðfært mig við þá.“
König var síðast á mála hjá
Randers. „Þar fékk ég ekkert að
spila. Ég áleit það því góðan mögu-
leika að koma hingað til að fá að
spila og sýna mig. Umboðsmaður-
inn minn sagði mér að það væri
vel fylgst með íslenska boltanum
og því tel ég að þetta sé gott tæki-
færi fyrir mig. Ég lít alls ekki svo
á að ég hafi verið að gefast upp á
danska boltanum með því að koma
til Íslands – þvert á móti. Fyrst
þjálfarinn hjá Randers vildi ekki
nota mig gat þetta ekki orðið verra
fyrir mig. Ég held því að það hafi
verið góður kostur fyrir mig að
ganga til liðs við Val,“ segir hann.
König er samningsbundinn Val
út árið og hlakkar til átakanna í
sumar. „Það væri frábært ef okkur
tekst að halda áfram á þessari
braut og við náum að blanda okkur
í titilbaráttuna fyrir alvöru. Núna
er ég ánægður hjá Val og vil ekki
hugsa um neitt annað en næsta
leik. Við erum komnir á gott skrið
og ef ég held áfram að skora þá
höldum við áfram að vinna leiki.“
eirikur@frettabladid.is
Vinnum ef ég held áfram að skora
Valsarinn Danni König er maður 5. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði tvö
mörk í 5-1 sigri Vals á Fylki á mánudagskvöldið og er nú markahæsti maður deildarinnar með fjögur mörk.
DANIRNIR Í VAL Danni König og Martin Pedersen áttu góðan leik gegn Fylki á mánu-
daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lið 5. umferðar (3-5-2)
Markvörður:
Albert Sævarsson, ÍBV
Varnarmenn:
James Hurst, ÍBV
Guðmundur Viðar Mete, Haukum
Tryggvi Sveinn Bjarnason, Stjörnunni
Miðvallarleikmenn:
Martin Pedersen, Val
Haukur Páll Sigurðsson, Val
Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík
Haukur Baldvinsson, Breiðabliki
Hilmar Geir Eiðsson, Haukum
Sóknarmenn:
Danni König, Val
Matthías Vilhjálmsson, FH
FÓTBOLTI Skagamaðurinn Jóhannes Karl Guð-
jónsson skrifaði í fyrradag undir tveggja ára
samning við enska C-deildarliðið Hudders-
field en hann lék síðast með Burnley í ensku
úrvalsdeildinni. Samningur hans við Burnley
átti að renna út í sumar en hann fékk sig
lausan undan honum fyrr en áætlað var.
„Mér stóðu fleiri kostir til boða en
þegar Huddersfield kom til sögunnar
leist mér það vel á félagið að ég ákvað
að drífa mig í að skrifa undir,“ segir
hann. „Mér leist bara langbest á þetta
hjá þeim. Félagið sýndi mikinn áhuga
á að fá mig og knattspyrnustjóri liðs-
ins, Lee Clark, virðist vera toppná-
ungi sem ætlar sér að koma þessu liði upp um
deild.“
Hann segir það einnig mikilvægt að félagið
búi við sterkan fjárhag. „Það eru fjölmörg félög
á Englandi sem eiga í miklum rekstrarerfiðleik-
um og enn fleiri sem eru að skera niður. Stjórn-
arformaður Huddersfield er hins vegar afar vel
stæður og félagið er skuldlaust. Þá er völlur
félagsins stór og flottur og mikið af áhorfend-
um á leikjum liðsins. Þetta er stærri klúbbur
en margir halda,“ segir Jóhannes Karl.
Hann hefur nú verið í atvinnumennskunni
síðan 1998 og á þeim tíma hefur hann leikið
með níu félögum í þremur löndum. Hann segir
að þessi reynsla muni koma sér til
góða.
