Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 88
60 19. júní 2010 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Þýskaland var það lið
sem stal senunni í fyrstu umferð
heimsmeistarakeppninnar í Suður-
Afríku. Þýska liðið valtaði þá yfir
Ástralíu og spilaði blússandi fínan
fótbolta. Liðið spilaði ágætan bolta
gegn Serbum í gær en var sjálfu
sér verst og tapaði leiknum, 1-
0. Það var Milan Jovanovic sem
skoraði eina mark leiksins. Þetta
voru aftur á móti fyrstu stig Serba
á mótinu en þeir töpuðu fyrir Gana
í fyrsta leiknum.
Spænski dómarinn Albert Undi-
ano var harður í horn að taka og
gaf fjögur gul spjöld á fyrstu 22
mínútum. Þjóðverjinn Miroslav
Klose var á meðal þeirra og hann
fékk annað gult spjald á 37. mín-
útu og þar með það rauða. Aðeins
nokkrum sekúndum síðar skoraði
Jovanovic fyrir Serba.
Þjóðverjar fengu fjölda færa til
þess að jafna leikinn en þó ekkert
eins gott og þegar Nemanja Vidic
ákvað að gefa þeim vítaspyrnu
með því að teygja höndina í bolt-
ann á glórulausan hátt. Lukas
Podolski tók vítið og lét verja frá
sér. Riðillinn er því galopinn eftir
sigur Serbanna í gær.
„Þetta var ekki svo slæm
spyrna. Ég er samt oftast örugg-
ari. Ég verð engu að síður að taka
þessu. Þetta er slæmt tap og við
hefðum klárlega getað gert mun
betur í þessum leik,“ sagði Pod-
olski eftir leikinn.
Joachim Löw, landsliðsþjálf-
ari Þjóðverja, var ekki sáttur við
Klose og sagði að hann hefði mátt
fara varlegar eftir að hafa fengið
fyrra gula spjaldið. Klose var sjálf-
ur á því að það hefði verið harka-
legur dómur að henda sér af velli.
„Ég var að reyna að spila bolt-
anum og þetta var ekkert brot. Ég
hefði í mesta lagi átt að fá aðvörun.
Gult spjald var allt of harkalegur
dómur,“ sagði Klose ósáttur. - hbg
Þjóðverjar brotlentu harkalega er þeir spiluðu gegn Serbum á HM í Suður-Afríku í gær:
Þjóðverjar voru sjálfum sér verstir gegn Serbum
SJÁUMST Miroslav Klose fær hér að líta rauða spjaldið. Aðeins mínútu síðar kom
sigurmark Serba í leiknum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Bandaríkjamaðurinn
Michael Bradley sá til þess í gær
að Slóvenar fengu ekki farseðilinn
í sextán liða úrslit HM. Hann jafn-
aði þá leikinn átta mínútum fyrir
leikslok en Slóvenar leiddu í hálf-
leik 2-0. Lokatölur voru þó 2-2.
Valter Birsa og Milivoje Novak-
ovic komu Slóvenum í afar þægi-
lega stöðu fyrir hlé en mark Land-
ons Donovan í upphafi síðari
hálfleiks gaf Bandaríkjamönnum
von. Bradley kom síðan Banda-
ríkjamönnum til bjargar er hann
skoraði markið mikilvæga. Banda-
ríkjamenn voru svo líklega rænd-
ir öllum stigunum en mark Maur-
ice Edu skömmu fyrir leikslok var
dæmt af.
„Þetta lið veit nákvæmlega hvað
það þýðir að berjast í 90 mínútur.
Við höfum séð liðið leika þennan
leik margoft áður,“ sagði himinlif-
andi þjálfari Bandaríkjanna, Bob
Bradley.
Hann hefði þó viljað öll stigin í
leiknum og skilur ekki frekar en
aðrir af hverju Koman Coulibaly
dómari dæmdi mark Edu af.
