Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 84
56 19. júní 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Heima er best segir mál-
tækið, og Edda Garðarsdóttir.
Miðjumaðurinn verður í eldlín-
unni í dag þegar Ísland tekur á
móti Norður-Írum í undankeppni
HM í Þýskalandi á næsta ári.
„Þetta er leikur sem við eigum
að vinna. Íslenska landsliðið hefur
síðustu misseri leyft sér að setja
slána aðeins hærra, við gerum
meiri kröfur til okkar en oft áður.
Krafan á góða frammistöðu er
orðin mikil og sterk. Ég ætla bara
rétt að vona að við getum gert alla
þessa stóru hluti sem við erum
búin að tala um að gera. Ég hef
tröllatrú á öllum þessum stelpum
hérna,“ segir Edda sem hafði ekki
komið heim í hálft ár áður en kom
að þessum leik.
Hún leikur með Örebro í Sví-
þjóð þar sem henni líður vel. „Það
er samt best að koma heim. Það
er allt annað að spila hérna held-
ur en á einhverjum gervigrasvelli
í Svíþjóð,” segir Edda og horfir
brosmild út á Laugardalsvöllinn.
„Ég hlakka alltaf til að koma
hingað og spila. Það er toppurinn
og hér er alltaf allt til alls. Fólk er
alltaf duglegt að mæta og við fáum
góðan stuðning. Það er draumur
okkar knattspyrnukvenna.“
Liðið fór venju samkvæmt til
Keflavíkur í gær þar sem það
dvelur fyrir alla leiki. „Þetta er
einhver hjátrú hjá honum Sigurði
held ég og við erum ánægðar með
það. Við fórum hingað fyrst þegar
Sigurður tók við og það gekk vel.
Við erum á flughótelinu í Keflavík
og förum í Garðinn að æfa. Það er
góður völlur þar. Við erum svolít-
ið útaf fyrir okkur. Þetta er bara
orðið eitthvað happa sem við vilj-
um ekkert sleppa,“ segir Edda.
„Þetta er orðið að hefð og við
förum svo alltaf í sama göngu-
túrinn á leikdag. Guðni Kjartans-
son [aðstoðarlandsliðsþjálfari] er
ánægður með þetta þar sem hann
býr í Keflavík. Við göngum allt-
af framhjá húsinu hans og frúin
hans kemur út og veifar okkur,“
segir Edda. „Umgjörðin í kring-
um svona leiki er reyndar alltaf
svipuð en það er samt best að vera
heima.“
Edda segir að Ísland stefni á
að spila hraðan og árangursrík-
an fótbolta í dag. „Þær eru stór-
ar og sterkar og við þurfum að
nýta hraðann. Við fengum mörg
færi til að skora úti gegn þeim
en nýttum bara eitt. Við þurfum
að sækja á mörgum leikmönn-
um og koma sem flestum nálægt
markinu. Þannig aukast líkurnar
á því að við skorum,“ segir Edda
brosmild.
Katrín Jónsdóttir segir að
reynsla liðsins hjálpi því mikið.
„Liðið er komið með aukna reynslu
en maður lifir ekki á fornri frægð.
Trúin á verkefnin okkar er meiri
þrátt fyrir að krafan um sigur
hafi ekkert breyst, það er auðvit-
að alltaf stefnan. Ef maður setur
ekki kröfu á sig vex maður ekki
og nær engum árangri,” segir fyr-
irliðinn sem leiðist orðið „skyldu-
sigur“ spurð um Norður-Íra.
„Okkar markmið er að komast
á HM og það hefur ekkert breyst.
Til þess þurfum við að vinna alla
þrjá leikina sem eftir eru,” segir
Katrín ákveðin um leið og hún
hvatti fólk til að fjölmenna á völl-
inn. hjalti@frettabladid.is
FÓTBOLTI Landsliðsþjálfarinn Sig-
urður Ragnar Eyjólfsson ætlar
ekki að gera miklar breytingar
á leik liðsins fyrir leikinn gegn
Norður-Írum í dag. „Við ætlum að
sækja. Norður-Írar ætla eflaust að
liggja til baka og sækja hratt.“
Þjálfarinn býst við erfiðum leik
en fyrri leiknum lauk með 1-0 sigri
Íslands ytra. „Það gæti þurft 90
mínútur til að skora eitt mark. En
við erum vanar því að spila mjög
vel hérna heima, við höfum unnið
alla leikina okkar og ekki enn feng-
ið á okkur mark síðan ég tók við.
