Fréttablaðið - 12.08.2010, Síða 34

Fréttablaðið - 12.08.2010, Síða 34
 12. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● tölvur Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín HRingurinn er tölvuleikjamót sem haldið er árlega af Tvíund, nem- endafélagi tölvunarfræðinema við Háskólann í Reykjavík og fer fram nú 13. til 15. ágúst í nýju hús- næði skólans í Nauthólsvík. Mótið er opið almenningi og er fjár- öflun fyrir rekstur nemendafé- lagsins. Það verður í gangi allan sólarhringinn en keppnirnar eru að degi til. Mótið er riðlakeppni þar sem keppt verður í þremur tölvu- leikjum sem allir eru fyrstu per- sónu skotleikir. Þeir eru Counter- Strike 1.6, Counter-Strike: Source og Call of Duty 4. Þeir sem vilja spila aðra leiki eða hafa það ró- legra geta skráð sig sem einstakl- ingar og verið óbundnir af móts- tilhögun. Í ár stefnir í að þeir sem taka þátt í riðlakeppninni verði 110 talsins. Enn er mögulegt að fleiri einstaklingar komi inn þar sem skráning er opin fram á föstudag. Tuttugu og fimm lið eru skráð til leiks þegar þessi frétt er skrifuð, síðdegis á miðvikudegi. Nánari upplýsingar eru á http:// hringurinn.net. - gun Tölvuleikjamót í HR Betra er að hafa einbeitinguna í lagi í leikjunum. NORDICPHOTOS/GETTY „Facebook leyfir ekki gerviað- gang fyrir gæludýr vegna þess að aðgangur þar sem fólk villir á sér heimildir getur skaðað heil- indi samfélagsins,“ sagði Winn- ie Ko, talsmaður Facebook, við fréttastofu CNN. Mikið hefur verið um að fólk stofni gerviað- gang fyrir gæludýr sín á samskiptavefn- um. „Fólk á Facebook langar til að eiga sam- skipti við alvöru vini sína og fólk sem það þekkir í heiminum.“ Joseph Smith, sem stofnaði blogg- ið á Facebook, sagði að til væru marg- ar síður á Netinu þar sem fólk gæti þóst vera eitt- hvað annað en það væri, jafnvel gæludýr. Haft var eftir honum að gæludýraeigendur ættu að velta þeim möguleika fyrir sér. Kanínan Nestle á síðu á Face- book. Jessica Frey eigandi henn- ar veit um samskiptasíður sér- hannaðar fyrir kanínur. Hún sagði erfitt að skipta yfir eftir að hafa eytt miklum tíma í að byggja upp síðu á Facebook þar sem hún hefur eignast yfir þús- und vini, flesta loðna. Frey sagði að sumir hinna loðnu vina Nestle hefðu lent í því að síðum þeirra hafi verið lokað. „Þetta er mjög kjánalegt þar sem við vitum öll að gælu- dýrin stofna ekki síðurn- ar. Það er fólkið sem á þau sem er að eignast vini. Þetta er frekar meinlaust.“ Talsmaður Facebook kaus að tjá sig ekki um hvort gæludýra- aðgangi væri eytt. - mmf Gæludýrum úthýst af Facebook Að minnsta kosti nokkur þúsund gælu- dýraeigendur hafa stofnað aðgang fyrir dýrin sín á Facebook. Joseph Frey segir að gæludýraeigendur eigi að velta fyrir sér möguleikanum á að stofna síður á sérhönnuðum sam- skiptasíðum fyrir gæludýr. NORDICPHOTOS/GETTY Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með netnotkun barna og ungl- inga en allra best er að upplýsa til komast að samkomulagi um notkun. Tölvu- og netnotkun opnar ótelj- andi möguleika en skapar líka hættur og þá sérstaklega þegar um óhörðnuð börn og unglinga er að ræða. Guðberg K. Jónsson, verk- efnastjóri SAFT, var tekinn tali og spurður um eftirlit með netnokun barna og unglinga og siðferði á Netinu. „Flest börn og unglingar eiga ekki í nokkrum vandræðum á Netinu og umgangast það fyrst og fremst sem afþreyingar- og upplýsingatæki. Það eru til ýmis tæki og tól til að stjórna netnotk- un þeirra en við hjá SAFT leggjum höfuðáherslu á að það sé skilning- ur og samkomulag á milli barna og foreldra um hvernig eigi að nota Netið.“ Guðberg segir þó hægt að loka á ákveðnar síður. „Þjónustu- aðilar geta lokað á tilteknar síður en auk þess bjóða þeir í auknum mæli upp á það að foreldrar geti sjálfir stýrt hvaða síður eru opnar og hverjar ekki.“ Guðberg segir þjónustuaðila eins og Símann og Vodafone kaupa aðgang að gagna- grunnum sem geyma síður sem innihalda efni sem einungis er ætlað fullorðnum og er hægt að stýra notkun inn á þær. „Þá eru til ýmis konar forrit sem hafa verið þróuð og markaðssett til að auð- velda foreldrum að stjórna net- notkun barna en því miður er það svo að yfirleitt er hægt að finna leið fram hjá þeim. Það er jafn- vel til í dæminu að menn skemmti sér við að auglýsa hvernig það er gert.“ Guðberg segir líka hægt að fylgjast með því hvaða síður eru heimsóttar og í hvað tölvan er notuð. Það er meðal annars hægt í Explorer auk þess sem hægt er að setja upp sérstakt Spyware í tölvuna. Þá er foreldrastjórnunar- kerfi innbyggt í nýja stýrikerfið hjá Microsoft en eins og fyrr segir þá leggur SAFT höfuðáherslu á að foreldrar leggi línurnar með börn- um sínum og komist að samkomu- lagi um notkun þeirra. Inntur eftir siðferði barna og unglinga þegar kemur að því að stela tónlist og myndefni á Net- inu segir Guðberg það erfitt við- fangs. „Hótanir um lögsóknir hafa ekki borið árangur og virðist þurfa eitthvað annað. Hugsanlega er fjarðlægðin á milli listamanns- ins, hvort sem það er tónlistarmað- ur eða leikstjóri, slík að notendur gera sér ekki grein fyrir afleið- ingunum.“ En hvað er þá til ráða? „Mér finnst auglýsingarnar sem voru framleiddar eftir að Nætur- vaktinni var halað ólöglega niður í stórum stíl nokkuð góðar en þar sögðu listamennirnir sína hlið. Ég held að herferð sem slík skili frek- ar árangri.“ - ve Fæstir eiga í vandræðum Til eru ýmis forrit sem auðvelda foreldrum að fylgjast með netnotkun barna sinna en best er að komast að samkomulagi enda er yfirleitt hægt að finna leið fram hjá slíkum kerfum ef viljinn er fyrir hendi. Guðberg segir flest börn og unglinga ekki eiga í nokkrum vandræðum á Netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.