Fréttablaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 2
2 19. júní 2010 LAUGARDAGUR
„Elín, skutuð þið yfir markið í
Orðaleit Vikunnar?“
Nei, ég held að þetta hafi verið
beint í mark.
Finna má setninguna „Jón Gnarr verður
skotinn“ í Orðaleit nýjasta tölublaðs
Vikunnar. Elín Arnar, ritstjóri Vikunnar,
sagði í samtali við Fréttablaðið í gær nýjan
borgarstjóra ekki hafa ástæðu til að óttast
þessi duldu skilaboð.
KIRGISISTAN Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
telur að milljón manns geti þurft á aðstoð
að halda vegna óeirðanna í Kirgisistan. Um
þriðjungur þeirra verði líklega flóttamenn
frá landinu.
Rosa Otunbajeva, bráðabirgðaforseti
landsins, segist óttast að átökin hafi kostað
um tvö þúsund manns lífið, þótt opinbert
mat á mannfalli hafi í gær verið að rúmlega
tvö hundruð manns hafi látist.
Reglulegt flug á vegum Sameinuðu þjóð-
anna með hjálpargögn til landsins hefst nú
um helgina. Þeir sem flosnað hafa upp frá
heimilum sínum vegna átakanna þurfa helst
á matvælum, vatni, lyfjum og húsaskjóli að
halda.
Otunbajeva flaug í gærmorgun með þyrlu
til Osh, 250 þúsund manna borgar þar sem
átökin hófust í síðustu viku. Að hluta til
hefur borgin verið lögð í rúst. Þar voru að
verki ungir Kirgisar, sem brenndu niður
hús Úsbeka og réðust á fyrirtæki í eigu
Úsbeka. - gb
Óttast að óeirðirnar í Kirgisistan hafi kostað allt að tvö þúsund manns lífið:
Milljón manns þurfa aðstoð
SNÚA AFTUR HEIM Hópur Úsbeka fer aftur yfir landamærin frá
Úsbekistan til Kirgisistans, eftir að hafa flúið þangað undan óeirðun-
um. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
vísað frá kröfu Höllu Gunnars-
dóttur blaðamanns og talskonu
Femínistafé-
lags Ísland um
að þinghald
í máli ellefu
manna, sem
kærðir voru
fyrir kaup á
vændi, skuli
vera opið. Mál-
inu var vísað
frá á þeim for-
sendum að
Halla eigi ekki
lögvarða hags-
muni.
Hæstiréttur klofnaði í mál-
inu, en Hjördís Hákonardóttir
skilaði séráliti og taldi að dóm-
urinn ætti að taka afstöðu til
málsins. Héraðsdómari hafði
áður ákveðið að öll þinghöld í
málinu skyldu vera lokuð.
-jss
Hæstiréttur um vændiskaup:
Þinghald verð-
ur áfram lokað
STJÓRNMÁL Hvorki Dofri Hermanns-
son né Sigrún Elsa Smáradóttir,
sem skipuðu sjötta og sjöunda sæti
á lista Samfylkingarinnar fyrir
borgarstjórnarkosningarnar, taka
sæti nefndum eða ráðum á vegum
borgarinnar sem skipað hefur verið
í á nýjan leik.
Dofri , sem verið hefur
varaborgarfulltrúi frá 2006, og
Sigrún Elsa, sem hefur verið
varaborgarfulltrúi og síðar borgar-
fulltrúi í tólf ár, eru þau einu af efri
helmingi hins 30 manna framboðs-
lista flokksins sem ekki taka neitt
sæti sem aðal- eða varafulltrúar.
Dofri segir það ekki vera starf að
vera þriðji varaborgarfulltrúi og
því hafi hann þurft að leita fyrir sér
með vinnu í kjölfar kosninganna.
„Það er erfitt að leita sér að starfi
um leið og maður segir að maður
þurfi að vera á fundum svo og svo
marga daga í viku, þannig að það
varð mín niðurstaða að ég myndi
stíga núna eitt skref til baka.“ Í
því felist þó engin yfirlýsing um að
hann sé hættur í pólitík og að hann
styðji nýjan meirihluta.
