Fréttablaðið - 12.08.2010, Page 48
28 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Uppruni kjötbollanna...
Erum við
komnir
þangað
aftur?
Ertu að spá í
þennan litla
félaga?
Ég hata að
þurfa að
segja þetta;
en þú tekur
þig vel út!
Þú, minn
gamli
félagi, ert
að deyja
úr öfund-
sýki!
Ég veit! Það tók eina nótt
að raka minn af og þegar ég
vaknaði var höfuð af ruggu-
hesti í rúminu mínu! Einhver
var að reyna að segja
mér eitthvað! Úúú...
hræði-
legt!
Kamilla sagði að
ég mætti gera
hvað sem er við
andlitið! Hún
hefur hvort sem
er bara áhuga á
líkama mínum!
ÞAÐ er
hræði-
legt!
Palli segist ekkert endi-
lega vilja taka bílprófið
þegar hann verður 17!
Hann segir að
ég eigi að halda
áfram
að keyra
hann út
um allt!
Hvers
vegna vill
hann ekki
bílpróf?
Æi, hann talar eitt-
hvað um olíubirgðir,
gróðurhúsaloftteg-
undir og það sem er
best fyrir mannkynið.
Sjálfselski
unglingur!
Hún
hlýtur
að vera
svöng.
Nei. Mamma var
að gefa henni.
Ég held að hún þurfi bara
knús frá uppáhaldinu
sínu!
ROOOOP!
Kannsku
þurfti hún
bara að
ropa.
Já. Knúsið
virkaði
allavega.
VAAAAAA
Hvalfjarðargöngin fengu falleinkunn EUROTAP um daginn. Eru víst stór-
hættuleg að fara um og öll öryggisatriði
fyrir neðan allar hellur. Ég hef farið gegn-
um þessi göng óteljandi ferðir og hef ekki
keyrt Hvalfjörðinn síðan þau voru opnuð.
Sem betur fer hef ég sloppið í gegn, hing-
að til.
ÞETTA fékk mig til að velta fyrir mér vega-
kerfinu á landinu í heild sinni en ég var
á ferðinni um daginn milli Akureyrar og
Reykjavíkur.
FERÐIN gekk vel þrátt fyrir mikla umferð
en bílalestirnar teygðu sig nánast óslitið
alla leiðina. Vöruflutningabílar í bland við
agnarsmáa fólksbíla, upphækkaðir jepp-
ar og jepplingar, kerrur, tjaldvagnar og
fellihýsi voru á ferðinni í báðar áttir. Öku-
hraðinn var því eitthvað undir leyfilegum
hámarkshraða og talsvert um glannalegan
framúrakstur. Á þessari leið er bara ein
akrein í hvora átt og óþolinmóðir
ökumenn undu sér ekki í bílalestun-
um. Þeir tóku aftur og aftur sénsa
sem stofnuðu ekki bara þeim sjálf-
um heldur fjölda annarra í hættu.
BANASLYSIN í umferðinni á hring-
veginum eru árviss. Það er ákveðin
rúlletta að hætta sér af stað í langferð
og þurfa að treysta á skynsemi og þol-
inmæði annarra ökumanna til að komast
klakklaust á leiðarenda en slysin verða flest
við framúrakstur. Fyrir stórar ferðahelgar
sumarsins brýnir lögreglan því fyrir ferða-
löngum að sýna þolinmæði og fara sér
hægt. Það sé betra að komast á leiðarenda
seint en aldrei.
ÉG FJARGVIÐRAST yfir því í hverri ein-
ustu ferð af hverju sé ekki löngu búið að
tvöfalda hringveginn en hann er ótrúlega
mjór á köflum, með kröppum beygjum og
blindhæðum að ég tali nú ekki um einbreiðu
brýrnar sem enn er að finna á þjóðvegi
eitt. Auðvitað má færa fyrir því rök að allt-
af verði til vitleysingar í umferðinni, sama
hversu gott vegakerfið er. Því verði ekki
hægt að koma í veg fyrir slys með fleiri
akreinum og tvöföldum brúm. Ég held það
nú samt.
ÞANGAÐ til mér verður að ósk minni um
tvöfaldan hringveg rígheld ég því um stýrið
alla þá klukkutíma sem tekur að aka þessa
leið, skíthrædd um að nú dembi sér einhver
vitleysingurinn fram úr og keyri mig í
klessu. Mér hefur meira að segja stundum
dottið í hug að liggja á flautunni þegar ég
mæti löngum bílalestum, einfaldlega til að
láta vita af mér. Ég velti því fyrir mér hvort
hringvegurinn fengi ekki sannarlega fall-
einkunn ef EURATAP tæki allt vegakerfi
landsins út.
Rússnesk rúlletta
F J Ö G U R Ö F L · E I N Ö R L Ö G
Vinningar afhendir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL LAB Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
10. HVERVINNUR!
VILTU
VINNA
MIÐA?
MYND EFTIR M. NIGHT SHYAMALAN
STÓRFENGLEG ÆVINTÝRAMYND Í 3D
FULLAF AUKAVINNINGUM
TÖLVULEIKIR • DVD MYNDIR
GOS OG MARGT FLEIRA!
KOMIN Í BÍÓ