- hbg
Mikil dramatík í leik Bandaríkjanna og Slóveníu:
Bradley kom til bjargar
FÖGNUÐUR Bradley fagnaði jöfnunarmarki sínu með stæl. NORDIC PHOTOS/AFPC-RIÐILL
Slóvenía - Bandaríkin 2-2
1-0 Valter Birsa (13.), 2-0 Zlatan Ljubijankic (42.),
2-1 Landon Donovon (48.), 2-2 Michael Bradley
(82.).
England-Alsír 0-0
STAÐAN
Slóvenía 2 1 1 0 3-2 4
Bandaríkin 2 0 2 0 3-3 2
England 2 0 2 0 1-1 2
Alsír 2 0 1 1 0-1 1
NÆSTU LEIKIR
Slóvenía - England miðvikud. kl. 14.00
Bandaríkin - Alsír miðvikud. kl. 14.00
D-RIÐILL
Þyskaland-Serbía 0-1
0-1 Milan Jovanovic (38.).
STAÐAN
Þýskaland 2 1 0 1 4-1 3
Gana 1 1 0 0 1-0 3
Serbía 2 1 0 1 1-1 3
Ástralía 1 0 0 1 0-4 0
NÆSTU LEIKIR
Gana - Ástralía í dag kl. 14.00
Gana - Þýskaland miðvikud. kl. 18.30
Ástralía - Serbía miðvikud. kl. 18.30
LEIKIR DAGSINS
Holland - Japan kl. 11.30
Gana - Ástralía kl. 14.00
Kamerún - Danmörk kl. 18.30
LEIKIR MORGUNDAGSINS
Slóvakía - Paragvæ kl. 11.30
Ítalía - Nýja-Sjáland kl. 14.00
Brasilía - Fílabeinsströndin kl. 18.30
HM Í GÆR
KYSSTI ÞJÁLFARANN Milan Jovanovic
tryggði Serbum sigur í gær og þakkaði
þjálfaranum Radomir Antic traustið í
leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓTBOLTI Enska landsliðið olli miklu
vonbrigðum með frammistöðu
sinni í markalausu jafntefli á móti
Alsír á HM í Suður-Afríku í gær.
Enska liðið er í 3. sæti riðilsins
eftir fyrstu tvær umferðirnar og
verður að öllum líkindum að vinna
Slóveníu í lokaleiknum til að kom-
ast áfram í 16 liða úrslitin. Slóven-
ía er með fjögur stig en enska liðið
er með tvö stig eins og Bandarík-
in en hefur skorað tveimur mörk-
um minna.
Það voru pirraðir enskir leik-
menn sem gengu af velli í leiks-
lok og ekki léttist brúnin á sumum
þeirra þegar ensku stuðnings-
mennirnir púuðu á sína menn.
Þetta fór sérstaklega í taugarnar
á Wayne Rooney sem hefur sjaldan
spilað verr en í gær. „Það er gaman
að sjá okkar eigin stuðningsmenn
púa á okkur,“ sagði Rooney kald-
hæðnislega um leið og hann gekk
af velli eftir sjöunda landsleikinn í
röð sem hann nær ekki að skora í.
Bæði liðin breyttu um markvörð
frá því í fyrsta leik þegar mistök
þeirra Robert Green og Faouzi
Chaouchi reyndust sínum liðum
dýrkeypt. Hin tæplega 40 ára
gamli David James kom í enska
markið en hann var 7 árum og 8
dögum eldri en dómarinn Rav-
shan Irmatov. Englendingar gátu
nú ekki kennt markverði sínum um
hvernig fór líkt og þeir gerðu eftir
skelfileg mistök Robert Green í
fyrsta leiknum.
Enska liðið virkaði þreytulegt og
áhugalítið í þessum leik í kvöld og
þeir sköpuðu sér ekki mikið gegn
vinnusömu og skipulögðu alsírsku
liði.
Sendingamistök, taktleysi í spili
og skelfilegar hornspyrnur er eitt-
hvað sem menn eiga ekki von á
frá enska landsliðinu en var saga
þessa leiks.
„Ef við ætlum lengra í þessari
keppni þá verðum við að fara að
bæta okkar leik,“ sagði fyrirlið-
inn Steven Gerrard sem skoraði
eina mark liðsins í keppninni en
síðan er enska liðið búið að spila í
176 mínútur án þess að skora. „Við
vorum ekki nógu góðir á síðasta
þriðjungnum til þess að komast í
gegnum vörnina þeirra. Þetta var
þeirra úrslitaleikur á HM og þeir
náðu í jafntefli,” sagði Gerrard.
