Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 94
66 19. júní 2010 LAUGARDAGUR
Athafnakonan Dóra Takefusa
opnar nýtt kaffihús í Kaup-
mannahöfn um miðjan júlí.
Framkvæmdir eru í fullum gangi
í flottu húsnæði á Norðurbrú og
hönnuðurinn Hrafnhildur Hólm-
geirsdóttir sér um að hanna stað-
inn.
„Aðalástæðan fyrir að ég réðst
í þetta verkefni var að ég hef ekki
beint fundið kaffihús sem hentar
mér og mínum, Kaffihúsið verð-
ur heimilislegt, þægilegt, barn-
vænt og með góðu kaffi,“ segir
Dóra sem er búin að koma sér
vel fyrir í kóngsins Kaupmanna-
höfn. Dóra á nú þegar barinn Jol-
ene sem hefur gengið mjög vel.
Kaffihúsið mun bera nafnið
LYST eða löngun á íslensku og
mun Ísland setja sinn svip á stað-
inn. Dóra hefur fengið leyfi til að
flytja inn kaffibaunir frá Te og
Kaffi og verður hún með kaffi-
matseðil frá þeim.
„Danir eru ekki með neitt sér-
staklega gott úrval af kaffiteg-
undum. Það er bara latte og capp-
uccino en ég ætla mér að hafa
fjölbreyttan og skemmtilegan
kaffimatseðil eins og Te og Kaffi
býður upp á. Ég hef fulla trú á að
íslenska kaffið slái í gegn hér,“
segir Dóra.
Dóra fékk Hrafnhildi með sér í
lið og þræða þær stöllur nú flóa-
markaði borgarinnar í leit að
húsgögnum og gömlum flottum
munum. Hrafnhildur hefur áður
hannað staðina Boston og Aust-
ur og segir Dóra að þær stefni á
að hafa engin ný húsgögn. „Ég
vil hafa staðinn með persónu-
leika og öðruvísi en önnur kaffi-
hús.“ Meðal annars verða borðin
úr gömlum gólffjölum og eldhús
staðarins er venjulegt heimilis-
eldhús en boðið verður upp á létt-
an matseðil. „Ég ætla að leggja
mikið upp úr að hafa staðinn að
mestu leyti lífrænan og endur-
unninn, matseðilinn og innrétt-
ingarnar.“
Á kaffihúsinu verður sérstakt
föndurherbergi fyrir börn en
hún var komin með leiða á því
að fara með fulla tösku af lita-
bókum í hvert sinn sem hún ætl-
aði að fara á kaffihús með dóttur
sína. „Þetta verður enginn leik-
skóli en börnin geta setið í sér-
stöku herbergi, drukkið sitt kakó
og föndrað á meðan foreldrarnir
slappa af og drekka kaffi.“
Dóru líkar vel við lífið í Kaup-
mannahöfn og segist ekkert vera
á leiðinni heim í bráð. „Ég stefni
þó á að koma einhvern tíma heim
en ekki í nánustu framtíð.“
alfrun@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT 2. umstang, 6. tveir eins, 8.
kraftur, 9. ískur, 11. þótt, 12. hnýta
þveng, 14. grátur, 16. tveir eins, 17.
kúgun, 18. drulla, 20. frá, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT 1. ólmur, 3. skóli, 4. hafna,
5. nögl, 7. dráttur, 10. hvoftur, 13.
skammst., 15. tikka, 16. hald, 19.
ullarflóki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ómak, 6. ff, 8. afl, 9. urg,
11. þó, 12. reima, 14. snökt, 16. tt, 17.
oki, 18. aur, 20. af, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. æfur, 3. ma, 4. afþakka,
5. kló, 7. frestun, 10. gin, 13. möo, 15.
tifa, 16. tak, 19. rú.
DÓRA TAKEFUSA
Stækkar veldi sitt í Kaupmannhöfn
og opnar nú nýtt kaffihús en fyrir
á hún barinn Jolene. Hrafnhildur
Hólmgeirsdóttir er annar helm-
ingur fatamerkisins AUSTUR og
hefur hannað staðina Boston og
Austur. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
DÓRA TAKEFUSA: HEF FULLA TRÚ Á ÞVÍ AÐ ÍSLENSKA KAFFIÐ SLÁI Í GEGN
Opnar íslenskt kaffihús í
Kaupmannahöfn í sumar
Stefán Sölvi Pétursson vann keppnina sterk-
asti maður Íslands sem haldin var 17. júní.
Hann er ekki óvanur því að vinna titla en
þetta er í annað sinn sem Stefán er sterkasti
maður Íslands ásamt því að vera þrefaldur
Vestfjarðavíkingur. „Ég er mjög ánægður
með titilinn og gott að erfiðið borgar sig á
endanum.“ Stefán er strax farinn út aftur
til að keppa í Hálandaleikunum í Skotlandi
en hann er staðráðinn í að koma Íslandi
aftur á kortið í þessum geira og leggur mik-
inn metnað í æfingarnar. „Það eru ellefu
ár síðan Íslendingur vann síðast í sterkasti
maður heims og okkar tími er því kominn.“
Stefán setur markmiðið hátt og er Jón
Páll hans fyrirmynd. „Markmiðið er að ná
að landa öllum stóru titlunum eins og Jón
Páll. Maður hefði örugglega ekki farið út í
þetta ef ég hefði ekki sem krakki séð Jón
Pál fara á kostum,“ segir Stefán sem byrj-
aði að æfa 17 ára og æfir alla daga. „Ég hef
alltaf verið mikið fyrir íþróttir en þótti of
stór og klunnalegur fyrir fótbolta og hand-
bolta. Svo fann ég mig í að lyfta stórum
þungum hlutum og ákvað að einbeita mér að
því.“ Stefán vinnur sem öryggisvörður hjá
Öryggismiðstöðinni og er í fjarnámi í frum-
greinadeild Háskóla Reykjavíkur. „Þetta
tekur mikinn tíma og ég nota allan minn
frítíma í að gera sem minnst,“ segir Stefán
sem verður á fullu í allt sumar að þeysast
heimshornanna á milli til að vekja hróður
Íslands í aflraunum.
