Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 52
19. júní 2010 LAUGARDAGUR10
Afturelding –
framkvæmdastjóri
Aðalstjórn Ungmennafélagsins
Aftureldingar óskar eftir að ráða
framkvæmdastjóra í fullt starf.
Við leitum að einstaklingi með framúrskarandi hæfni í
mannlegum samskiptum, viðskipta-/rekstramenntun eða
sambærilega menntun auk brennandi áhuga á íþróttum.
Viðkomandi þyrfti að geta hafi ð störf sem fyrst.
Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma því starfi nu
getur fylgt erill utan dagvinnutíma.
Helstu verkefni
• Utanumhald og eftirlit með rekstri félagsins.
• Þjónusta við iðkendur og stjórnir deilda.
• Umsjón með launakeyrslum
• Verkefnastjórnun í átaksverkefnum félagsins.
• Samskipti við önnur íþróttafélög og bæjaryfi rvöld.
• Ritstjórn vefsíðu og FELIX félagakerfi sins.
• Eftirlit og yfi rsýn með fjáröfl unum félagsins.
• Undirbúningur funda og annarra viðburða á
vegum félagsins.
Þekking-hæfni
• Góð þekking á rekstri og fjárreiðum, gerð fjárhags-
áætlana, bókhaldi og gerð ársreikninga.
• Lipurð í mannlegum samskiptum..
• Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði.
• Þekking og reynsla af íþróttamálum.
• Góð tölvukunnátta nauðsynleg.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfi ð.
Umsóknarfrestur er til 2. júlí 2010.
Umsóknir sendist á netfangið: umfa@afturelding.is
Upplýsingar um starfi ð gefa Gyða Árný Helgadóttir,
umfa@afturelding.is s. 864 8084 eða Jón Pálsson,
jon@ans.is.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og þeim
öllum svarað.
Við leitum að góðu fólki
Á vefnum getur þú með einföldum hætti flett í gegnum og skoðað atvinnuauglýsingar
Fréttablaðsins. Þú kaupir atvinnuauglýsingu í Fréttablaðinu - öflugasta auglýsingamiðli
ALLT ATVINNA fylgir helgarblaði Fréttablaðsins... og birtist á í viku
...ég sá það á visir.is
landsins og hún birtist frítt í heila viku á einum stærsta vefmiðli landsins –
og Fréttablaðið kynna nýjan og öflugan atvinnu- og raðauglýsingavef
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ráðningarþjónusta
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Leitar þú að starfsmanni?
HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi
þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga.
Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna.
Markviss leit
Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og
tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er
ráðning í hans stað án endurgjalds.
Ekkert staðfestingargjald
Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt
langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú
ekkert ef ekki verður af ráðningu.
Fjöldi hæfra umsækjenda
Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni
okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn
fyrir starfið.
Fjölbreyttar þjónustuleiðir
Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum
og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina
hjá okkur.
Reynsla og þekking
Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna-
mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og
hagnýtri menntun.
Sanngjarnt verð
Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á
þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð!
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita
afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.:
Marel kallar nú eftir málmiðnaðarmönnum og rafvirkjum
til spennandi starfa í höfuðstöðvum sínum í Garðabæ.
„Á síðasta ári hefur Marel ráðið í fleiri en fjörutíu stöðugildi
og enn köllum við eftir fólki til tækni- og framleiðslustarfa.
Þetta eru framtíðarstörf fyrir málm- og rafiðnaðarmenn í
framsetningu og framleiðslu á Marel-tækjum,“ segir Sig-
steinn P. Grétarsson, forstjóri Marels, sem veitir 380 starfs-
mönnum vinnu í höfuðstöðvum sínum í Garðabæ og rekur
einnig framleiðslufyrirtæki í Danmörku og Hollandi.
„Við kynntum fyrir stuttu nýja röntgenvöru sem leitar
að beinum í kjúklingi og sala á þeim hefur gengið vonum
framar, eins og öðrum vörum Marels, en 99 prósent af fram-
leiðslu okkar eru flutt út,“ segir Sigsteinn, sem þurfti að
gera varúðarráðstafanir þegar kreppan skall á, en náði að
draga uppsagnir til baka.
„Í góðærinu var vonlaust að fá íslenska rafvirkja til starfa
og þá lentum við í vandræðum og þurftum að leita til Dan-
merkur. Eftir hrunið hefur hins vegar verið mikið atvinnu-
leysi meðal íslenskra iðnaðarmanna og nú gott tækifæri
fyrir þá að fá frábæra vinnu um leið og við njótum þess
að mun meira af frambærilegu fólki er nú laust til starfa á
vinnumarkaðnum,“ segir Sigsteinn sem hefur undanfarið
fært fleiri störf til landsins til að efla atvinnulífið hér og
horfir björtum augum fram á veginn, enda Marel ört vax-
andi fyrirtæki sem líkt og fyrr byggir á íslensku hugviti
frá upphafi til enda.
„Marel er ákaflega skemmtilegur vinnustaður og við
leggjum mikið upp úr góðum starfsanda og góðri aðstöðu
fyrir starfsmenn. Á staðnum er íþróttasalur, líkamsrækt
og afar öflugt starfsmannafélag. Okkur helst því mjög vel
á starfsfólki og lítið um að fólk hætti hér störfum.“
Sigsteinn segir störfin í boði nú vera fjölbreytt, enda vöru-
línur Marel margar.
„Megnið af framleiðslu Marel eru hátæknivörur. Starfs-
aðstaða til þeirra starfa er mjög snyrtileg og góð og vinnan
sjálf spennandi. Hátæknivörur okkar hafa leiðandi mark-
aðsstöðu í heiminum og við fáum mikið af viðskiptavinum í
heimsókn sem bæta hjá sér nýtingu og framleiðslu með því
að kaupa okkar vöru, og þá ánægju finna starfsmenn vel.“
thordis@frettabladid.is
Gullið tækifæri
Sigsteinn P. Grétarsson er forstjóri Marel. Hann segir fáheyrt að starfs-
fólk láti af störfum hjá Marel því starfsandi og starfsánægja sé mikil
innan fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI