Fréttablaðið - 19.06.2010, Qupperneq 70
19. júní 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
SALMAN RUSHDIE FÆDDIST
ÞENNAN DAG:
„Efinn er ráðandi
ástand mannvera á tut-
tugustu öldinni.“
Indverski rithöfundurinn
Salman Rushdie fæddist
í Bombay árið 1947 en er
búsettur í Bretlandi. Bók
hans Söngvar Satans frá
1988 olli miklu fjaðrafoki
meðal múslima.
„Það er nauðsynlegt að minnast þess að það er ekkert voða-
lega langt síðan konur og karlar voru allt annað en jöfn á
Íslandi. Það er gott tilefni á þessum degi að minna á að þótt við
höfum fengið kosningarétt fyrir næstum hundrað árum, þýðir
það ekki að jafnréttisbaráttunni sé lokið og að við getum lagst
upp í sófa,“ segir Halldóra Traustadóttir, framkvæmdastjóri
Kvenréttindafélags Íslands (KRFÍ). Kvenréttindadagurinn er
haldinn hátíðlegur í dag með dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur klukkan 16, en 95 ár eru liðin síðan konur eldri
en fjörutíu ára fengu kosningarétt á Íslandi. Fimm árum síðar
fengu svo allar konur kosningarétt óháð aldri.
Dagskráin er haldin í samvinnu við Skotturnar – félag
um 24. október, sem eru nýstofnuð regnhlífasamtök sextán
kvenna- og kvenréttindafélaga á Íslandi. Í Tjarnarsalnum í
dag verða samtökin kynnt og þeir mörgu viðburðir sem fara
fram í haust í tilefni 35 ára afmælis kvennafrídagsins, þegar
tugþúsundir kvenna yfirgáfu vinnustaði sína og söfnuðust
saman í miðbæ Reykjavíkur árið 1975. „Kvennafrídagurinn
verður reyndar haldinn hátíðlegur þann 25. október næstkom-
andi vegna þess að 24. október ber upp á sunnudag. En ætlunin
er að standa fyrir veglegri dagskrá dagana 23. til 25. október
í tilefni afmælisins,“ segir Halldóra.
Fyrir fimm árum, árið 2005, voru konur hvattar til að ganga
út af vinnustöðum sínum klukkan átta mínútur yfir tvö á
kvennafrídaginn, því þá höfðu þær unnið fyrir kaupinu sínu ef
tekið var mið af launamun kynjanna. Í dag verður tilkynnt á
hvaða tíma konur verða hvattar til að yfirgefa vinnustaði sína
í ár, en að sögn Halldóru verður aðalumræðuefni útifundarins
í október næstkomandi hvers kyns ofbeldi gegn konum.
Verndari kvennafrídagsins 2010 er Vigdís Finnbogadótt-
ir og heldur hún stutta tölu af því tilefni í Ráðhúsinu í dag.
Þá verður úthlutað úr Menningar- og minningasjóði kvenna,
úrslit kynnt í hönnunarsamkeppni Skottanna og Hönnunar-
miðstöðvar Íslands á barmmerki kvennafrídagsins, Áfram
stelpur hópurinn, sem skipaður er söngkonunum Brynhildi
Björnsdóttur, Eline McKay, Margréti Pétursdóttur og Esther
Jökulsdóttur auk píanóleikarans Arnhildar Valgarðsdóttur,
tekur lagið og ýmislegt fleira. Að dagskránni lokinni fer fram
móttaka í boði Reykjavíkurborgar. kjartan@frettabladid.is
KVENRÉTTINDADAGURINN: HALDINN
HÁTÍÐLEGUR Í RÁÐHÚSINU Í DAG
SAMEINAST UM
HÁTÍÐAHÖLD
ENN LANGT Í LAND „Það er nauðsynlegt að minnast þess að það er
ekkert voðalega langt síðan konur og karlar voru allt annað en jöfn á
Íslandi,” segir Halldóra Traustadóttir, framkvæmdastjóri Kvenréttinda-
félags Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Á þessum degi árið 1994 hélt Björk
Guðmundsdóttir sína fyrstu tónleika á
Íslandi sem sólólistamaður, en plata
hennar Debut hafði slegið í gegn
um víða veröld árið áður. Miðarnir
á hljómleikana í Laugardalshöllinni,
þar sem danshljómsveitin Bubbleflies
hitaði upp og Bretarnir í Underworld
stigu síðastir á svið, seldust upp og
munu miðar hafa gengið kaupum og
sölum fyrir utan Höllina á geypiverði.
