Fréttablaðið - 19.06.2010, Síða 50
19. júní 2010 LAUGARDAGUR8
Sérfræðingur
í verkefna stjórnun
Vegna aukninga á erlendum samstarfsverkefnum óskar
Veðurstofa Íslands eftir að ráða sérfræðing í verkefnastjórnun
á Fjármála- og rekstarsvið.
Hlutverk sérfræðings í verkefnastjórnun er m.a. að hafa um-
sjón með verk- og kostnaðaráætlunum innlendra- og erlendra
verkefna; stýra, skipuleggja og samræma verkefni auk þess að
sinna skýrslugjöf og samningagerð.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf á sviði raungreina eða viðskiptafræði
• Háskólapróf í verkefnastjórnun eða farsæl reynsla
á því sviði
• Þekking og reynsla af verkbókhaldi, verkáætlunum
og verkskýrslum
• Hæfni í mannlegum samskipum og teymisvinnu
• Góð færni í Excel eða sambærilegum töfl ureiknum
• Frumkvæði og skipulagshæfni
• Hafa gott vald á íslensku og ensku
• Æskileg reynsla af stýringu innlendra- og erlendra
rannsóknarverkefna.
Um er að ræða fullt starf og fara launin eftir kjarasamningi
ríkisins og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfi ð veita Hafdís Karlsdóttir fram-
kvæmdastjóri Fjármála- og rekstrarsviðs (hafdis@vedur.is,
s. 5226000) og Borgar Æ. Axelsson mannauðsstjóri
(borgar@vedur.is, s. 5226000).
Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2010.
Umsóknir sem greina frá menntun, reynslu og fyrri störfum
skulu berast Borgari Ævari Axelssyni, Bústaðavegi 9, 150
Reykjavík eða í tölvupósti á netfangið borgar@vedur.is merkt
„sérfræðingur í verkefnastjórnun“.
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra og Sjálfsbjargarheimilið
hafa í sameiningu ákveðið að setja á stofn Þjónustu- og
þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar. Yfi rmarkmið miðstöðvarinn-
ar verður að veita þjónustu sem bætir stöðu og styrkir hag
hreyfi hamlaðs fólks í samfélaginu, sem jafning ja meðal
borgaranna. Miðað er við að helstu verkefni miðstöðvarinn-
ar geti orðið eftirfarandi:
1. Að veita hreyfi hömluðu fólki svör á einum stað við sem
fl estum spurningum um réttindi sín.
2. Að veita hreyfi hömluðu fólki stuðning og aðstoð við að
leita réttar síns.
3. Að standa fyrir námskeiðum, til dæmis í formi jafningja-
fræðslu.
4. Að tryggja aðgang að fagfólki sem hefur sérþekkingu á
málefnum hreyfi hamlaðs fólks svo og að tryggja aðgang
sama hóps að fjármálaráðgjöf.
5. Miðstöðin skal á sama tíma vinna að hugarfarsbreytingu
í samfélaginu gagnvart hreyfi hömluðu fólki með fræðslu
fyrir ráðamenn og almenning.
Er hér með auglýst eftir fi mm einstaklingum í hlutastörf,
sem munu mynda undirbúningshóp til að skilgreina nánar
helstu verkefni miðstöðvarinnar og forgangsröðun þeirra,
ganga frá rekstraráætlun og annast annan undirbúning
að stofnun miðstöðvarinnar. Áætlað er að undirbúnings-
hópurinn hefji störf 1. september og ljúki þeim með
skýrslu fyrir 31. desember 2010, þar sem fram koma helstu
verkefni, rekstraráætlun, fjöldi starfsmanna og starfslýsing-
ar, húsnæðisþörf og annað sem þarf til að hefja rekstur í
ársbyrjun 2011.
Við leitum að fólki sem hefur:
• Víðtæka menntun og/eða reynslu sem nýtist í þessari
undirbúningsvinnu.
• Þekkingu og skilning á þörfum hreyfi hamlaðra.
• Þekkingu á fjármálum og rekstri.
Hreyfi hamlaðir eru hvattir sérstaklega til þess að sækja um,
en gert er ráð fyrir að tveir til þrír meðlimir undirbúnings-
hópsins séu einstaklingar með hreyfi hömlun.
Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Friðjónsson framkvæmda-
stjóri Sjálfsbjargarheimilisins í síma 899 0065.
Umsóknarfrestur er til 7. júlí 2010 og skal umsóknum
ásamt ferilsskrá skilað á skrifstofu Sjálfsbjargarheimilisins,
Hátúni 12, 105 Reykjavík eða á tryggvi@sbh.is.