„Ég hélt að þeir væru betri og
þeir voru ekki að spila sinn besta
bolta. Þetta var ekki dagur enska
landsliðsins,” sagði Rabah Saa-
dane, þjálfari Alsíringa og það er
hægt að taka undir hans orð.
Fabio Capello, landsliðsþjálfari
enska liðsins, hefur ekki náð að
kveikja í sínum mönnum og þetta
var örugglega ekki skemmtilegur
afmælisdagur fyrir hann.
„Við eigum ennþá eftir að spila
einn leik og við vonum að við verð-
um ánægðari eftir þann leik. Ég
veit ekki hvort að þetta sé pressan
eða hvað en við erum ekki í góðum
gír. Við erum að tapa of mörgum
boltum og ég veit vel að þetta er
ekki sama lið og við erum vön að
sjá,” viðurkenndi Fabio Capello
eftir leikinn.
Enska landsliðið fékk strax að
heyra það frá stuðningsmönnum
sínum í leikslok og það er rétt hægt
að ímynda sér fyrirsagnir ensku
blaðanna í dag. Þeir eru kannski
ekki í hópi með því franska því
leikmenn liðsins virðast vera að
reyna að spila en það gengur bara
ekkert upp hjá liðinu inni á vell-
inum og stjórnarleikmenn liðsins
eru að gera sig seka um mistök
sem sást sjaldan hjá þeim flestum
hvað þá hjá öllum í einu.
Englendingar hafa þó enn allt
í sínum höndum því með sigri á
Slóveníu í lokaleiknum þá tryggja
þeir sér sæti í 16 liða úrslitunum
en allt tal um Heimsmeistaratitil
hlýtur að vera orðið að fjarlægum
draumi fyrir lærisveinana hans
Fabio Capello.
ooj@frettabladid.is
Púað á enska landsliðið í leikslok
Englendingar náðu aðeins markalausu jafntefli á móti Alsír í öðrum leik sínum á HM í Suður-Afríku og
eru með eitt mark og engan sigur í fyrstu tveimur leikjunum. Þreytulegur og þunglamalegur leikur liðsins
er óskiljanlegur fyrir flesta stuðningsmenn og Englendingarnir í stúlkunni létu líka sína skoðun í ljós.
PIRRAÐIR ENGLENDINGAR Ensku landsliðsmennirnir Frank Lampard, Wayne Rooney,
David James og Shaun Wright-Phillips ganga af velli í gær undir bauli ensku stuðn-
ingsmannanna. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI ÍR-ingar tóku toppsæt-
ið af nágrönnum sínum úr efra-
Breiðholtinu eftir 2-1 sigur á
Leiknismönnum á ÍR-velli í topp-
slag 1. deildar karla í gær.
Leiknir var með tveggja stiga
forskot á ÍR fyrir leikinn en
Árni Freyr Guðnason kom ÍR í
1-0 eftir aðeins tveggja mínútna
leik og staðan var orðin 2-0 eftir
24 mínútur þegar aukaspyrna
Sindra Snæs Magnússonar utan
af kanti sigldi alla leið í markið.
Brynjar Benediktsson minnkaði
muninn fyrir Leikni á lokamín-
útu leiksins.
Skagamenn eru aðeins að
lifna við en þeir unnu annan
1-0 sigur sinn í röð þegar þeir
lögðu Njarðvíkinga að velli uppi
á Akranesi í gær. Það var Arnar
Már Guðjónsson sem skoraði sig-
urmarkið í leiknum. Guðmundur
Óli Steingrímsson tryggði KA-
mönnum 3-2 sigur á Fjölni eftir
að Grafarvogspiltar höfðu jafnað
leikinn tvisvar sinnum. - óój
Breiðholtsslagurinn í gær:
ÍR tók toppsæt-
ið af Leikni
BARIST UM BREIÐHOLTIÐ Frá leik ÍR og
Leiknis í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN