Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 46

Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 46
 19. júní 2010 LAUGARDAGUR4 Borgartúni 29 / 105 Reykjavík / Sími: 585 6500 / www.audur.is Hefur þú áhuga á fólki og fjármálum? Viltu starfa við öflun nýrra viðskiptavina, sinna fjármálaráðgjöf og víðtækri þjónustu við viðskiptavini í eignastýringu? Við leitum að einstaklingi með háskólapróf, próf í verðbréfaviðskiptum, mikla reynslu af fjármálaráðgjöf og samskiptum við viðskiptavini í eignastýringu, ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. Ef þú hefur áhuga og metnað til að starfa við öflun nýrra viðskiptavina og ráðgjöf um sparnað og lífeyrismál gæti þetta verið draumastarfið fyrir þig. Við leitum að einstaklingi með mikla reynslu í sparnaðar- og lífeyrisráðgjöf, drifkraft, metnað og lífsgleði. Ert þú hæfileikarík(ur), með góða þjónustulund og getur sýnt frumkvæði og sjálfstæði í starfi? Þá gæti þetta starf, sem felur í sér ýmiskonar innri þjónustu, verið starfið fyrir þig. Við leitum að vel ritfærum einstaklingi með góða máltilfinningu bæði á íslensku og ensku, gott tölvulæsi og góða hæfni til að leysa einföld tæknivandamál. Reynsla af ferðaskipulagningu og verkefnastjórnun, sem og færni í myndvinnslu og umbrotsforritum eru ótvíræðir kostir. Viðkomandi þarf að vera hörkuduglegur, hafa ríka ábyrgðartilfinningu, sýna vandvirkni í vinnubrögðum og geta unnið sveigjanlegan vinnutíma. Viðskiptastjóri – Eignastýring Sparnaðar og lífeyrisráðgjafi – Séreignarsparnaður Verkefnastjóri – Innri þjónusta Vinsamlegast sendu ferilskrá á starf@audur.is og segðu okkur í örstuttu máli hvers vegna þú telur þig rétta aðilann í starfið. Umsóknarfrestur er til 22. júní. Nánari upplýsingar um störfin gefur Þóranna Jónsdóttir í síma 585 6500. Við leitum að fleiri framúrskarandi einstaklingum í liðið okkar. Starfsmenn Auðar eru færir á sínu sviði, leggja áherslu á gagnsæi, hreinskiptni og áhættumeðvitund í sínum störfum og hafa trú á framtíðinni. Menntun og reynsla skipta miklu – en við leitum ekki síður að heilbrigðu hugarfari og fólki sem býr yfir krafti, eldmóði og ábyrgð. VIÐ LEITUM AÐ KRAFTI, ELDMÓÐI OG ÁBYRGÐ Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 400 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór- iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Framkvæmdagleði í fyrirrúmi VEGNA VERKEFNA Á GRÆNLANDI ÍSTAK óskar eftir að ráða vana bormenn til starfa við virkjanafram- kvæmdir á Grænlandi. Um er að ræða pallborun og gangaborun. Viðkomandi þurfa að hafa víðtæka reynslu af borvinnu og geta hafið störf fljótlega. Óskum eftir starfsfólki í símasöluver okkar. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri. Umsóknir sendist á simaver@kreditkort.is KRAFTMIKLIR EINSTAKLINGAR ÓSKAST

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.