Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 26
26 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og útför ástkærrar eigin-
konu, móður, ömmu, langömmu og
systur,
Vilborgar Pétursdóttur,
Vippu,
Skjólbraut 9a, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til Karitas hjúkrunarþjónustu, starfs-
fólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi og allra
þeirra er önnuðust hana af alúð í veikindum hennar.
Sigurður K. Haraldsson
Pétur Steinn Sigurðsson Jóhanna Eysteinsdóttir
Haraldur K. Sigurðsson Jóhanna L. Aðalsteinsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
Elskulegur eiginmaður, faðir,
afi og langafi,
Benedikt Gröndal
fyrrv. forsætisráðherra,
sem lést þriðjudaginn 20. júlí sl., verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
F.h. aðstandenda,
Heidi Jaeger Gröndal
Jón Gröndal Dorothea Emilsdóttir
Einar Gröndal Guðrún Guðmundsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Guðmundsson
Suðurgötu 34, Siglufirði,
lést á heimili sínu mánudaginn 9. ágúst. Útförin fer
fram frá Siglufjarðarkirkju fimmtudaginn 19. ágúst
kl. 14.00.
Sóley Anna Þorkelsdóttir
Birgir Gunnarsson Þorgerður Sævarsdóttir
Margrét Gunnardóttir Gunnar Árnason
Sóley Anna Pálsdóttir Ólafur Björnsson
Sævar Birgisson
Gunnar Birgisson
Birgitta Birgisdóttir
Sylvía Rán Ólafsdóttir
Þökkum innilega öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vin-
áttu við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Svövu G. Sigmundsdóttur.
Jóhann M. Kristjánsson Unnur Arnardóttir
Margrét Kristjánsdóttir
Borghildur J. Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Sérstakar þakkir til Dvalar- og hjúkrunarheimilisins
Grund.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
Árelía Þórdís
Andrésdóttir,
Smyrlahrauni 45, Hafnarfirði,
lést að morgni sunnudags 8. ágúst.
Leifur Rósinbergsson
börn, tengdabörn og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Arthúr Pétursson
bóndi, Syðri Vík Vopnafirði,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 5. ágúst,
verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju
laugardaginn 14. ágúst kl. 14.00.
Kristín Brynjólfsdóttir
Ásdís Arthúrsdóttir
Svanur Arthúrsson Monserat Arlette
Brynhildur Arthúrsdóttir Guðbrandur Stígur Ágústsson
Margrét Arthúrsdóttir Heiðar Kristbergsson
og barnabörn.
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi og
bróðir,
Gunnar Finnsson
rafvirki, Tryggvagötu 4,
lést mánudaginn 9. ágúst á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi. Útförin verður auglýst síðar.
Eva Hlín Gunnarsdóttir Jökull Pálmar Jónsson
Hákon Darri Jökulsson
Marta Gunnarsdóttir Sigvaldi Lárus Guðmundsson
Elísabet Líf Sigvaldadóttir
Hildur Finnsdóttir Gunnar Gunnarsson
Eiríkur Finnsson Hafdís Þorvaldsdóttir
Yndislegi maðurinn minn, stjúpfaðir,
sonur, bróðir og mágur,
Gunnar Magnússon
Goðheimum 4, Reykjavík,
lést sunnudaginn 8. ágúst.
Ásta Agnarsdóttir
Rúnar Máni Gunnarsson Eydís Magnúsdóttir og synir
Davíð Snævar Gunnarsson Ragnhild Svellingen og synir
Tinna Dögg Gunnarsdóttir og börn
Ingibjörg S. Gunnarsdóttir
María M. Magnúsdóttir Bergur Stefánsson og synir
Móðir mín,
Ingibjörg Ólafsdóttir,
er látin. Jarðarförin hefur farið fram.
Kristján Yngvi Karlsson
og aðstandendur.
„Það verður enginn samur eftir að hafa
heimsótt Sankti Pétursborg og séð með
eigin augum alla þá list sem þar hefur
safnast saman,“ segir Hrafnhildur Blom-
sterberg, stjórnandi Flensborgarkórsins,
sem í ágústbyrjun vann fyrstu verðlaun í
flokki blandaðra kóra í alþjóðlegri kóra-
keppni í Rússlandi.