Sigrún Elsa vildi ekki tjá sig um
málið þegar Fréttablaðið hafði sam-
band við hana. Samkvæmt heimild-
um blaðsins sóttist hún eftir því að
halda sæti sínu í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur að loknum kosningum
en fékk ekki. - sh
Tveir reynsluboltar úr borgarpólitíkinni hverfa úr öllum nefndum og ráðum:
Dofri og Sigrún Elsa hætta
SIGRÚN ELSA
SMÁRADÓTTIR
DOFRI
HERMANNSSON
FRAKKLAND Aðgerðir Evrópu-
sambandsins og einstakra Evr-
ópuríkja til að bregðast við
brýnum efnahagsvanda virðast
hafa orðið til þess að róa mark-
aðina nokkuð.
Jákvæðar fréttir frá vand-
ræðagemlingum á borð við Spán
og Grikkland, ásamt eindreg-
inni samstöðu ESB-ríkjanna um
að koma á gagnsæi í bankavið-
skiptum, urðu til þess að evran
tók svolítinn kipp upp á við í
gær.
Lykilatriði virðist vera
ákvörðun Evrópusambands-
ins um að birta niðurstöður úr
álagsprófum á bankana, sem
þykir benda til fullvissu þeirra
um að staðan sé ekki jafn slæm
og margir óttuðust. - gb
Skuldavandi Evrópuríkja:
Versta hræðsl-
an liðin hjá
ÍRAK, AP Þrítugur Íraki, Abdul-
Halim Hameed, skaut fimmtug-
an föður sinn þar sem hann svaf
í rúmi sínu í fyrrinótt. Ástæðan
var sú að faðirin vildi ekki segja
upp starfi sínu, en hann starfaði
sem verktaki og þýðandi fyrir
bandríska herinn í Írak.
Sonurinn er talinn tengdur
Al Kaída samtökunum. Með
honum að verki var frændi þeirra
beggja. Tilræðismennirnir voru
handteknir, en lögreglan leitaði
einnig að öðrum syni hins myrta,
sem talinn var samsekur.
Að minnsta kosti 27 manns
létu lífið víðs vegar í Írak í gær í
sprengju- og skotárásum. - gb
Vann hjá Bandaríkjaher:
Myrtur af syni
sínum í Írak
BLÓÐUGUR DAGUR Í ÍRAK Sprengju- og
skotárásir kostuðu 27 manns lífið í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓLK María Másdóttir blóma-
skreytir hefur unnið baki brotnu
undanfarna daga við undirbúning
á brúðkaupi Viktoríu krónprins-
essu Svíþjóðar og unnusta henn-
ar Daniel Westling.
„Þegar Svíakonungur kom í
heimsókn til Íslands var ég feng-
in til að skreyta veislu sem hann
hélt. Svo þegar undirbúning-
ur fyrir brúðkaupið hófst fékk
ég tölvupóst og var beðin um
aðstoð,“ sagði María og bætti
því við að hann hefði greinilega
munað eftir sér.
María er listfræðingur að
mennt auk þess að hafa nýlok-
ið MBA námi.
H ú n l æ r ð i
blómaskreyt-
ingar í Nor-
egi hjá fyrrum
Evrópumeist-
ara í blóma-
skreytingum,
Thor Gunder-
sen, og stofn-
aði í kjölfar-
ið fyrirtækið
Blómahönnun árið 2002 þar sem
hún starfar í dag.
Aðspurð um umstangið við
brúðkaupið sagði María að í
kringum 60 manns ynnu við
blómaskreytingar fyrir brúð-
kaupið og að þau hefðu unnið frá
morgni til kvölds frá því á mánu-
dag. „Þetta er langstærsta verk-
efni sem ég hef tekið að mér.
Þetta er stærra og flottara en
allt,“ sagði María.