„Þjálfarinn vill fá meiri
reynslu inn á miðjuna því
liðið er ungt. Það vantaði
lítið upp á að liðið kæmist upp um deild og ég
vona að ég geti hjálpað til í þeirri baráttu,“ segir
Jóhannes Karl sem er nú að fara að spila í ensku
C-deildinni í fyrsta sinn. „Það er ágætt að fá að
prófa það líka og ég set það alls
ekki fyrir mig. Ég vona bara að
tímabilið verði skemmtilegt og
ég hlakka til að takast á við
nýjar áskoranir.“
Það vakti athygli þegar
Jóhannes Karl var settur í
tveggja vikna launalaust
leyfi hjá Burnley undir
lok síðasta tímabils
vegna ummæla sem hann
lét falla á vefsíðunni Fót-
bolti.net. Það leiddi svo til þess að hann
losnaði fyrr undan samningnum sínum
við félagið en áætlað var.
„Ég fékk reyndar aldrei beinlínis að
heyra það frá neinum en ég tel afar ólík-
legt að það hafi hjálpað mér mikið þegar ég
var að leita mér að nýju félagi,“ segir hann
um þetta. „Ef ég hefði vitað fyrirfram að
þessi ummæli myndu rata í ensku press-
una hefði ég sjálfsagt aldrei látið þetta
út úr mér. En maður lærir af þessu
eins og öðru.“ - esá
Jóhannes Karl Guðjónsson gerði tveggja ára samning við Huddersfield:
Stærri klúbbur en margir halda
JÓHANNES KARL Hér í leik með Burnley í
ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Heimsmeistarar hafa ekki náð að verja titilinn síðan
Brasilíumenn afrekuðu það á HM í Chile 1962. Brasil-
íumenn höfðu titilinn í Svíþjóð fjórum árum áður. Ítalir
unnu tvisvar í röð í tveimur síðustu keppnunum fyrir
seinni heimsstyrjöldina (HM 1934 og 1938) og
Úrúgvæ vann titilinn í fyrstu tveimur HM sem
þjóðin tók þátt í (1930 og 1950). Heimsmeist-
arar Úrúgvæ frá 1930 tóku ekki þátt í næstum
tveimur HM-keppnum á eftir.
Hanna Guðrún Stefánsdóttir og félagar í íslenska kvennalandsliðinu í
handbolta tryggðu sér sæti í lokakeppni EM um síðustu helgi. Hanna
skoraði 17 mörk í síðustu tveimur leikjum íslenska liðsins en það
vissu færri að hún gerði það þrátt fyrir að hafa
líklega verið með rifinn liðþófa.
„Ég gæti trúað því að ég hafi rifið liðþóf-
ann í byrjuninni á Frakkaleiknum þegar ég
rann til á dúknum. Ég er á leiðinni í skoðun.
Þess vegna haltraði maður pínu en samt ekkert
mikið. Ég hljóp alveg mína spretti,” sagði Hanna
sem skoraði 13 mörk í leiknum. „Þegar draumurinn er til
staðar og maður ætlar sér eitthvað þá fer maður alla leið. Það
þýðir ekkert væl. Ég reyndi bara að gleyma þessu og þegar
adrenalínið var komið á fullt í leiknum þá tókst það,“ segir
Hanna sem var markahæsti leikmaður íslenska liðsins í
undankeppninni með 56 mörk í 6 leikjum.
Hanna var búin að bíða einna lengst af öllum í lið-
inu eftir að komast á stórmót. „Þetta var bara snilld. Ég vissi ekki hvað
ég átti að gera eftir leikinn, hvort ég ætti að grenja eða öskra. Ég stóð
bara í smástund og vissi ekkert hvað ég átti að gera,“ segir Hanna
sem missti þó eiginlega af sigurstundinni með íslenska liðinu.
„Ég var mest svekkt yfir því að ég var tekin í lyfjapróf strax eftir
leikinn og við fórum beint inn í einhvern búningsklefa. Svo
heyrði ég bara í stelpunum öskra og syngja inn í klefa. Ég hitti
þær síðan ekki fyrr en einum og hálfum tíma seinna þegar ég
var búin að klára þetta lyfjapróf. Þá hitti ég þær loksins og
fékk að fagna með þeim,“ segir Hanna.