Fyrr um daginn hafði Björk stokkið
úr fallhlíf og lent á gervigrasinu í
Laugardalnum, þar sem hún söng
Akkerislagið af Debut fyrir átta
þúsund viðstadda gesti. Á tónleik-
unum um kvöldið vakti athygli að
Björk söng flest laganna á íslensku
þótt upprunalegu textarnir væru á
ensku. Ekki vakti minni athygli þegar
Björk, um miðbik tónleikanna, bað
áhorfendur um mínútu langa þögn til
að minnast hinnar látnu hljómsveitar
Ham, en sú sveit hafði lagt upp laup-
ana í júní þetta ár en átti síðar eftir að
koma saman aftur.
ÞETTA GERÐIST: 19. JÚNÍ 1994
Fyrstu sólótónleikar Bjarkar
AFMÆLI
ÖRN
ÁRNAS0N
leikari er 51
árs.
ÖSSUR
SKARPHÉÐ-
INSSON
utanríkisráð-
herra er 57
ára.
erf idr yk kjur
G R A N D
Hlýlegt og gott viðmót
á Grand hótel.
Fjölbreyttar veitingar
lagaðar á staðnum.
Næg bílastæði
og gott aðgengi.
Grand Hótel Reykjavík
Sigtún 38, 105 Rvk.
Sími: 514 8000
www. grand.is
erfidrykkjur@grand.is
Verið velkomin
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Jakob Helgason
Hrafnistu í Reykjavík,
áður til heimilis á Patreksfirði,
lést fimmtudaginn 10. júní sl. á Hrafnistu í Reykjavík.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Veronika Pétursdóttir
Kristín Ólafsdóttir Sigurður Guðjónsson
Pétur Ólafsson
Bjarki Ólafsson
Sigþrúður Ólafsdóttir Björn J. Hannesson
Guðrún Ólafsdóttir Vignir Richardsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Garðar Halldórsson
pípulagningameistari
Álfaskeiði 72, Hafnarfirði,
sem lést þann 15. júní, verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 22. júní kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Unnur Garðarsdóttir Örn Þór Þorbjörnsson
Gylfi Garðarsson
Hólmfríður Garðarsdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Hjördís Jóhannsdóttir
Furugerði 1, Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans, Kópavogi, sunnu-
daginn 6. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Elías Héðinsson Björg Jónsdóttir
Atli Héðinsson Pia Héðinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskaður eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Magnús Ó. Stephensen
Suðurtúni 27, Álftanesi,
lést á Líknardeild Landspítalans aðfaranótt 17. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðbjörg I. Stephensen
Kristbjörg Stephensen Björn H. Halldórsson
Ragnheiður Stephensen
Lilja Þóra Stephensen Arnar Helgason
og barnabörn.
Elskulegur bróðir og mágur,
Jónas Jónsson
lést á Landsspítalanum 15. júní. Útförin fer fram frá
Fossvogskapellu fimmtudaginn 24. júní kl. 15.00.
Arnbjörg Jónsdóttir Waage
Geir Jónsson
Ingunn Stefánsdóttir
Okkar ástkæra
Emma Árnadóttir
sem lést sunnudaginn 13. júní, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju mánudaginn 21. júní kl. 14.00.
Ágústa G. Garðarsdóttir Henry Stefánsson
Árni Ingi Garðarsson Ástríður S. Valbjörnsdóttir
Edda K. Lystrup Arne Lystrup
Ásdís Þr. Garðarsdóttir Björn Guðmundsson
Hafdís Garðarsdóttir Rúnar Ásgeirsson
Hörður Garðarsson Þóranna Kjartansdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Helga Fanney
Stefánsdóttir
Rauðagerði 12,
lést miðvikudaginn 16. júní. Útförin verður auglýst
síðar.
Jónína Kárdal Þorbjörn Vignisson
Anna María Kárdal Ásgeir Karl Ólafsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir viljum við færa öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Hreins Ketilssonar
Sunnuhlíð, Svalbarðsströnd.
Hólmfríður Hreinsdóttir Stefán Stefánsson
Ingibjörg Hreinsdóttir Haukur Már Ingólfsson
Hólmkell Hreinsson Kristín Sóley Sigurvinsdóttir
afa- og langafabörn.
Hjartans þakkir til allra er sýndu
okkur stuðning og hlýhug í veikindum
og við andlát ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
Gunnars Gestssonar
Heiðarbæ 13, Reykjavík.
Sólveig Jóhanna Guðmundsdóttir
Sigríður Lára Gunnarsdóttir Lýður Skúli Erlendsson
Torfi Gunnarsson
Grímur Gunnarsson
og barnabörn.