María var ekki fáanleg til að
gefa upp hvers konar blóm yrðu í
aðalhlutverki í brúðkaupinu þar
sem hún væri bundin þagnareiði
en lofaði því að þetta yrði stór-
Íslendingur skreytir
konunglegt brúðkaup
María Másdóttir blómaskreytir sér um blómaskreytingar í brúðkaupi Viktoríu
krónprinsessu Svíþjóðar sem fram fer í dag. María segir þetta langstærsta verk-
efni sem hún hefur tekið að sér enda er hvergi til sparað við brúðkaupið.
MARÍA MÁSDÓTTIR
Jón Gnarr rennir fyrir lax
Nýr borgarstjóri Reykjavíkur, Jón
Gnarr, rennir fyrir fyrsta laxinn í Elliða-
ánum á morgun. Áratuga hefð er fyrir
því að borgarstjórinn opni með þess-
um hætti fyrir laxveiðar sumarsins.
REYKJAVÍK
BJÖRGUN Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar sótti í gærkvöld 26 ára
konu um borð í norskan togara á
Reykjaneshrygg. Konan var með
bráða botnlangabólgu. Óskað var
eftir aðstoð þyrlunnar í hádeginu
í gær, þegar togarinn Langvin var
staddur um 207 sjómílur suðvestur
af Reykjanesi.
Þar sem þyrlan getur ekki flogið
lengra en 150 sjómílur frá ströndu
sigldi togarinn á móti henni.
Konan var komin á sjúkrahús í
Reykjavík við þokkalega líðan
klukkan 20 mínútur yfir níu. - gb
Norðmenn leituðu aðstoðar:
Þyrla sótti veika
konu í togara
HALLA
GUNNARSDÓTTIR
Giftist einkaþjálfaranum
BRÚÐHJÓNIN Viktoría mun taka við af föður sínum sem þjóðhöfðingi Svía og
Daniel mun fá titilinn prins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Viktoría krónprinsessa er elsta barn Karls Gústavs Svíakonungs og Silvíu
drottningar hans. Hún er 32 ára gömul og kynntist Daniel Westling, unnusta
sínum, árið 2002, þegar hann var ráðinn sem einkaþjálfari hennar, en sam-
band þeirra hófst stuttu seinna. Í febrúar í fyrra fóru af stað orðrómar um að
þau hefðu trúlofast en samkvæmt sænskum lögum þarf ríkisstjórn landsins
að samþykkja hjónaband ríkisarfa. Það samþykki var veitt 24. febrúar það
árið og í kjölfarið var tilkynnt að konunglegt brúðkaup myndi fara fram
sumarið 2010.
Rúmlega þúsund gestir verða viðstaddir athöfnina og um 2.300 fjölmiðla-
menn hafa ferðast til Stokkhólms til að fylgjast með brúðkaupinu. Talið er
að kostnaðurinn við brúðkaupið sé 330 milljónir íslenskra króna sem hefur
vakið nokkrar deilur meðal Svía sem þykir sumum nóg um íburðinn.
Vill helminga fjárlagahalla
Stephen Harper, forsætisráðherra
Kanada, vill að tuttugu stærstu efna-
hagsveldi heims komi sér saman um
að lækka fjárlagahalla allra ríkjanna
um helming á fundi G20-ríkjahópsins
í Toronto í næstu viku.
KANADA
kostlega flott. Hún sagði teymi af
hönnuðum hafa unnið með brúð-
hjónunum frá því í október og að
séð hefði verið fyrir hverju smá-
atriði.
María sér um borðskreyting-
arnar og skreytingarnar í kirkj-
unni og sagðist vera á áætlun.
„Þetta er þokkalega yfirveg-
að. Svíar eru mjög skipulagðir,“
sagði María ennfremur.
Brúðkaupið fer fram í dag
í Stórkirkjunni í Stokkhólmi
en búist er við á annað þúsund
gesta.
magnusl@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS