Fréttablaðið - 12.08.2010, Qupperneq 4
4 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans
við Hólmaslóð hefst klukkan 15 á
laugardaginn, ekki klukkan 14.
Sjóvá hefur gefið lögreglu sex venju-
legar myndavélar, ekki eftirlitsmynda-
vélar, líkt og sagt var í blaðinu í gær.
LEIÐRÉTT
RÚANDA, AP Paul Kagame, forseti
Rúanda, var endurkjörinn með 93
prósentum atkvæða í nýafstöðn-
um kosningum.
Kjörstjórn
segir að 97 pró-
sent hafa tekið
þátt í kosning-
unum sem er
nær óþekkt
þátttaka.
Undir stjórn
Kagame hefur
hagvöxtur
verið mikill en hann hefur verið
gagnrýndur fyrir að sauma að
stjórnarandstöðuhópum.
Fréttamaður AP ræddi á mánu-
dag við þrjá kjósendur sem sögðu
að þeim og fleirum hefði verið
skipað að kjósa snemma morguns
áður en kjörstaðir opnuðu. - mþl
Grunur um kosningasvindl:
Forseti Rúanda
endurkjörinn
PAUL KAGAME
SERBÍA, AP Engin merki finnast
um að fjöldagröf sé í Rudnica í
Serbíu. Grunur hafði leikið á því
að þar hefðu meira en 250 Kós-
óvó-Albanar verið jarðsettir eftir
stríðið árið 1999.
Saksóknarar telja að fólkið hafi
verið drepið og grafið í Kósóvó
en síðan fært til Serbíu til að fela-
líkin. Samkvæmt lýsingum vitna
áttu líkin að hafa verið grafin
undir byggingu og bílastæði.
Á svæðinu hafa ekki fundist
líkamsleifar, en rannsókn heldur
áfram. - þeb
Rannsókn í Serbíu:
Engin merki
um fjöldagröf
DÝRALÍF Stór hópur háhyrninga,
um tuttugu dýr, sást við Hauga-
nes í Eyjafirði í fyrradag. Mjög
sjaldgæft mun vera að svo stór
hópur sjáist jafn innarlega í firð-
inum, að því er segir á nordur-
landid.is.
Háhyrningarnir eru taldir vera
í ætisleit en mikil áta er í Eyja-
firði.
Samkvæmt nordurlandid.is
hefur verið mikið af hrefnu í
firðinum í sumar og aðstæður til
hvalaskoðunar því góðar í Eyja-
firði þetta árið. - kh
Fjölbreytt dýralíf fyrir norðan:
20 háhyrningar
í Eyjafirðinum
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík sendi kanadískri fjölskyldu
GPS-tæki sem stolið var frá
henni í sumar. Brotist var inn í
bíl fjölskyldunnar í Reykjavík og
úr honum var stolið ýmsum bún-
aði. Flest komst þó aftur í hend-
ur fjölskyldunnar áður en hún
hélt utan, að undanskildu GPS-
tækinu. Lögreglan komst svo yfir
tækið eftir húsleit. Það var sent
til Kanada eftir að starfsmaður í
munavörslu bar kennsl á það. - sv
Lögreglan endurheimtir þýfi:
Minnugur
munavörður
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
21°
25°
21°
22°
21°
22°
22°
25°
21°
31°
29°
34°
21°
23°
17°
23°
Á MORGUN
3-8 m/s.
LAUGARDAGUR
Hægur vindur.
19
16
13
16
15
14
10
15
15
14
14
4
6
8
6
2
4
4
5
4
3
6
17
14
14 16
18
18
18
16
15
15
ÞURRT OG BJART
AUSTANLANDS
Það verður held-
ur vætusamt á
vestanverðu land-
inu næstu daga
en austanlands
mun líklega verða
þurrt að mestu og
bjart. Úrkomulítið
á laugardag en á
sunnudag eru horf-
ur á talsverðri vætu
vestan til á ný.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
RÚSSLAND Met var slegið í flugi
tveggja óauðkenndra TU-95
sprengjuflugvéla Rússlandshers
sem flugu í tvígang um íslenska
loftrýmiseftirlitssvæðið laust
fyrir síðustu mánaðamót.
Fram kemur í frétt rússnesku
fréttastofunnar RIA Novosti að
vélarnar hafi verið á lofti í 40
klukkustundir og að flogið hafi
verið yfir Norður-Íshafið, Atl-
antshaf og Kyrrahaf.
Varnarmálastofnun greindi í
fyrradag frá flugi vélanna hér.
Eftirlitsflug Rússa var hafið á
ný í forsetatíð Vladimírs Pútín, í
ágúst 2007. - óká
Birnir slógu met í Íslandsflugi:
Vélarnar voru
á lofti í 40 tíma
ÞOTUR Á FLUGI Mynd frá breska varnar-
málaráðuneytinu af RAF Typhoon herþotu
(neðri vélin) sem fylgir „birni“, rússneskri
H-sprengjuflugvél. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Slitastjórn Glitnis í Lúx-
emborg hefur stofnað dótturfélag-
ið Reviva Capital, sem mun sjá um
rekstur eignasafns bankans úti.
Eignir Glitnis í Lúxemborg eru að
mestu lán til evrópskra fasteignafé-
laga í Þýskalandi, á Norðurlöndum
og í Bretlandi. Félagið sér jafnframt
um innheimtu á stórum hluta eigna
þrotabús Landsbankans.