„Söngfólkið er yfir sig sælt með sigur
í sinni fyrstu keppnisferð. Ég vissi satt
að segja ekki hverju ég ætti von á því ég
hafði aldrei áður farið til Rússlands með
kór. Viðmiðin eru ólík hverju sinni en nú
var leitað eftir hljómi og túlkun tónlist-
arinnar, eigin stíl, framkomu á sviði og
breidd efnisskrárinnar sem voru stíft
settar skorður. Eftir að sigur var í höfn
kom í ljós að þyngst vó einstakur hljómur
kórsins, textameðferð hans, hreinleiki,
túlkun og víðtækt efnisprógramm,“ segir
Hrafnhildur himinglöð.
Flensborgarkórinn er kór útskrifaðra
nemenda frá Flensborgarskólanum. „Ég
stofnaði skólakór Flensborgar fyrir ell-
efu árum og var fljótlega hvött til að
stofna framhaldskór, en af því varð ekki
fyrr en haustið 2008. Frá upphafi hafa
svo verið um tíu prósent nemenda í skóla-
kórnum og nú eru í honum 80 söngvarar,“
segir Hrafnhildur, en í framhaldskórn-
um eru þrjátíu söngvarar á aldrinum 20
til 30 ára.
Alls var 37 kórum boðið til keppni
í The VI International Competition of
Choral Arts - The Singing World - að
þessu sinni. Keppnin þykir afar sterk
á heimsvísu og er dæmd af sjö manna
alþjóðlegri dómnefnd. Auk þess að keppa
í kórsöng hélt Flensborgarkórinn tvenna
tónleika fyrir fullu húsi.
„Í Cathedral of Assuption of Virgin
Mary var hljómburðurinn svo fullkom-
lega fagur að ég upplifði þá yndislegustu
tónleika sem ég hef haldið um dagana.
Tónlistarunnendur Pétursborgar sækja
tónleika kórakeppninnar mjög þétt og
okkar stærsta upplifun var að syngja
fyrir fullu húsi þar sem var hrópað,
klappað og staðið upp, en þó á svo agað-
an hátt,“ segir Hrafnhildur.
„Það er virkilega eftirsóknarvert
að syngja í kór og ungu fólki af báðum
kynjum þykir sjálfsagt að sækja um þótt
miklu færri en vilja komist að. Kórstarfi
fylgir gífurlegur félagsskapur og margir
verða vinir fyrir lífstíð. Að ferðast með
slíkum vinahópi er dásamlegt og punkt-
urinn yfir i-ið að fara jafn frækna fyrstu
ferð.“
thordis@frettabladid.is
FLENSBORGARKÓRINN: VANN FYRSTU VERÐLAUN Í ALÞJÓÐLEGRI KÓRAKEPPNI
Uppspretta ævilangrar vináttu
Um þrettán hundruð þátttak-
endur á kristilegu stúdentamóti
í Laugardalshöll veiktust af
matareitrun þennan ágústdag
fyrir 35 árum, en aldrei hafa
fleiri fengið matareitrun í einu
hér á landi.
Kjúklingakássa með baunum
var talin líklegasta orsökin, en
alls voru þrjátíu fluttir á sjúkrahús eftir kvöldmatinn í Höllinni.
Sumir veiktust nokkuð hastarlega, en eitrunin gekk tiltölulega
fljótt yfir og ekkert tilfelli talið mjög alvarlegt. Fyrst eftir að veik-
indin gerðu vart við sig voru fjórir sjúkrabílar sendir út af örkinni
og skiljanlega mikið að gera við að að flytja sjúka. Almannavarnir
voru tilbúnar ef með þyrfti og haft var eftir lækni á Landakoti að
gott hefði verið að fá æfinguna.
ÞETTA GERÐIST: 12. ÁGÚST 1975
1300 fá matareitrun
LEIKKONAN DOMINIQUE SWAIN
ER ÞRÍTUG
„Að mínu áliti eru dýr sköpuð
til átu. Ég tek því hlutverk mitt í
fæðukeðjunni alvarlega og háma
í mig kjöt; því hrárra því betra.
Ég er aðeins þeirrar skoðunar
að dýrum skuli aldrei slátrað til
þess eins að nýta feld þeirra.“
Dominique Swain lék Lólítu í sam-
nefndri kvikmynd 1997. Hún er tals-
maður dýraverndunarsamtakanna
Peta.
M
YN
D
/B
ER
G
LI
N
D
IN
G
IB
ER
TS
D
Ó
TT
IR
SIGURGLAÐIR
SÖNGFUGLAR
Hrafnhildur
Blomsterberg
stjórnandi með
glaðbeittum
sigurvegurum.