Störf við undir búning að
stofnun Þjónustu- og
þekkingar miðstöðvar
Sjálfsbjargar
Æskulýðsfulltrúi
Við leitum að framúrskarandi æskulýðsfulltrúa til
starfa fyrir KFUM og KFUK á Íslandi. Viðkomandi
kemur til með að vinna sem hluti af starfsmanna-
teymi í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Íslandi
sem þjónar öflugu starfi félagsins um land allt.
Starfssvið:
• Skipulag æskulýðsstarfs félagsins í samstarfi við
annað starfsfólk
• Skipulag og umsjón með leikjanámskeiðum að
sumri
• Þjónusta við sjálfboðaliða í æskulýðsstarfinu
• Skipulagning sameiginlegra viðburða
• Þátttaka í viðburðum á vegum félagsins
• Setur inn fréttir á heimasíðu, í fréttabréf
og kemur að ársskýrslugerð
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Þekking og reynsla af kristilegu æskulýðsstarfi
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
• Vilji til að starfa í hópi
• Rík þjónustulund og samskiptahæfni
• Góðir skipulagshæfileikar
• Góð almenn tölvukunnátta
KFUM og KFUK
eru kristileg æskulýðssamtök sem hafa að markmiði að
stuðla að heilbrigði mannsins í heild til líkama, sálar og
anda. Fjölbreytnin í starfi félagsins er í samræmi við orð
stofnandans, sr. Friðriks Friðrikssonar: “Ekkert sannarlega
mannlegt er óviðkomandi sönnum kristindómi.”
Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK hefur á að skipa
samhentu teymi starfsmanna sem þjónustar öflugt og
fjölbreytt sjálfboðaliðastarf KFUM og KFUK á Íslandi.
KFUM og KFUK Holtavegi 28 104 Reykjavík www.kfum.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Þorsteinsson
sviðsstjóri æskulýðssviðs KFUM og KFUK á Íslandi í síma
699-4115. Umsóknir sendist til KFUM og KFUK á Íslandi,
Holtavegi 28, 104 Reykjavík eða á netfangið johann@kfum.is
Umsóknarfrestur er til 16. júlí nk.
Verkstjóri og rennismiður
á vélaverkstæði.
SR Vélaverkstæði hf á Siglufi rði, óskar eftir að ráða
verkstjóra og rennismið á vélaverkstæði sitt.
Verkstjóri: starfi ð felur í sér daglegan rekstur og
stjórn un verkstæðisins. Leitað er eftir einstaklingi
sem er sjálfstæður, þjónustulundaður og með hæfni
í mannlegum samskiptum og þarf viðkomandi
að haf reynslu í stjórnun.
Menntunarkröfur: Vélfræðingur, vélvirki eða sam-
bærilegt.
Rennismiður: starfi ð felur í sér rennismíði og ýmsa
aðra stálsmíði er til fellur hverju sinni. Leitað er eftir
einstaklingi sem er sjálfstæður, þjónustulundaður og
þarf viðkomandi að hafa reynslu af rennismíði.
Menntunarkröfur: Rennismiður.
Upplýsingar veita: Ólafur Sigurðsson framkvæmda-
stjóri sími 467-1250 / gsm 861-2268 os@srv.is og
Pálína Pálsdóttir stjórnarformaður sími 467-1252 /
gsm 862-6385 pp@srv.is
STARFSKRAFTUR Í
MÓTTÖKU ÓSKAST!
Hótel Örk í Hveragerði óskar e ir að ráða
starfskra í mó öku. Nánari upplýsingar
vei r Sigurður í síma 864 3122
Leitum að liðsauka í þjónustudeild
Te & Kaffi óskar eftir viðgerðarmanni í þjónustudeild
fyrirtækisins. Starf þetta felur m.a. í sér viðgerðarþjónustu
á verkstæði við kaffi vélar og viðhald tækja í kaffi brennslu
fyrirtækisins.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í vélvirkjun eða rafvélavirkjun.
• Haldgóð starfsreynsla við viðgerðir og bilana greiningu.
• Samskiptahæfni og jákvætt hugarfar.
• Áhugi á að kynnast samspili tækjabúnaðar og
framleiðsl u á hágæðakaffi .
Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt að starfsmaður
geti hafi ð störf sem fyrst.
Umsóknir sendist á gudmundur@teogkaffi .is
Hjúkrunarfræðingur
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa við
Meltingarsetrið sem fyrst. Starfi ð felst í aðstoð við melt-
ingarfæraspeglanir. Starfshlutfallið er 20%. Góður starfs-
andi og skemmtilegur vinnustaður. Umsókn ásamt
ferilskrá skal senda til Meltingarsetursins, Þönglabakka
1–6 109 Reykjavík eða á netfangið deidag@hotmail.com
Umsóknarfrestur er til 28. júní.
sími: 511 1144