Vonandi heldur það áfram,“ sagði
Sigurður.
Þjálfarinn segir jafnframt að
margir leikmenn komi til leiks
núna í betra formi en oft áður en
landsliðskonum sem spila erlend-
is fjölgar ört. „Þóra B. Helgadótt-
ir er til að mynda að spila frábær-
lega í Svíþjóð og hún hefur eflaust
aldrei verið í betra formi en ein-
mitt núna. Hólmfríður Magnús-
dóttir spilar í bestu deild heims
og það gerir henni mjög gott. Það
er reyndar galli að hún er að spila
í mjög mörgum stöðum þarna úti
en við notum hana á hefðbundinn
hátt með landsliðinu, á kantinum,“
sagði þjálfarinn.
Allir leikmenn liðsins eru klárir
í slaginn og Sigurður segir að nú
megi ekkert kæruleysi koma upp.
Liðið vilji búa til úrslitaleik gegn
Frökkum á Menningarnótt um
hvort liðið kemst upp úr riðlinum,
í umspil um laust sæti á HM.
„Við megum ekki tapa stigi ef við
ætlum að ná markmiði okkar. Við
höfum spilað vel á heimavelli og
það sést oft stór munur á því hvort
stelpurnar eru að spila heima eða
úti. Vonandi fáum við góðan stuðn-
ing áhorfenda eins og svo oft áður,“
sagði Sigurður Ragnar. - hþh
Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson segir að Ísland megi ekki við því að tapa stigi:
Fleiri leikmenn í betra formi en oft áður
STÓRLEIKUR Sigurður segir að það sé mikilvægt að sýna ekki kæruleysi og eins að
fólk flykkist á leikinn í dag. Raunar höfðu allar stelpurnar í landsliðinu orð á því að
þær óskuðu sér þess að völlurinn yrði sem næst því fullur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
> Fullkomnar í Laugardalnum
Íslenska kvennalandsliðið leikur aldrei betur undir stjórn
Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar en á Laug-
ardalsvellinum. Liðið hefur spilað sjö leiki
í Laugardalnum síðan hann tók við liðinu
í ársbyrjun 2007. Stelpurnar okkar hafa
unnið alla þessa sjö leiki og hafa einnig
haldið markinu hreinu. Markatalan er
38-0, þar af 17-0 í tveimur síðustu leikj-
unum á móti Serbíu (5-0) og Eistlandi
(12-0). Margrét Lára Viðarsdóttir hefur
skorað í öllum leikjunum sjö samtals 15
mörk eða 2,1 að meðaltali í leik.
FÓTBOLTI Erfið meiðsli aftan í læri
eru enn að gera Margréti Láru
Viðarsdóttur lífið leitt. „Ég hef
ekki verið nógu góð síðasta hálfa
mánuðinn. Það hefur verið mikið
álag á mér, við höfum spilað
marga leiki og ferðast mikið. Það
hefur gengið erfiðlega að ráða
við álagið en ég er í það minnsta
komin heim og gef kost á mér í
leikina. Ég gef mig alla í þetta,“
segir Margrét Lára.
„Ég er ekki að æfa á fullu og fæ
sérstaka meðferð milli leikja. Ég
er með skilningsríkt fólk í kring-
um mig. Ég mun halda áfram að
leita lækninga, bæði hér heima
og erlendis en þetta er ekki
skemmtilegt. En það eru lausn-
ir á öllum vandamálum,“ segir
markadrottningin bjartsýn.
