Fréttablaðið - 12.08.2010, Síða 29
FIMMTUDAGUR 12. ágúst 2010 3
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Mátunarklefar eru oftar en ekki nauðsynleg-ur viðkomustaður áður en ákvörðun er
tekin um fatakaup. Klefarnir eru
hins vegar eins margir og þeir
eru misjafnir, því miður ansi oft
í aumu ástandi. Hver man ekki
eftir að hafa séð mátunarklefa
með rykhnoðrum í öllum horn-
um og rifnum tjöldum, svo ekki
sé minnst á enn verri hluti sem
finnast í klefunum. Jafnvel í fínni
verslunum eða stóru magsínunum
eins og le Bon Marché eða Print-
emps í París geta mátunarklef-
ar verið langt frá því að stand-
ast lágmarkskröfur um hreinlæti
og útlit þó þeir hafi einmitt verið
fundnir upp í stóru magasínun-
um snemma á 20. öld. Mátunar-
klefar eru mælikvarði á hvort
viðkomandi fyrirtæki stendur
sig eða ekki í að taka á móti við-
skiptavininum, þar sem snert er
á hjarta verslunarinnar en um
leið á eins viðkvæmum hlutum
og að afklæða sig og máta ný föt.
Huggulegheit og rúmt pláss á
þessu viðkæma augnabliki eru því
eitthvað sem fjölmargar misjafn-
lega fínar verslanir hafa engan
metnað lagt í.
Ástæðan fyrir þessum litla
metnaði gagnvart mátunarklefum
er oftast einföld, það er að hagn-
aður er oftast reiknaður út eftir
innkomu á fermetra og mátunar-
klefar ekki taldir með í útreikn-
ingi hans því þeir skila engu.
Auðvitað algjör misskilningur því
ákvarðanir eru einmitt teknar í
mátunarklefunum. Speglar eru
gjarnan fyrir utan klefana þannig
að viðskiptavinurinn neyðist til að
fara út til að sjá hvort flíkin passi.
En það er þó ekki aðeins til þess
gert að neyða viðskiptavininn til
þess að hlusta á lygasögur söluf-
óksins um hvað flíkin passi vel og
geri mikið fyrir viðkomandi þó
það sé sjálfsagt einnig markmið-
ið. Ef samband skapast milli sölu-
manneskjunnar og kaupandans er
stundum komið í veg fyrir mistök
og jafnvel stór tískuslys, allt eftir
því hversu sölumaðurinn er heið-
arlegur og hvort hann er tilbúinn
til að segja sannleikann. Þannig
er hægt að bjóða rétta stærð eða
allt aðra flík ef hún passar lík-
amsgerð viðkomandi alls ekki.
En það er enn von í þessum
málum. Sífellt meira er verslað á
Netinu þar sem auðvitað er ekk-
ert hægt að máta nema þá með
því að skapa sér tvífara á heima-
síðu seljandans með brjóstmáli,
hæð, þyngd og fleiru sem hefur
svo það hlutverk að máta. Vanda-
málið er þó að þessi ímyndaða
mátun er mjög ónákvæm. Metn-
aðarfullar verslanir og fínu tísku-
húsin leggja nú meira en áður í
mátunarklefana og reyna jafnvel
nýjungar. Hjá hönnuðinum Agnès
B. er í sumum verslunum mátað í
hópklefa sem er innréttaður eins
og búningsherbergi. Þannig er
viðskiptavinum boðið að kynn-
ast og gefa hver öðrum álit sitt
meðan á mátun stendur. Ekki þó
gott fyrir feimna þetta fyrir-
komulag. bergb75@free.fr
Í sama klefa
Á frumsýningu þáttanna klæddist
Parker brúndröppuðum jakka hönn-
uðum af Donnu Karan og stuttum
gráum kjól. Hún valdi flatbotna, ein-
falda gyllta sandala við.
Getsgjafinn sjálfur, Donna Karan,
valdi einnig gráan kjól og flatbotna
skó við sama tilefni. Hún bar einnig
áberandi hálsmen. Karan hafði góða
ástæðu til að opna heimili sitt fyrir
þekktum stjörnum á borð við Parker,
eiginmann hennar Matthew Brod-
erick, Mörthu Stewart og leikurum
þáttanna, en þeir fjalla um móður í
úthverfi sem greinist með krabba-
mein. Karan missti bæði eiginmann
sinn og góðan vin úr krabbameini.
Laura Linney leikur eitt aðalhlutverk-
ið í The Big C og var áberandi á frum-
sýningunni í rauðum Valentino-kjól.
Hún gat þó ekki horft á sjálfa frum-
sýninguna. Haft var eftir henni að hún
ætti erfitt með að horfa á sig. - mmf
Gráir kjólar vinsælir
SARAH JESSICA PARKER MÆTTI Á
FRUMSÝNINGU ÞÁTTANNA THE BIG
C Á HEIMILI HÖNNUÐARINS DONNU
KARAN UM HELGINA.
Sarah Jessica Parker og Donna Karan
völdu báðar gráa kjóla á frumsýningu
þáttanna The Big C. NORDICPHOTOS/AFP
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Viltu ná kjörþyngd og komast í form?
TT námskeiðin okkar sívinsælu, frá toppi til táar, miðast við að veita konum leiðsögn um lífshætti
sem skila árangri. Þau byggjast á áralangri reynslu og fela í sér leiðbeiningar um mataræði,
líkamsbeitingu, fundi, vigtun og mælingar.
TT námskeiðin standa yfir í sex vikur. Þrjá tíma í viku er stunduð markviss líkamsrækt sem eflir þol
og styrk og tekur mið af einstaklingsbundinni getu. Vigtað er í hverjum tíma og mælingar gerðar
þrisvar á tímabilinu. Fundur er haldinn einu sinni í viku.
Við veitum persónulega þjónustu í notalegu umhverfi þar sem algjör trúnaður ríkir.
telpurS onuK r
Velkomin í okkar hóp!
TT tímar í boði:
6:15 A mánu-, miðviku- og föstudagar
7:20 C mánu-, miðviku- og föstudagar
10:15 D mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
12:05 F mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
14:20 G mánu-, miðviku- og föstudagar
16:40 H mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
17:40 I mánu- og þriðjud, fimmtud 18:25 Barnapössun
18:40 J mánud, - miðvikud 19:25 og lau 8:30
18:25 TT3 Mánu- og miðvikud - (16-25 ára)
NÁMSKEIÐUM
FYLGIR
FRJÁLS MÆTING
Í TÆKJASAL
Staðurinn - Ræktin
Innritun í fullum gangi!
Sími 581 3730
Fundur fyrir alla flokka sunnudaginn 22. ágúst kl. 16:00 og 17:00
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
ÚTSÖLULOK
AÐEINS 4 VERÐ
• 1000
• 2000
• 3000
• 5000
Nýjar vöru
koma á
föstudag
Lín Design - gamla sjónvarpshúsið - Laugavegi 176 - Sími 533 2220 - www.lindesign.is
Útsalan
heldur
áfram
Borðdúkar með
30-50% afslætti
Skoðaðu úrvalið í vefverslun
www.lindesign.is