Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 8
 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR GRÆNLAND, AP Risastór íshella, sem brotnaði af Grænlandsjökli í vik- unni, gæti valdið verulegu tjóni ef hún nær að berast suður á bóg- inn. Þegar fram líða stundir getur hún eða stór brot úr henni trufl- að skipaferðir suður af Grænlandi eða jafnvel rekist á olíuborpalla út af austurströnd Kanada. „Hún er svo stór að það er ekki hægt að hindra að hana reki, það er ekki hægt að stöðva hana,“ segir Jon-Ove Methlie Hagen, jökla- fræðingur við háskólann í Osló. Nú er þess beðið hvort íshellan berst út í Nares-sundið, sem liggur á milli norðvesturstrandar Græn- lands og Ellesmere-eyju, sem til- heyrir Kanada, áður en vetrar- frostin skella á í næsta mánuði. Þaðan bærist hún áfram út í Baff- inflóa og suður á bóginn út á Atl- antshafið austur af Nýfundna- landi. „Það er þá sem þetta fer að verða hættulegt,“ segir Mark Drink- water hjá evrópsku Geimferða- stofnuninni. Á leiðinni getur hellan rekist á eyjar eða aðra ísjaka, þannig að brotni úr henni. Brotin geta samt verið mjög stór og valdið miklu tjóni. Talið er að eitt til tvö ár geti liðið þangað til hellan eða stór brot úr henni verða komin á fjölfarnar siglingaslóðir. Íshellan, sem er um 250 til 260 ferkílómetrar að stærð, eða álíka og þrefalt Þingvallavatn eða nán- ast allt landsvæði Reykjavíkur- borgar, brotnaði frá Patermann- jökli við Nares-sund 5. ágúst síðastliðinn. Fullvíst þykir að hlýnun jarðar eigi þar hlut að máli, enda hefur meðalhiti hækkað jafnt og þétt á norðurslóðum síðustu áratugina. Þótt stórir ísjakar brotni reglu- lega af Grænlandsjökli oft á ári hefur þetta stórt flikki ekki losn- að síðan 1962. - gb BRETLAND, AP Skeinuhætt baktería hefur fundist í fólki á sjúkarhúsum í Bretlandi. Bakterían hefur mikið þol gagnvart sýklalyfjum og gæti brátt breiðst út um heim. Bakterían hefur fundist í 37 manns á Bretlandi. Allir þessir ein- staklingar eiga það sameiginlegt að hafa gengist undir skurðaðgerð á Indlandi eða í Pakistan, margir vegna lýtalækninga, en snúið síðan aftur til Bretlands. Svo virðist sem baktería þessi sé nú þegar mjög útbreidd á Indlandi, þar sem heilbrigðiskerfið ræður illa við að greina hana og hefur varla sýklalyf sem duga gegn henni. Í nýjasta hefti breska læknatíma- ritsins Lancet Infectious Diseases skýra vísindamenn frá því að fund- ist hafi nýtt gen, sem nefnist NDM- 1. Þetta gen breytir bakteríum þannig að þær þola nærri öll sýkla- lyf. Þetta gen hefur þegar fundist í Ástralíu, Bandaríkjunum, Hollandi, Kanada og Svíþjóð, auk Bretlands. Vegna tíðra ferða Bandaríkjamanna og Evrópubúa til Indlands og Pak- istans má búast við því að bakterí- an illskeitta geti breiðst hratt út um heiminn. - gb Ný ofurbaktería, ættuð frá Indlandi og Pakistan, hefur fundist í Bretlandi: Gæti breiðst mjög hratt út SÝKLALYF GAGNSLÍTIL Sem fyrr reynist handþvottur mikilvægur til að koma í veg fyrir smit. NORDICPHOTOS/AFP af öllum veiðivörum alla þessa viku. Allt í veiðina í veiðideild okkar í Glæsibæ. HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS Eftir einstaklega hlýtt og sólríkt sumar eru krækiber og bláber bústin af næringu. Útlit er fyrir afar góða berjasprettu í ár. Grænjaxlarnir eru óðum að víkja og bláum og bústnum berja- kroppum fjölgar með hverjum degi. Farðu í berjamó með fjölskyldunni og nýttu þessa gjöf náttúrunnar. Fáðu þér BKI kaffi með pönnukökum, bláberjum og rjóma. Tíðarfarið hefur verið gott fyrir berjasprettuna. Hafðu góða skapið með í berjamó, uppáhalds teppið þitt og nóg af nýlöguðu BKI kaffi á brúsa. Hvert sem þú ferð í berjamó þá gefst kjörið tækifæri til að fá sér rjúkandi bolla af góðu BKI kaffi. Angan af kaffi kemur bragðlauk- unum af stað og ilmurinn segir til um ríkt bragðið af BKI kaffi. Helltu upp á gott BKI kaffi. BKI Classic Eftir sólríkt sumar er krökkt af berjum um allt land! Fagnaðu berjatímabilinu með BKI kaffi Nú er góður tími til berjatínslu Kauptu BKI fyrir góða uppskeru í berjamó BKI Extra Snöggristað við háan hita. Þannig næst fram ríkara kaffibragð við fyrsta sopa en léttur og mjúkur keimur fylgir á eftir. Sérvaldar baunir frá þekktustu kaffisvæðum heimsins tryggja hið mjúka bragð, lokkandi ilminn og fersklegt eftirbragðið. Skipaferðir og olíuborpallar hugsanlega í hættu vegna íshellu frá Grænlandi: Stefnir hægt suður á bóginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.