Hanna hefur ekki áhyggjur af að þessi meiðsli
trufli hana í undirbúningnum fyrir næsta
tímabil.
„Ég kalla þetta bara smámeiðsli
eftir að ég fór í gegnum það að brjóta
á mér bakið. Ég verð alveg klár í haust. Ég hlýði öllum skipunum,
æfi vel og styrki mig vel og þá er þetta komið,“ sagði Hanna.
HANNA GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR: SPILAÐI MEÐ RIFINN LIÐÞÓFA Í LEIKJUNUM Á MÓTI FRAKKLANDI OG AUSTURRÍKI
Heyrði bara í stelpunum öskra og syngja inn í klefa
HANDBOLTI Saed Hasanefendic,
þjálfari Gummersbach, var val-
inn þjálfari ársins í þýsku úrvals-
deildinni í handbolta og hafði
hann dágóða forystu á Alfreð
Gíslason hjá Kiel sem varð annar
í kjörinu.
Undir stjórn Hasanefend-
ic varð Gummersbach Evrópu-
meistari bikarhafa í vor en liðið
er nú í sjötta sæti deildarinnar.
Kiel er í efsta sæti og á titilinn
vísan auk þess sem liðið varð
um helgina Evrópumeistari eftir
sigur í Meistaradeild Evrópu þar
sem liðið lagði spænsku risana
Ciudad Real og Barcelona.
Gummersbach vann þó Kiel í
fjórðungsúrslitum þýsku bikar-
keppninnar í febrúar síðastliðn-
um en tapaði svo fyrir Rhein-
Neckar Löwen í undanúrslitum.
Róbert Gunnarsson leikur með
Gummersbach og Aron Pálmars-
son með Kiel. - esá
Þýski handboltinn:
Alfreð ekki
þjálfari ársins
ALFREÐ GÍSLASON Hefur náð frábærum
árangri með Kiel en var þó ekki valinn
þjálfari ársins í þýsku úrvalsdeildinni.
NORDIC PHOTOS/BONGARTS
KÖRFUBOLTI Úrslitaeinvígi LA
Lakers og Boston Celtics hefst
í nótt en allir leikirnir verða í
beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Þetta er í tólfta skiptið sem þessi
sigursælustu félög í sögu NBA
mætast í úrslitaeinvíginu.
Lakers á harma að hefna, ekki
aðeins fyrir að hafa tapað 9 af
þessum 11 úrslitaeinvígum held-
ur einnig fyrir tapið í úrslitun-
um fyrir tveimur árum þegar
Boston-vörnin slökkti hreinlega
á Kobe Bryant, vann einvígið 4-2
og lokaleikinn með 39 stiga mun.
„Við skulum sjá hversu mikið
við höfum þroskast. Þetta var
besta vörnin sem ég hef lent í í
úrslitakeppni,“ sagði Kobe um
umrædd einvígi. Það var 17.
meistaratitill Boston en Lakers
vann sinn fimmtánda þegar liðið
tryggði sér titilinn í fyrra og þá
fór Kobe á kostum. - óój
Úrslitaeinvígi Lakers og Celtics:
Byrjar í kvöld
TVEIMUR ÁRUM SEINNA Boston fór illa
með Lakers 2008. MYND/GETTYIMAGES
FÓTBOLTI Ingólfur Sigurðsson er
aftur á leið til hollenska félagsins
Heerenveen þar sem hann var í
eitt ár, frá 2007 til 2008. Heer-
enveen hefur komist að sam-
komulagi við KR um kaupverð en
Ingólfur á sjálfur eftir að semja
um kaup og kjör við Hollending-
ana. Þetta staðfesti umboðsmað-
ur hans, Ólafur Garðarsson, við
Fréttablaðið.
Ingólfur er sautján ára gamall
og þykir einn efnilegasti leik-
maður sem Ísland á í dag. Hann
hefur hins vegar ekkert fengið
að spreyta sig með KR á tímabil-
inu til þessa en hann skoraði eitt
mark í þremur leikjum á síðasta
tímabili. - esá
Ingólfur Sigurðsson á leið út:
Heerenveen og
KR náðu saman