„Ég er betri en ég var í fyrra
og það hefur gengið vel í ár
hjá mér. Reyndar hefur gengið
vonum framar. Ég hef verið að
skora og leggja upp og er ánægð
með gengi liðsins. Mér líður vel
og liðinu gengur vel, þá er ekki
yfir neinu að kvarta,“ segir Mar-
grét sem verður í fremstu víglínu
gegn Norður-Írum í dag. - hþh
Margrét Lára Viðarsdóttir:
Ekki nógu góð
en byrjar samt
MARGRÉT Líður vel í Svíþjóð og gefur sig
alla í leikina fram undan þrátt fyrir að
vera enn meidd. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Setjum markið alltaf hærra
Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Norður-Írum í undankeppni HM á Laugardalsvelli í dag. Edda
Garðarsdóttir segir að mikil ánægja sé með að haldið sé í hefðirnar varðandi undirbúning fyrir leiki. Liðið
dvelur alltaf saman í Keflavík og tekur sama göngutúrinn á leikdag. Hjátrú hjá þjálfaranum, segir Edda.
HEFÐIR OG VENJUR Edda er ánægð með hefðirnar og venjurnar sem Sigurður Ragnar hefur innleitt hjá íslenska kvennalandslið-
inu. Gönguferð um Keflavík er lykilatriði á leikdegi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hólmfríði Magnúsdóttur líkar lífið vel í bandarísku atvinnumanna-
deildinni. Hún spilar þar með sterku liði Philadelphia Independence.
„Ég hef ekki séð svona góðan klúbb áður, umgjörðin er alveg
frábær. Æfingaaðstaðan er til fyrirmyndar og það er mikið af
fólki á öllum leikjum, frá 3.500 til 6.500 manns. Þetta er mjög
fagmannlegt,“ segir Hólmfríður sem er augljóslega ánægð úti.
„Ég er búin að koma mér vel fyrir. Ég bý með stelpu úr
enska landsliðinu sem er bara fínt og við erum orðnar bestu
vinkonur. Við búum um 50 mínútum fyrir utan Philadel-
phiu, erum með sundlaug í garðinum og þetta er voða
fínt. Ég ætla að reyna að vera þarna eins lengi og ég get.“
Besti leikmaður heims er hin brasilíska Marta en hún
leikur með Gold Pride í bandarísku deildinni.
Marta mætti einmitt Hólmfríði og hafði betur í
síðustu viku, 3-1 þar sem hin brasilíska skoraði tvö mörk.
„Ég var aðeins að dekka hana og átti kannski annað markið en
hún var orðin pirruð á mér,“ segir Hólmfríður og glottir. „Hún
komst eiginlega aldrei framhjá mér og var alltaf að skipta um kant.
Ég held að það sé ekkert gaman að mæta mér inni á vellinum, það
er örugglega óþolandi.“
Landsliðskonan hefur spilað margar stöður úti. „Allar nema
miðvörð og mark,“ segir hún. „En það er bara fínt. Ég fæ þá aukna
reynslu að því að spila í fleiri stöðum í þessari sterku deild.
En það er auðvitað enn meira spennandi að fá að
koma heim og spila í sinni stöðu með landsliðinu,“
segir Hólmfríður sem spilar iðulega á kantinum.
„Deildin er mjög jöfn og það er stutt á milli
efstu og neðstu liða. Það er ekkert lið lakara en
annað og það eru landsliðsmenn í öllum stöð-
um hjá öllum liðum. Tempóið er mjög mikið og
maður hefur engan tíma á boltanum. Þjálfarinn
hefur verið að reyna að stimpla það inn í hausinn á
mér í þrjá mánuði að senda boltann strax og það er
allt að koma,“ segir Hólmfríður.
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR Í BESTU DEILD HEIMS: ÖRUGGLEGA ÓÞOLANDI AÐ SPILA Á MÓTI MÉR
Ætla að reyna vera hérna eins lengi og ég get
Frakkland 6 6 0 0 33-0 18
Ísland 6 5 0 1 23-2 15
Serbía 6 2 1 3 7-11 7
Eistland 6 2 0 3 5-29 6
N-Írland 6 1 0 4 2-13 3
Króatía 6 0 1 5 2-17 1
Eitt lið kemst áfram í átta liða umspil um
laust sæti á HM. Þar eru leiknir tveir leikir
í september.
Staðan í riðlinum