Skilanefnd Glitnis á níutíu pró-
senta hlut í Reviva Capital en stjórn-
endur félagsins afganginn. Þar á
meðal eru nokkrir fyrrverandi lykil-
stjórnendur Glitnis í Lúxemborg,
svo sem Ari Daníelsson, fyrrverandi
forstjóri Glitnis ytra, sem jafnframt
er framkvæmdastjóri Reviva Capi-
tal. Átta aðrir Íslendingar starfa hjá
félaginu, þar af nokkrir fyrrverandi
starfsmenn Landsbankans.
„Þetta eru ekki sömu aðilarnir
og veittu lánin. Þeir eru allir farn-
ir,“ segir Árni Tómasson, formað-
ur skilanefndar Glitnis og bætir
við að þeir fyrrverandi lykilstjórn-
endur Glitnis sem starfi hjá Reviva
Capital hafi komið til Lúxemborgar
á fyrri hluta árs 2008.
Virði eigna í stýringu hjá Reviva
Capital hljóðar upp á 1,6 milljarða
evra, jafnvirði 250 milljarða króna.
Tíu prósenta hlutur stjórnenda er
verðlaus í dag, að sögn Árna. Hann
getur aðeins orðið einhvers virði
takist stjórnendum að afla annarra
verkefna. - jab
Fyrrverandi stjórnendur Glitnis í Lúxemborg stýra eignum fyrir skilanefnd:
Ekki sagðir þátttakendur í fallinu
ÁRNI TÓMASSON ARI DANÍELSSON
EFNAHAGSMÁL Lög frá síðasta þingi
sem leyfa skuldurum með tvær
eignir að losna við aðra eignina og
færa umframskuldir yfir á hina
voru samin með hagsmuni bank-
anna að leiðarljósi, að mati Lilju
Mósesdóttur, þingmanns VG, en
hún hefur talað fyrir lyklafrum-
varpi svokölluðu, þar sem skuld-
urum er leyft að skila eign sinni
með skuldunum.
Samþykktu lögin leyfa hins
vegar að skuldir af einni eign séu
færðar yfir á aðra, sú fyrrnefnda
fer í hendur lánardrottna.
Umboðsmaður skuldara, Ásta
Sigrún Helgadóttir, segir að hún
muni koma með ábendingar ef
rétt reynist að nýju lögin dugi
ekki til.
„Auðvitað hefði verið
betra, hefði það verið hægt,
að ganga lengra, en þetta er
fyrsta löggjöfin og það hefur
ekki reynt á þetta ennþá. Það
er auðvitað hugsanlegt að
endurskoða þetta þegar þar
að kemur,“ segir hún. Frum-
varpið hafi tekið breytingum í
meðförum þingsins: „Þetta var
bara pólitísk ákvörðun,“ segir
Ásta Sigrún.
Lögin umræddu
eru hugsuð til
hagsbóta fyrir
þá sem voru
búnir að festa
kaup á íbúð
þegar húsnæð-
ismarkaður-
inn kólnaði, en
höfðu ekki selt
gömlu íbúðina
sína. En Lilja minnir á að skuldar-
inn fær engar afskriftir. Bankinn
geti hins vegar fengið ódýra íbúð
og selt hana aftur síðar meir með
hagnaði.
„Það er bara bankinn sem getur
hagnast á þessu. Í upprunalega
lyklafrumvarpinu var það skuldar-
inn sem gat hagnast,“ segir hún.
Lilja segir að Alþingi hafi því
miður engin ráð til að bæta rétt-
arstöðu skuldara aftur í tímann.
Annað gildi þegar bæta þurfi
stöðu fjármálastofn-ana, eða
skerða kjör launþega: „Við settum
til dæmis lög um að laun forstjóra
í ríkisgeiranum yrðu lægri en
laun forsætisráðherra. Þá þurfti
að að taka upp samninga við ríkis-
starfsmenn. Besta dæmið er samt
fræg bráðabirgðalög Ólafs Ragn-
ars og Steingríms J. Sigfússonar
frá tíunda áratugnum þegar gerð-
ir voru kjarasamningar sem áttu
að gera laun háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna sambærileg við
laun í einkageiranum. Þá voru sett
bráðabirgðalög sem tóku þetta úr
gildi og virkuðu þannig
aftur í tímann,“ segir
Lilja.
klemens@
frettabladid.is
Mátti ganga lengra í
þágu skuldaranna
Umboðsmaður skuldara tekur undir orð þingmanns VG um að lengra hefði
mátt ganga í lögum um tvær eignir. Þingmaður harmar máttleysi Alþingis þeg-
ar bæta skal stöðu skuldara, aftur í tímann. Ólíkt auðveldara sé að lækka laun.
LILJA MÓSESDÓTTIR ÁSTA SIGRÚN HELGADÓTTIR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 11.08.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
196,7509
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,19 118,75
185,29 186,19
153,77 154,63
20,637 20,757
19,254 19,368
16,222 16,318
1,3869 1,3951
179,92 181
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Smellugas
Ódýrt að skipta yfir í
Smellugas Olís
Þú færð nýjan þrýstijafnara þér
að kostnaðarlausu og við tökum
gamla kútinn upp í.
smellugas.is
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
S
ÍA
Þú skilar inn tómum 9
kg stálkút með gamla
kerfinu, kaupir 11 kg
stálkút með Smellugasi
Olís og færð 25% afslátt
af innihaldi.
4.813 kr.
með 25% afslætti
af innihaldi
11 kg
5 kg
10 kg