- áp
Ætlar að koma Íslandi aftur á kortið
STEFÁN SÖLVI PÉTURSSON Vann keppnina sterkasti
maður Íslands á þjóðhátíðardaginn og stefnir langt.
FRÉTTABLAÐIÐ/SUNNAHLÍN
Jóhannes
Kjartansson
Starf:
Grafískur
hönnuður og
ljósmyndari í
hjáverkum.
Aldur: 27
ára, hættuleg-
ur aldur fyrir
tónlistarfólk.
Fjölskylda:
Tveir ætt-
leiddir kettir.
Skarphéðinn og Lísa í Undralandi.
Búseta: Grettisgatan. Hún er
útungunarstöð fyrir góð partí.
Stjörnumerki: Steingeit. Þrjóskur
en ekki þver.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Kristbjörg Kjeld.
2 Bonzalo Higuain.
3 Tólf.
„Það verður önnur sería. Það á
eftir að ganga frá og svona, en
það vilja allir aðra seríu og það
verður önnur sería,“ segir grín-
istinn Steindi Jr.
Síðasti þátturinn af Steind-
anum okkar var sýndur á Stöð 2
í gærkvöldi. Þættirnir hafa sleg-
ið í gegn á meðal unga fólksins
og það liggur því beinast við að
kanna hvort framhald verði á
samstarfi Steinda og Bents, en
þeir hafa framleitt þættina í sam-
einingu. Pálmi Guðmundsson,
sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, tekur
undir með Steinda og segir fullan
vilja fyrir að gera aðra seríu með
félögunum. „Við höfum þegar
óskað eftir annarri seríu,“ segir
hann. „Það eru komnar nokkrar
vikur síðan. Við höfum virt það
við þá að þeir vildu klára fyrstu
seríuna – aðeins að anda og svo
byrja að undirbúa næstu.“
Óvíst er hvenær næsta sería
hefst, en Steindi og Bent eru
þegar byrjaðir að sanka að sér
hugmyndum og þróa nýja karakt-
era. „Við ætlum að byrja að skrifa
á næstunni,“ segir Steindi. „Við
erum komnir með fullt af hug-
myndum og komnir með drög að
þessu öllu saman. Við erum að
finna nýja karaktera – það held-
ur enginn áfram. Þessi sería er
bara þessi sería. Það verða nýir
karakterar og allt nýtt.“ - afb
Steindi leggur drög að nýrri seríu
SNÝR AFTUR
Pálmi Guðmunds-
son, sjónvarpsstjóri
Stöðvar 2, er ánægð-
ur með
viðtök-
urnar.
Við erum komnir
með fullt af hug-
myndum og komnir með
drög að þessu öllu saman.
Við erum að finna nýja kar-
aktera - það heldur enginn
áfram.”
STEINDI JR.
GRÍNISTI
HAFNARFJARÐARKIRKJA.IS
HAMINGJUNÁMSKEIÐ
Á JÓNSMESSUNÓTT.
Á Jónsmessunótt, 24. júní, frá 23.00
- 01.00, verður haldið námskeið um
hamingjuna í Hafnarfjarðarkirkju.
Farið verður í gegnum 10 leiðir til að
efl a lífshamingjuna undir handleiðslu
sr.þórhalls Heimissonar.
Námskeiðinu lýkur með
djúpslökun og íhugun.
Skráning og nánari upplýsingar
á thorhallur33@gmail.com
Götuspilarinn Jójó hefur
nóg að gera þessa dag-
ana, enda hefur veðrið
verið gott og mikið líf í
miðbænum. Hann
fékk óvænta
heimsókn
aðfaranótt 17.
júní þegar
handbolta-
kappinn Logi Geirsson stoppaði
hjá honum. Logi var að fagna
útskrift sinni, en eins og Fréttablað-
ið greindi frá í vikunni hefur hann
lokið námi í einkaþjálfun. Logi lét
Jójó ekki sjá einan um sönginn og
tók hraustlega undir með honum
í nokkrun tíma – viðstöddum til
yndisauka.
Tónlistarmaðurinn vin-
sæli Björn Jörundur
Friðbjörnsson hefur
ákveðið að stunda
sjóinn í sumar. Björn
Jörundur hyggst gera
út bát frá Siglufirði en
hann er mikill
áhugamaður
um siglingar
og hefur
meðal annars
stundað íþróttina síðan hann var
níu ára gamall. Björn á einnig for-
láta keppnisskútu, sem ber nafnið
Aquarius, ásamt nokkrum félögum
sínum, en skútan er þrjátíu og
þriggja feta löng.
Spennan í tippkeppni fagmanna,
eða Venediktsson, sem Fréttablaðið
hefur sagt reglulega frá undanfarið
er í algleymingi. Framarinn Þorbjörn
Atli Sveinsson leiðir keppnina sem
stendur en forvitnilegt er að rýna í
önnur sæti. Logi Bergmann er í 10.
til 12. og nýtur augljóslega góðs af
því að vinna við að fylgjast með
boltanum, en það gengur ekki eins
vel hjá borgarfulltrúanum
Gísla Marteini Bald-
urssyni sem er á meðal
síðustu manna. Mikið er
þó eftir að keppninni og
spennandi verður
að sjá hvaða fag-
maður stendur
uppi sem sigur-
vegari. - afb/sm
FRÉTTIR AF FÓLKI