Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 41
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010
Tölvutek státar af mesta úrvali
landsins af fartölvum að sögn
Halldórs Hrafns Jónssonar,
rekstrarstjóra Tölvuteks, en
Tölvutek er með glæsilegar
tölvuverslanir í Borgartúni,
Reykjavík og í Undirhlíð,
Akureyri.
Tölvutek býður upp á öll stærstu
merkin í fartölvum eins og Packard
Bell, Acer, Toshiba, HP, Sony, MSI,
Asus, Lenovo og Apple og eru þær
á verði allt frá krónum 49.900.
„Mest seldu fartölvurnar hjá
okkur eru án efa Packard Bell sem
þykja búa yfir nýjustu tækninýj-
ungum og möguleikum en Packard
Bell-fartölvur eru í hæsta gæða-
flokki og hafa alltaf verið betur
búnar,“ segir Halldór.
Nú í vikunni var að koma alveg
ný lína af fartölvum frá Packard
Bell sem eru léttari, þynnri og með
lengri rafhlöðuendingu en eldri
vélar. Þetta eru fartölvur sem ættu
að sögn Halldórs að höfða til allra
fartölvukaupenda og nefnir þar
til sögunnar tölvur eins og 15,6
tommu fartölvu sem fæst í fjórum
litum, það er svört, silfurlit, hvít
og rauð og eru þær hver annarri
glæsilegri, aðeins 2,6 kg og örþunn-
ar. Allar eru þær með 15,6 tommu
SLIM HD LED-skjá sem er sérlega
þunnur, 4 gígabæta minni, 320-640
gígabæta disk og eru á mjög góðu
verði. „Packard Bell er einnig með
mjög öflugar fartölvur með öflug-
um Direct X 11 skjákortum sem
er eftirsótt í alla nýjustu leikina í
dag ásamt nýjustu og hröðustu ör-
gjörvum frá Intel og AMD en nýju
örgjörvarnir eru í senn kaldari,
hraðari og meira orkusparandi,“
segir Halldór.
Nýja línan frá Acer er einn-
ig glæsileg en Acer hefur nýver-
ið byrjað að framleiða svokallað-
ar Timeline X fartölvur sem eru
sérlega þunnar, léttar og með allt
að 12 tíma rafhlöðu þótt þær séu
með öflugu skjákorti og örgjörva
í leikjaspilun, Timeline X ætti því
að endast í skólanum allan daginn
bæði í leik og námi.
3D fartölvan frá Asus hefur
vakið mikla athygli en hægt er
að fara í verslanir Tölvuteks á
Akureyri og í Reykjavík og skoða
hvernig nýjustu leikirnir nýta sér
3D tæknina en fartölvan er með
15,6“ 120Hz 3D LED skjá ásamt
þráðlausum 3D gleraugum og er
ein öflugasta fartölvan á markað-
inum í dag.
Halldór segir Tölvutek einn-
ig bjóða upp á gott úrval fistölva
frá Asus, Lenovo, Acer og Packard
Bell en hægt er að fá vélar frá 1
kílói upp í 1,5 og í öllum regnbog-
ans litum.
Mesta úrval landsins
Aldrei er hægt að undirstrika
hversu mikilvægt það er að taka
afrit af gögnum, ritgerðum, mynd-
um og öllu öðru sem fólk vill eiga
til framtíðar.
Fyrirtækið LaCie hefur lengi
verið leiðandi í framleiðslu og
hönnun á harðdiskflökkur-
um en flestir flakkarar
frá þeim koma með „one
touch“ öryggishnappi til
að taka afrit.
LaCie hefur framúr-
skarandi gagnaafritun-
arlausnir jafnt fyrir ein-
staklinga og sérhæfðar
lausnir fyrir fyrir-
tæki. LaCie samein-
ar fallega hönnun,
gæði og nýjustu
tækni sem gerir
vörurnar þeirra
einstakar. Síð-
ustu 10 ár hefur
LaCie verið
leiðandi með
tækninýjung-
ar og safnað
öllum virt-
ustu verðlaunum á sínu sviði fyrir
hönnun, notandagildi og gæði.
Tölvutek er umboðsaðili LaCie á
Íslandi og eru mest seldu flakkar-
arnir á tilboði í verslunum þeirra
í Reykjavík og
á Akureyri
en þar
ber fyrst
að nefna
Rikiki
sem er u
agnarsmáir í
lófa en stórir
í gagnamagni
Rikiki 320GB
á kr. 14.900. og
Rikiki 640GB á kr.
19.900 og svo stærri
flakkarar hannaðir af
Neil Poulton þar sem
hægt er að fá 1TB á
16.900, 1.5TB á kr.
19.900. og 2TB á kr.
29.900.
Örugg gagnaafritun ● NÝJUNGAR Í FAR-TÖLVUM
Stærstu nýjungarnar í fartölv-
um í dag eru annars vegar ný
kynslóð örgjörva og svo ný og
enn öflugri Direct X 11 skjá-
kort með þrívíddartækni sem
skilar tölvuleikjum enn nær
raunveruleikanum.
Nýju örgjörvarnir frá Intel
heita Core i og eru mun hrað-
virkari, kaldari og meira orku-
sparandi en eldri örgjörvar.
AMD er svo með nýja öfluga
P320 örgjörva ásamt þriggja
og fjögurra kjarna Phenom
örgjörvum sem eru í flestum
öflugu leikjafartölvunum í dag.
Ef huga á að leikjaspilun í
nýrri fartölvu er mikilvægt að
skjákort fartölvunnar sé byggt
á nýjustu Direct X 11 þrí-
víddarleikjatækni en einhver
öflugustu fartölvuskjákortin
í dag eru annars vegar ATI
HD5470, ATI HD5650 og svo
nVidia GeForce GTX480M en
þessi kort styðja Direct X 11
og henta því sérlega vel í alla
leikjaspilun.Rikiki flakkari frá
LaCie.
Halldór Hrafn Jónsson, rekstrarstjóri Tölvuteks, við hluta af þeim fjölmörgu tölvum sem boðið er upp á í verslunum Tölvuteks.